EM karla í handbolta 2024

„Held að fólki á Íslandi líki ekkert voðalega vel við okkur“
Reynsluboltinn Máté Lékai var að vonum glaður eftir að Ungverjar fóru illa með Íslendinga á EM í handbolta í München í gærkvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Lékai fagnar sigri gegn Íslandi en í þetta sinn var munurinn afar mikill.

Myndasyrpa frá martröðinni gegn Ungverjalandi
Ísland beið ósigur gegn Ungverjalandi í lokaleik riðlakeppni EM karla í handknattleik í gær. Síðari hálfleikur var einn sá slakasti sem íslenska liðið hefur leikið lengi.

„Ég er fúll út í sjálfan mig líka“
Haukur Þrastarson átti ekki góðan dag eins og fleiri í íslenska landsliðinu sem steinlá með átta marka mun á móti Ungverjum á Evrópumótinu í Þýskalandi.

„Ég vona að þessir strákar fái extra knús“
Söngkonan María Ólafsdóttir segir það stinga sig að horfa upp á algjör niðurbrot á samfélagsmiðlum á stundum líkt og í kvöld, þar sem karlalandslið Íslands í handbolta tapaði örugglega gegn liði Ungverjalands á EM í handbolta.

Skýrsla Henrys: Á fyrsta farrými til Kölnar í boði lafði lukku og Svartfellinga
Þetta átti að vera gleðipistill fyrir nokkrum tímum síðan. Eftir þessa niðurlægingu í leiknum gegn Ungverjum er ekki hægt að vera jákvæður. Þetta var algjört þrot og liðið virðist ekki eiga neitt erindi í milliriðilinn.

Milliriðill Íslands er klár: Hefjum leik gegn Þjóðverjum
Þrátt fyrir afhroð gegn Ungverjalandi á EM karla í handbolta í kvöld er Ísland komið í milliriðil. Sem stendur er Ísland neðsta lið riðilsins og svo sannarlega með bakið upp við vegg. Fyrsta verkefnið er Þýskaland á fimmtudagskvöld.

Spánn úr leik á EM
Spánn er úr leik á EM karla í handbolta. Þá vann Frakkland þriggja marka sigur á Þýskalandi í uppgjöri toppliðanna í A-riðli.

Tölfræðin á móti Ungverjalandi: Unnu okkur 13-2 í mörkum fyrir utan
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með átta marka mun á móti Ungverjum, 25-33, í þriðja leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi.

Samfélagsmiðlar: Jarðarför í hálfleik og gefa Færeyjum sætið í milliriðli
Það verður seint sagt að gleði hafi einkennt færslur Íslendinga yfir leik þjóðarinnar gegn Ungverjalandi á EM karla í handknattleik. Ungverjar léku sér að íslenska liðinu í síðari hálfleik og unnu gríðarlega sannfærandi átta marka sigur, lokatölur 33-25.

„Núna sýnum við karakterinn“
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska liðsins, var allt annað en sáttur með sig og frammistöðu liðsins eftir stórt tap á móti Ungverjum á EM í kvöld.

Einkunnir strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Andlaust, lint og lélegt
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með átta marka mun, 25-33, fyrir Ungverjalandi í lokaleik sínum í C-riðli Evrópumótsins í Þýskalandi.

„Mitt upplegg og það klikkaði í dag“
„Mikil vonbrigði. Frammistaðan léleg frá A til Ö, sérstaklega í seinni hálfleik. Stendur ekki steinn yfir steini í neinu hjá okkur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, eftir stórtap Íslands gegn Ungverjalandi á EM karla í handbolta í kvöld.

Fyrirliðinn orðlaus eftir afhroð gegn Ungverjalandi
„Svona rétt eftir leik er maður pínu orðlaus,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði Íslands eftir átta marka tap strákanna okkar gegn Ungverjalandi í lokaleik C-riðils á EM karla í handbolta. Tapið þýðir að Ísland fer stigalaust í milliriðil.

Umfjöllun: Ísland - Ungverjaland 25-33 | Spilaborgin hrundi í síðari hálfleik
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mátti þola átta marka tap gegn Ungverjalandi í lokaleik sínum í C-riðli Evrópumótsins í handbolta. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik hrundi leikur Íslands í síðari hálfleik og Ungverjaland vann gríðarlega sannfærandi sigur.

Grindavík ofarlega í huga Íslendinga á EM í handbolta
Grindavík er greinilega ofarlega í huga íslenska stuðningsfólksins sem nú er statt á leik Íslands og Ungverjalands á EM karla í handbolta.

Króatía í sama milliriðil og Ísland
Króatía tryggði sér sæti í milliriðli á Evrópumóti karla í handknattleik með sex marka sigri á Rúmeníu í B-riðli, lokatölur 31-25. Króatía og Ísland munu því mætast í milliriðli en Ísland er komið þangað eftir sigur Svartfjallalands á Serbíu.

Svartfellingar sendu Ísland áfram í milliriðil
Svartfjallaland vann 30-29 gegn Serbíu. Báðar þjóðir hafa lokið keppni á Evrópumótinu. Ísland er með tryggt sæti í milliriðlinum og þarf ekki að vinna leik sinn gegn Ungverjalandi á eftir.

Haukur og Donni koma inn í hópinn
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Ungverjum á eftir.

Sérsveitinni hent út úr vagninum fyrir of góða stemningu
Stemningin hjá stuðningsmönnum íslenska landsliðsins í handbolta, sem ætla að láta vel í sér heyra á leiknum við Ungverjaland á EM í kvöld, var hreinlega of mikil fyrir þýskan sporvagnsstjóra.

Ólympíuhöllin rýmd með hraði
Uppi varð fótur og fit í Ólympíuhöllinni í München nú rétt fyrir fjögur er brunavarnarbjöllur fóru að klingja.

„Þá verður þetta aðeins persónulegra“
Fyrirliðinn Aron Pálmarsson segir að leikur við Ungverjaland sé „aðeins persónulegri“ en aðrir leikir á EM í handbolta. Fram undan sé hörkuleikur í kvöld sem jafnframt sker úr um hvaða lið endar á toppi C-riðils og fer með fullt hús stiga í milliriðla.

Spennan magnast með hverri mínútu meðal Íslendinganna í München
Ísland spilar afar mikilvægan leik á Evrópumótinu í handbolta á móti Ungverjalandi í kvöld og getur með sigri tryggt sér óskastöðu í milliriðlinum.

Færeyingar eiga tvo markahæstu leikmenn EM
Færeyska handboltalandsliðið er á heimleið frá Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi eftir tap fyrir Póllandi í gær.

Mögulega dregið um hvort Ísland fari áfram
Ef að Serbía vinnur Svartfjallaland í kvöld, 30-29, og Ísland tapar fyrir Ungverjalandi 27-26, þá enda Ísland og Serbía nákvæmlega jöfn í 2.-3. sæti C-riðilsins á EM karla í handbolta.

„Stríð í sextíu mínútur á móti þessum turnum“
Ýmir Örn Gíslason, einn af strákunum okkar á EM í handbolta, fær að glíma við einn allra erfiðasta línumann heims í kvöld þegar hann tekst á við hinn tröllvaxna Bence Bánhidi.

Nú er nóg komið af ungversku svekkelsi
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Ungverjalandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í handbolta í Þýskalandi.

Þegar ég vinn í dag þá bætir það ekki upp fyrir það sem gerðist
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir að glíman við Ungverjaland á EM í kvöld sé úrslitaleikur. Hann líti hins vegar ekki á hana sem einhvers konar persónulegt uppgjör, eftir sárar minningar frá fyrri viðureignum og þá sérstaklega einni.

Gidsel skuldar Landin bjór fyrir allar stoðsendingarnar
Það var skiljanlega létt yfir leikmönnum danska karlalandsliðsins í handbolta eftir sigurinn stóra á Portúgal á EM í Þýskalandi í gær.

EM í dag: Nýtt lag fyrir vörnina og verður Haukur leynivopnið?
EM í dag fer ítarlega yfir stöðu mála á EM það er allt undir hjá strákunum okkar í kvöld. Sigur og liðið er í frábærum málum en tap gæti þýtt heimför.

Sonurinn með væntingar þjóðarinnar á herðunum
Guðjón „Gaupi“ Guðmundsson, mesti handboltasérfræðingur þjóðarinnar, mætti til Einars Bárðarsonar í hlaðvarpsþáttinn Einmitt og jós af brunnum visku sinnar.