
Bandaríkin

Segja byssumanninn í Koloradó kynsegin
Lögmenn byssumanns sem skaut fimm manns til bana á næturklúbbi samkynhneigðra í Koloradó í Bandaríkjunum fullyrða að hann sé kynsegin. Hán gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir hatursglæp og á að koma fyrir dómara í fyrsta skipti í dag.

Hæstiréttur leggur blessun sína yfir afhendingu skattskýrslna Trump
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað þingnefnd að fá afhent afrit af skattskýrslum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa barist fyrir því í þrjú ár að komast yfir gögnin.

Um tíu látnir eftir skothríð verslunarstjóra Walmart í Virginíu
Allt að tíu eru látnir eftir að maður hóf skothríð inni í Walmart-verslun í Virginíu í Bandaríkjunum í nótt. Erlendir fjölmiðlar segja að talið sé að árásarmaðurinn sé verslunarstjóri verslunarinnar.

Dóttir Kobe Bryant vill nálgunarbann á „byssuóðan“ eltihrelli
Hin nítján ára gamla Natalia Bryant, dóttir körfuboltagoðsagnarinnar Kobe Bryant heitins, hefur óskað eftir nálgunarbanni á eltihrelli. Lögreglan í Los Angeles er komin í málið og segir vopnalagabrot vera á sakarferli mannsins.

Eignaðist tvíbura með þrítugum fósturvísum
Hjón í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum eignaðust undir lok síðasta mánaðar tvíbura. Þau notuðust við fósturvísa sem höfðu verið frystir í apríl árið 1992. Um er að ræða heimsmet.

Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi.

Stjórnendur FTX sagðir hafa keypt lúxusíbúðir fyrir milljarða
Rafmyntarfyrirtækið FTX, stofnandi þess, foreldrar hans og æðstu stjórnendur fyrirtækisins eru sagðir hafa keypt fjölda lúxusfasteigna á Bahamaeyjum fyrir jafnvirði milljarða króna á undanförnum tveimur árum. Fyrirtækið er nú í gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum og er til rannsóknar vegna meintra verðbréfasvika.

Tæklaði árásarmanninn en tapaði tengdasyninum
Miðaldra fyrrverandi hermanni hefur verið hampað sem hetju eftir að hann afvopnaði og yfirbugaði árásarmann sem hóf skotárás á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Hann segist hafa farið ósjálfrátt í stríðsham þegar kúlunum byrjaði að rigna. Tengdasonur hermannsins er á meðal þeirra sem lést í árásinni.

Jay Leno útskrifaður af sjúkrahúsi eftir brunaslys
Bandaríski grínistinn og þáttastjórnandinn Jay Leno hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Kaliforníu eftir að hafa hlotið brunasár eftir eldsvoða í bílskúr á heimili sínu í Kaliforníu fyrir tíu dögum.

Ragga Ragnars fékk líflátshótanir eftir myndatökur í Yellowstone
Ragnheiður Ragnarsdóttir, leikkona og fyrrverandi afreksmaður í sundi, fékk líflátshótanir frá notendum á Instagram eftir að hún baðst afsökunar á því að hafa gengið um hverasvæðið í Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum.

Önnur Bob-skipti hjá Disney
Stjórn Disney tilkynnti í gær að Bob Chapek, forstjóra, hefði verið sagt upp störfum. Í stað hans yrði Bob Iger, fyrrverandi forstjóri og fyrrverandi stjórnarformaður, ráðinn aftur til starfa.

Bein útsending: Flogið upp að tunglinu
Orion-geimfarið sem sent var til tunglsins í fyrsta geimskoti Artemis-áætlunarinnar stefnir nú hraðbyr að tunglinu. Þyngdarkraftur tunglsins verður notaður í dag til að koma því á háa sporbraut en myndefni frá geimfarinu er streymt til jarðarinnar.

Biðja aðdáendur afsökunar eftir misheppnaða miðasölu
Miðasölurisinn Ticketmaster hefur beðið aðdáaendur stórsöngkonunnar Taylor Swift afsökunar vegna hruns sem varð á síðu fyrirtækisins þegar sala hófst á miðum á tónleika söngkonunnar. Ticketmaster hefur kennt metaðsókn og tölvuþrjótum um algjörlega misheppnaða sölu.

Tvær hetjur yfirbuguðu árásarmanninn
Sá sem er grunaður um að hafa orðið fimm að bana á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags er 22 ára karlmaður. Skemmtistaðurinn þakkar hetjum sem voru inni á staðnum og yfirbuguðu árásarmanninn.

Gríðarlegar skuldir fallna rafmyntafyrirtækisins
Hið fallna rafmyntafyrirtæki FTX skuldar fimmtíu stærstu lánadrottnum nærri þrjá milljarða dollara, andvirði um 430 milljarða íslenska króna.

Fimm skotin til bana í árás á hinsegin skemmtistað í Colorado
Fimm voru skotnir til bana á hinsegin skemmtistaðnum „Q“ í Colorado Springs í Bandaríkjunum nú aðfaranótt sunnudags. Átján særðust í árásinni.

Ætlar ekki að snúa aftur á Twitter
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist ekki sjá ástæðu til þess að snúa aftur á samfélagsmiðilinn Twitter.

Trump mættur aftur á Twitter
Búið er að opna aftur fyrir Twitter-reikning Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nótt um að aðgangurinn yrði opnaður aftur eftir skoðanakönnun sem yfir fimmtán milljón notendur tóku þátt í.

Ungmennin í Idaho voru stungin til bana
Komið er í ljós að fjögur ungmenni sem fundust látin á heimili sínu fyrir um viku síðan í Idaho voru stungin til bana. Þau voru nemendur í Idaho háskóla í Bandaríkjunum.

Tekur sér frí vegna fornæmis fyrir Alzheimer
Ástralski leikarinn Chris Hemsworth hefur ákveðið að taka sér frí frá sviðsljósinu vegna nýuppgötvaðs fornæmis fyrir Alzheimer sjúkdómnum.

Leyfir almenningi að kjósa um endurkomu Trump
Elon Musk, eigandi Twitter og stofnandi Tesla, hefur boðið almenningi að kjósa um hvort Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti ætti að snúa aftur á Twitter. Á tólf klukkutímum hafa rúmlega tíu milljónir manna kosið.

Hvernig Kína nær yfirráðum
Ekki má vanmeta hversu veigamikil ásókn Kína í áhrif á sviði alþjóðaviðskipta er. Þó svo að Kína sé ekki að ráðast inn í önnur lönd (ennþá), er metnaður landsins í uppbyggingu viðskiptatengsla um allan heim mikill, sem á endanum styður pólitísk áhrif. Sláandi er að horfa upp á hversu ólíkri leið Bandaríkin og Kína eru á um þessar mundir.

Holmes dæmd í ellefu ára fangelsi
Elizabeth Holmes, stofnandi Theranos, hefur verið dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Holmes var sakfelld í upphafi árs en refsingin ekki ákveðin fyrr en nú.

Rússar vongóðir um að fá „sölumann dauðans“ frá Bandaríkjunum
Rússar hafa viðurkennt í fyrsta sinn að viðræður séu í gangi milli þeirra og Bandaríkjamanna um fangaskipti sem myndu fela í sér að Bandaríkjamenn slepptu alræmda vopnasalanum Viktor Bout, sem gengur undir viðurnefninu „sölumaður dauðans“.

Bandaríkjamenn segja krónprinsinn njóta friðhelgis sem forsætisráðherra
Bandarísk stjórnvöld segja ótækt að kæra Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, í tengslum við morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi, þar sem hann var nýlega gerður forsætisráðherra landsins og nýtur þar með friðhelgi sem æðsti ráðamaður ríkisstjórnar.

Starfsmenn flýja Twitter vegna afarkosta Musk
Það er óhætt að setja að framtíð samfélagsmiðilsins Twitter sé í uppnámi eftir að hundruðir starfsmanna virtust velja að kveðja fyrirtækið í stað þess að gangast undir afarkost Elon Musk um að starfsmenn skuldbittu sig til að vinna langa og stranga vinnudaga ellegar hættu.

Twerkoholic-rapparinn B. Smyth er látinn
Bandaríski rapparinn B. Smyth, sem þekktastur er fyrir lag sitt Twerkoholic frá árinu 2014, er látinn, 28 ára að aldri.

Segist aldrei hafa séð aðra eins óráðsíu og hjá FTX
Nýr forstjóri fallna rafmyntarfyrirtækisins FTX segist aldrei hafa séð aðra eins óstjórn og þá sem átti sér stað hjá félaginu. Hann átti engu að síður þátt í að greiða úr flækjunni eftir fall Enron sem er talið eitt subbulegasta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna.

Pelosi stígur til hliðar eftir tæplega tveggja áratuga forystu
Nancy Pelosi, fráfarandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sækist ekki eftir því að leiða Demókrataflokkinn í deildinni á komandi kjörtímabili. Hún hefur verið í forystu flokksins í neðri deild þingsins í nærri því tuttugu ár.

Fær ekki að vera hin eina sanna „drottning jólanna“ þrátt fyrir allt
Söngkonan Mariah Carey hefur oft verið kölluð drottning jólanna enda jólalög hennar órjúfanlegur hluti af jólahaldi margra. Carey hafði óskað eftir því að titillinn yrði skráður sem vörumerki í hennar eigu. Í vikunni fékkst sú niðurstaða í málið að Carey fengi ekki einkaleyfi fyrir vörumerkinu og má því hver sem er kalla sig „drottningu jólanna“.