Bandaríkin

Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars.

Hlær að samsæriskenningum um Swift og Super Bowl
Yfirmaður NFL-deildarinnar, Roger Goodell, blæs á samsæriskenningar tengdar Taylor Swift og Super Bowl sem fer fram á sunnudaginn.

Kántrísöngvarinn Toby Keith látinn
Bandaríski kántrísöngvarinn Toby Keith er látinn, 62 ára að aldri.

Haley biður um aukna vernd
Nikki Haley, sem berst enn við Trump um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, hefur óskað eftir vernd frá lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna (e. Secret service). Ástæðan ku vera sú að henni hefur borist alvarlegar hótanir að undanförnu.

Ræddu nauðsyn þess að draga úr spennu
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú á leið til Kaíró til að funda með Abdel Fattah El-Sisi, forseta Egyptalands. Blinken átti fund með Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu í gær.

Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi
Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni.

Vann þrenn Grammy-verðlaun en leiddur út í járnum
Rapparinn Killer Mike var handtekinn á Grammy-verðlaunahátíðinni í nótt eftir að hafa unnið til þrennra verðlauna á hátíðinni.

Aftur mikil flóð í Kaliforníu
Gífurleg rigning og hvass vindur hefur leitt til flóða og aurskriða í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hundruð þúsunda heimila eru sögð hafa orðið rafmagnslaus þegar rafmagnslínur slitnuðu. Þetta er í annað sinn á nokkrum dögum sem Kalifornía verður fyrir óveðri sem þessu.

Enn og aftur ráðist á Húta í Jemen
Bandaríkjaher gerði enn og aftur árásir á bækistöðvar Húta í Jemen í gær.

Fyrst til að vinna Grammy fyrir plötu ársins í fjórgang
Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift stal senunni á Grammy-verðlaunahátíðinni í nótt þegar hún varð fyrsti tónlistarmaðurinn í sögunni til að vinna verðlaunin fyrir Plötu ársins í fjórða sinn.

Laufey hlaut Grammy-verðlaun
Laufey Lín Jónsdóttir hlaut Grammy-verðlaun í kvöld í flokki hefðbundinnar popptónlistar, fyrir breiðskífu sína Bewitched.

Að eiga landamæri við stórveldi: Ólík stefna Úkraínu og Víetnam í öryggismálum
Stórveldasamkeppni fer nú harðnandi í heiminum og nú geysar stærsta stríð í Evrópu frá því að seinni heimstyrjöldinni lauk. Átök í Miðausturlöndum stigmagnast og mikil spenna er nú á milli Bandaríkjanna og Kína í Austur Asíu.

Nánast allir íbúar Gasa reiða sig á okkur
Gréta Gunnarsdóttir, yfirmaður UNRWA í New York, segir starfsemi stofnunarinnar falla um sjálfa sig í lok mánaðarins ef þau ríki sem ætla sér að fresta framlögum til stofnunarinnar láta verða af því. Tvær milljónir manna á Gasa reiða sig á stofnunina en auk þess starfar hún á Vesturbakkanum í Palestínu og í Jórdaníu og Sýrlandi.

Ráðast enn og aftur á Húta
Bandaríkin og Bretland gerðu loftárásir á Húta í Jemen í dag í nýjustu bylgju aðgerða til að fella vígahópa sem eru studdir af Írönum.

Var Jesús heimilislaus?
Á liðnum árum hef ég notið þeirra forréttinda að nema og starfa í þremur löndum utan Íslands; Danmörku, Bandaríkjunum og Þýskalandi.

Bandaríkin svara fyrir sig með loftárásum í Írak og Sýrlandi
Bandaríski herinn hefur hafið loftárásir á herstöðvar tengdar írönskum vígasamtökum í Írak og Sýrlandi. Loftárásirnar eru svar Bandaríkjamanna við drónaárás sem varð þremur bandarískum hermönnum að bana fyrir viku síðan.

Carl Weathers er látinn
Bandaríski leikarinn Carl Weathers, sem var þekktastur fyrir að leika Apollo Creed í myndunum um boxarann Rocky, er látinn 76 ára að aldri.

Nokkrir látnir eftir að flugvél brotlenti í byggð fyrir eldri borgara
Nokkrir eru látnir eftir að lítil flugvél brotlenti í byggð fyrir eldri borgara í Clearwater í Flórída í nótt. Mikill eldsvoði braust út í kjölfar flugslyssins og fjöldi látinna er óljós.

Einn styður Ísrael og hinn Palestínu; báðum var sagt upp en aðeins annar endurráðinn
Upp er komið áhugavert mál í Bandaríkjunum þar sem tveimur læknum var sagt upp eftir að þeir deildu færslum á samfélagsmiðlum, annar til stuðnings Ísrael og hinn til stuðnings Palestínu.

Dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir að stela og leka gögnum til Wikileaks
Forritari sem eitt sinn starfaði hjá CIA var í gær dæmdur í 40 ára fangelsi fyrir að stela og leka leynilegum gögnum til Wikileaks og fyrir vörslu barnaníðsefnis.

Beitir landtökumenn refsiaðgerðum
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gaf í dag út tilskipun og beitti fjóra ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum sem hafa ráðist á Palestínumenn refsiaðgerðum. Hægt er að breyta tilskipuninni gegn fleiri landtökumönnum í framtíðinni en refsiaðgerðirnar fela meðal annars í sér að fólkið getur ekki átt í viðskiptum við bandarísk fyrirtæki og getur ekki ferðast til Bandaríkjanna.

Vill færa skráningu Tesla til Texas
Auðjöfurinn Elon Musk vill færa skráningu Tesla frá Delaware og til Texas. Það er eftir að dómari í Delaware komst að þeirri niðurstöðu að 55 milljarða dala kaupréttarsamningur sem gerður var við hann árið 2018 hefði verið ólöglegur.

Óttast að kirkjugarður verði skotmark í deilum rappara
Viðbúnaður við kirkjugarð í Texas-ríki Bandaríkjanna hefur verið aukinn vegna deilna rapparanna Nicki Minaj og Megan Thee Stallion.

Zuckerberg bað fjölskyldur afsökunar á nefndarfundi í gær
„Mér þykir leitt allt það sem þið hafið þurft að ganga í gegnum... það er hræðilegt. Það á enginn að þurfa að upplifa þá þjáningu sem þið hafið upplifað.“

Adidas ákveður að selja birgðir sínar af Yeezy
Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur ákveðið að selja birgðir sínar af Yeezy-strigaskóm, sem hafa setið á lager frá því að fyrirtækið sleit samstarfi sínu við tónlistar- og athafnamanninn Kanye West.

Afhöfðaði föður sinn og birti myndband af höfðinu
Bandarískur maður hefur verið ákærður fyrir að myrða föður sinn og afhöfða hann. Hann birti svo myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann hélt á höfði föður síns og sakaði hann um að hafa svikið Bandaríkin og viðraði ýmsar samsæriskenningar um Joe Biden, farand- og flóttafólk, innrásina í Úkraínu og ýmislegt annað.

Græddi milljarða en þótti hann engu að síður hafa verið svikinn
Milljarðamæringurinn Dmitry Rybolovlev hefur tapað máli sem hann höfðaði gegn uppboðshúsinu Sotheby's í Bandaríkjunum, sem hann sakaði um að hafa haft af sér milljónir dollara.

Skáru niður styttu af goðsögn, brenndu og hentu í ruslatunnu
Styttan af bandarísku hafnaboltagoðsögninni Jackie Robinson fékk ekki að vera í friði því hún var skorin niður og eyðilögð.

Musk sjö og hálfri billjón króna fátækari
Auðjöfurinn Elon Musk mátti ekki fá 55 milljarða dala greiðslu frá fyrirtæki sínu Tesla, í formi kaupréttar árið 2018. Dómari í Delaware í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir í kvöld, fimm árum eftir að hluthafar í fyrirtækinu höfðuðu mál vegna greiðslunnar, sem gerði Musk að einum ríkasta manni heims.

Biden segist búinn að ákveða sig
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili.