Bestu mörkin

„Ég er svo pirruð, ég er svo pirruð“
Spurningakeppnin skemmtilega í Bestu mörkum kvenna var á sínum stað í síðasta þætti. Þóra Helgadóttir og Bára Kristín Rúnarsdóttir áttust við. Keppnin var hörð og var Bára meðal annars hrekkt af Þóru og Helenu Ólafsdóttur stjórnanda.

Þróttur geti klárlega landað titlinum: „Mér finnst þetta stórkostlegt lið“
Þróttarar fengu mikið hrós í Bestu mörkunum fyrir framgöngu sína það sem af er leiktíð í Bestu deild kvenna í fótbolta. Meistarakandídatar, segja sérfræðingarnir.

„Finnst áran yfir þessu Þróttaraliði virkilega góð“
Stóru orðin voru ekki spöruð þegar lið Þróttar í Bestu deild kvenna var rætt í Bestu mörkunum eftir öruggan 4-1 sigur liðsins á FH á dögunum. Liðið er í 2. sæti með 16 stig líkt og topplið Breiðabliks sem er þó með betri markatölu.

„Sorgmædd yfir þessari þróun sem hefur átt sér stað hjá Val“
Valur tapaði 4-0 fyrir Breiðabliki í Bestu deild kvenna á föstudagskvöld. Helena Ólafsdóttir og sérfræðingarnir úr Bestu mörkum kvenna ræddu stöðuna á Valsliðinu.

„Elska að horfa á FH“
FH hefur átt góðu gengi að fagna í upphafi tímabils og er í 2. sæti Bestu deildar kvenna með þrettán stig eftir fimm umferðir. Í uppgjörsþætti Bestu markanna voru FH-ingar hlaðnir lofi.

Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar
Í síðasta þætti Bestu markanna voru fyrstu fimm umferðir Bestu deildar kvenna í knattspyrnu gerðar upp. Lið tímabilsins til þessa valið, hvaða leikmenn hefðu skarað fram úr, hvaða leikmenn hefðu komið á óvart og þar fram eftir götunum.

„Finnst að þeir eigi að vera betri en við í reglunum“
„Hann byrjaði þetta rosalega rólega en svo kom þetta tandurhreint út,“ sögðu Helena Ólafsdóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir í kór þegar farið var yfir dómgæslu í Bestu mörkunum að lokinni 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Helena í ham í Bestu mörkunum: „Mér finnst þetta vera algjört bull“
Helena Ólafsdóttir er enginn aðdáandi þess sem í gangi hjá kvennaliði Vals þessa dagana og beinir gagnrýni sinni að nýrri stjórn og orðum þjálfara liðsins í viðtölum.

Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“
Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, bað að heilsa Ástu Eir Árnadóttur, fyrirliða liðsins á síðasta tímabili, sem var að þreyta frumraun sína sem sérfræðingur í Bestu mörkunum í gærkvöldi.

„Fannst ekkert gerast nema Fanndís væri að gera eitthvað“
Sérfræðingar Bestu marka kvenna fóru yfir mikilvægi Fanndísar Friðriksdóttur í sóknarleik Vals í síðasta þætti.

Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“
Gæti Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, átt eftir að feta í fótspor systur sinnar Hlínar með því að komast út í atvinnumennsku og í A-landsliðið? Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum eru sannfærðir um það.

„Hún er klárlega skemmtikraftur“
FHL er nýliði í Bestu deild kvenna í fótbolta sumar og einn leikmaður liðsins hefur þegar vakið mikla athygli hjá sérfræðingum Bestu markanna.

„Beindu þeim inn á miðju og átu þær þar“
„Þetta var frábær leikur hjá Þrótturum. Sérstaklega hvernig Óli leggur þennan leik upp, hann var alveg búinn að vinna sína heimavinnu,“ sagði Mist Edvardsdóttir, sérfræðingur Bestu markanna, þegar farið var yfir stórleik 2. umferðar Bestu deildar kvenna.

„Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“
Tveir leikir af fimm í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta fóru fram innanhúss, í Boganum á Akureyri og Fjarðabyggðarhöllinni. Þetta var til umræðu í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport.

Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“
Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði flottasta mark 1. umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Bestu Markanna. Bríet Fjóla er aðeins 15 ára gömul en á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

„Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“
Það reyndi aðeins á landafræðikunnáttu sérfræðinganna í Bestu mörkunum þegar Helena Ólafsdóttir bauð upp á stutta spurningakeppni í þættinum eftir fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“
„Við vorum allar í samtali síðastliðinn mánudag og fórum yfir deildina. Mér fannst við bjartsýnar fyrir hönd Stjörnunnar,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastýra Bestu markanna, er afhroð Stjörnukvenna gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Breiðabliks var rætt.

Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu
Bestu mörkin fjölluðu um fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöldi og þar á meðal var skoðað atvik úr leik Víkings og Þór/KA.

Upphitun fyrir úrslitadaginn: „Þær eru meiri sigurvegarar en þetta Blikalið“
Úrslitin ráðast á morgun í Bestu deild kvenna í fótbolta, þar sem Breiðablik og Valur mætast í leik um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Helena Ólafsdóttir og Mist Rúnarsdóttir hituðu upp með Jóhannesi Karli Sigursteinssyni, þjálfara Stjörnunnar, og Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni, fréttamanni Fótbolta.net.

„Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“
Þær Gígja Valgerður Harðardóttir, leikmaður Víkings, og Kristrún Rut Antonsdóttir, leikmaður Þróttar, voru gestir Helenu Ólafsdóttur í upphitunarþætti fyrir næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna.

Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“
Markvörðurinn Tinna Brá Magnúsdóttir var einn af fáum ljósum punktum í liði Fylkis, sem féll úr Bestu deild kvenna í sumar. Landsleikjahæsti markmaður Íslands vonar að hún finni sér annað lið fyrir næsta tímabil.

„Skemmtileg áskorun“ að þjálfa konur sem eru mun eldri
Helena Ólafsdóttir fékk til sín þjálfara á mjög ólíkum aldri þegar hún hitaði upp fyrir þriðju síðustu umferðina í efri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Bestu mörkin: Köttarar meistarar en sorglegt hve fáir mæta á Hlíðarenda
Helena Ólafsdóttir og Mist Rúnarsdóttir voru á sínum stað til að hita upp fyrir lokaumferðina áður en úrslitakeppnin hefst í Bestu deild kvenna. Með þeim að þessu voru Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir og Hulda Hrund Arnarsdóttir, sem eiga hörkuleik fyrir höndum um helgina.

Besta upphitunin: „Auðvitað fylgir maður alltaf börnunum“
Helena Ólafsdóttir er mætt aftur og Mist Rúnarsdóttir sest í sérfræðingasætið. Þær hituðu vel upp fyrir umferðina sem framundan er í Bestu deild kvenna með góðum gestum, mæðgunum Kristínu Dís Árnadóttur og Kristínu Önnu Arnþórsdóttur.

„Besta miðjan á landinu og væru fínar saman í landsliðinu líka“
Valskonur komust á toppinn í Bestu deild kvenna í gærkvöldi eftir sigur í toppslagnum á móti Blikum. Bestu mörkin fóru yfir leikinn og frammistöðu Valskvenna.

Framkvæmdastjóri Rey Cup: Landsliðskonur hjálpa við að lokka stórliðin
Helena Ólafsdóttir hitaði upp að venju fyrir umferðina sem framundan er í Bestu deild kvenna og fékk til sín góðan gest, Gunnhildi Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóra Rey Cup fótboltamótsins.

„Ég held að það hafi verið vel hugsað um þær á þessum tíma“
Þróttarakonur sátu lengi í fallsæti í Bestu deild kvenna í fótbolta en eru núna komnar upp í sjötta sæti deildarinnar. Bestu mörkin ræddu ferðalag Þróttaraliðsins upp töfluna.

Bestu mörkin um hina óþreytandi Selmu Dögg: „Eins og hún sé að leysa tvær stöður“
„Víkingarnir eru góðir í pressu og þar er Selma Dögg (Björgvinsdóttir) fyrirliði og leiðtoginn í þessu liði, það er æðislegt að sjá hana pressa,“ sagði Sif Atladóttir um prímusmótorinn í liði Víkings í Bestu deild kvenna.

Vildu rautt á tæklingu Sharts: „Þetta er hættulegt“
Tækling Hönnuh Sharts, varnarmanns Stjörnunnar, á Barbáru Sól Gísladóttur í leik Garðbæinga við Breiðablik, var til umræðu í Bestu mörkunum. Sharts fékk gult spjald fyrir en annar litur hefði getað verið á spjaldinu.

Besta upphitunin: Landsliðsþjálfararnir gerðu upp undankeppni EM
Helena Ólafsdóttir hitaði upp að venju fyrir umferðina sem framundan er í Bestu deild kvenna og fékk til sín gesti af dýrari gerðinni í þetta sinn. Landsliðsþjálfararnir Þorsteinn Halldórsson og Ásmundur Guðni Haraldsson, sem eru nýkomnir úr landsliðsverkefni og stýrðu Íslandi á EM 2025.