Landslið karla í fótbolta

Davíð Snorri í rigningunni á De Kuip: „Má segja að veðrið sé okkur í hag“
Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í fótbolta, segir veðrið með liðinu í hag fyrir vináttuleikinn gegn Hollandi í Rotterdam í kvöld en mikil rigning var skömmu fyrir leik.

Byrjunarlið Íslands: Ein breyting frá sigrinum á Englandi
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gerir eina breytingu frá sigrinum á Englandi. Valgeir Lunddal Friðriksson kemur inn í liðið fyrir Daníel Leó Grétarsson.

Uppgjör: Holland - Ísland 4-0 | Hollendingar fara dansandi inn á EM
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 4-0 tap er liðið mætti því hollenska í vináttulandsleik í kvöld. Þetta var seinasti leikur Hollendinga fyrir EM sem hefst á föstudaginn.

„Ég held það hræði ekki Íslendinga“
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide óttast ekki aðstæður á De Kuip í Rotterdam í kvöld. Spilað verður í alíslenskri, en þó hollenskri, haustlægð.

„England stóð sig ekki í pressunni“
Ronald Koeman, þjálfari hollenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir sína menn þurfa að gera betur en England gegn Íslandi í kvöld.

Ætlar ekki að tapa á móti Íslandi: „Síðasti leikur fyrir EM og við erum tilbúnir“
Tijjani Reijnders, miðjumaður AC Milan og hollenska landsliðsins, segir sigur Íslands gegn Englandi hafa sett Hollendinga upp á tærnar fyrir leik kvöldsins.

Mæta fullir einbeitingar til leiks: „Tilvalið að eyðileggja annað partý“
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að liðið mæti fullt einbeitingar til leiks þegar Ísland sækir Holland heim í vináttulandsleik í kvöld.

Úrslitin á Wembley komu Koeman á óvart: „Þeir verðskulduðu sigurinn“
Ronald Koeman, þjálfari hollenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir sína menn klára í slaginn fyrir leik morgundagsins við Ísland. Hann hrósar íslenska liðinu fyrir góða frammistöðu á Wembley.

Fjallabaksleiðin í landsliðið: „Það vill enginn búa í Foggia“
„Frammistaða hans var mjög góð. Hann varðist vel,“ sagði landsliðsþjálfarinn Åge Hareide um Bjarka Stein Bjarkason sem kom sterkur inn í sinn fyrsta alvöru landsleik með Íslandi á Wembley.

Svona var blaðamannafundur Hareide og Jóhanns Berg í Rotterdam
Age Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, og fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á De Kuip-vellinum í Rotterdam.

Daníel Leó ekki með á æfingu landsliðsins
Miðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson var ekki með íslenska landsliðinu á æfingu á De Kuip vellinum í Rotterdam í dag. Hann varð fyrir hnjaski í sigrinum á Englandi.

Stjarna Hollendinga ekki með gegn Íslandi
Hollenska karlalandsliðið í fótbolta verður án stórstjörnu sinnar Frenkie de Jong er liðið mætir Íslandi í æfingaleik í Rotterdam annað kvöld.

Van Dijk og félagar mættu á hjóli á æfingu
Karlalandslið Hollands í fótbolta undirbýr sig yfir leik við Ísland í Rotterdam annað kvöld og æfði saman í morgun. Það var létt stemning yfir hollenska hópnum.

Utan vallar: Þeim er ekki sama núna
Englendingum gæti vart virst meira sama um æfingaleik liðsins við Ísland í aðdragandanum. Leikurinn var formsatriði og aðrir hlutir skiptu meira máli. Það er ekki svo í dag.

Ekki fyrsti sigur Åge á Englandi: „Maggie Thatcher, strákunum þínum var rústað!“
Åge Hareide stýrði íslenska karlalandsliðinu til sigurs á Englandi á Wembley í gær. Þetta er ekki fyrsti sigur hans á enskum um ævina því hann tók þátt í frægum sigri Norðmanna á Englendingum fyrir 43 árum.

Fjölmiðlar keppast við að lítillækka landsliðið eftir tapið gegn Íslandi
Landsliðsmenn Englands og þjálfari þeirra, Gareth Southgate, eru ekki háttskrifaðir í fjölmiðlum ytra eftir óvænt tap gegn Íslandi á Wembley í kvöld.

„Allir tala eins og við séum að fara að valta yfir mótið og vinna það“
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, var vonsvikinn með frammistöðu sinna manna eftir 0-1 tap gegn Íslandi í kvöld. Hann segir íslenska liðið hafa lagt leikinn vel upp og tapið í kvöld sé merki um að margt þurfi að breytast.

„Frábært að koma hingað á mitt annað heimili og skemma partýið“
Jóhann Berg Guðmundsson var léttur í bragði eftir sigur 1-0 Íslands gegn Englandi á Wembley í kvöld. Hann segir svona frammistöðu geta skilað Íslandi aftur á stórmót.

Åge: Gott fyrir strákana
Þjálfari íslenska landsliðsins gat verið ánægður með frammistöðu liðsins í kvöld þegar att var kappi við England á Wembley. Leikurinn var síðasti æfingaleikurinn hjá Englandi fyrir EM 2024 og er skemmst frá því að segja að Ísland vann leikinn 1-0 eftir mark frá Jón Degi Þorsteinssyni.

Jón Dagur: „Já þetta bara gerðist?“
Jón Dagur Þorsteinsson var hetja Íslendinga á Wembley í kvöld en hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Íslands á Englandi. Flesta leikmenn dreymir um að upplifa tilfinninguna að skora á þessum sögufræga velli og nú er Jón Dagur búinn að krossa það af draumalistanum.

Uppgjör: England - Ísland 0-1 | Strákarnir okkar með frækinn sigur á Wembley
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti því enska á troðfullum Wembley leikvanginum í kvöld. Þetta var síðasti leikur Englendinga fyrir EM í Þýskalandi og íslenska landsliðið eyðilagði kveðjuteitið. Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark leiksins í 0-1 sigri.

Sjáðu markið sem tryggði Íslandi sigur gegn Englandi
Ísland vann 1-0 sigur gegn Englandi á Wembley í kvöld. Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark leiksins.

Samfélagsmiðlar eftir sigurinn: Íslendingar kampakátir en Englendingar ekki lengur vongóðir fyrir EM
Englendingar eru ekki eins vongóðir og þeir voru fyrir Evrópumótinu eftir tap gegn Íslandi á Wembley. Venju samkvæmt leituðu þeir á samfélagsmiðla til að láta óánægju sína í ljós.

Íslenska landsliðið festist í umferð: „Við nýttum tímann í rútunni til að undirbúa“
Íslenska landsliðið festist í mikilli umferð á leið sinni að Wembley leikvanginum fyrir æfingaleik gegn Englandi.

Byrjunarlið Íslands og Englands: Óvæntur maður inn hjá Íslandi og England ekki með Bellingham
Byrjunarliðs Englands og Íslands fyrir vináttuleikinn á Wembley hafa verið birt. Hjá Íslandi er ein óvænt breyting. England stillir upp sterku liði en Jude Bellingham er utan hóps.

Þrír í enska hópnum voru í Nice: „Það var sjokk“
Þrír standa eftir úr leikmannahópi enska landsliðsins frá frægu tapi liðsins fyrir Íslandi í Nice á EM 2016. Aðrir muna vel eftir tapinu.

„Ísland var gríðarlega óheppið í umspilinu“
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, er spenntur fyrir leik kvöldsins við Ísland fyrir troðfullum Wembley í Lundúnum.

„Veit hvernig börnin mín myndu vilja fá svona fréttir“
Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, átti erfiðan dag í gær líkt og hann greinir frá við Stöð 2 Sport.

Åge spenntur fyrir stórleiknum: „Ég held að allir vilji upplifa svona andrúmsloft“
Åge Hareide landsliðsþjálfari vill að leikmenn Íslands njóti sín á Wembley í kvöld. Leikurinn sé frábært tækifæri til að skerpa á ákveðnum atriðum, auka breiddina í hópnum og bæta sóknarleik liðsins.

Declan Rice: Mikil gæði í íslenska liðinu og það má ekki vanmeta þá
Declan Rice, leikmaður Arsenal og landsliðsmaður Englands, segir Ísland verðugan andstæðing. Liðið sé vel skipulagt varnarlega og búi yfir miklum gæðum sóknarlega. Það sé mikilvægt að vanmeta aldrei andstæðinginn.