

Ísland tryggði sér fullkomna byrjun í hinni nýju Þjóðadeild kvenna í fótbolta í kvöld með 1-0 sigri gegn Wales á Laugardalsvelli. Glódís Perla Viggósdóttir skoraði sigurmarkið með frábærum skalla í fyrri hálfleik.
Telma Ívarsdóttir, markmaður Íslands, var afar ánægð með að hafa haldið hreinu og náð í þrjú stig í fyrsta leik í Þjóðadeildinni.
Knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu er liðið sækir Þjóðverja heim í öðrum leik riðilsins í Þjóðadeild Evrópu næstkomandi þriðjudag.
Stjörnurnar sem skinu skærast í íslenska liðinu í kvöld, í sigrinum gegn Wales í Þjóðadeild kvenna í fótbolta, voru aftastar á vellinum.
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir reyndist hetja íslenska kvennalandsliðsins skipað leikmönnum 23 ára og yngri er liðið mætti Marokkó í vináttuleik í dag.
Þorsteinn Halldórsson hefur valið þá ellefu leikmenn sem verða í byrjunarliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeild UEFA.
Stjörnukonan Sædís Rún Heiðarsdóttir gæti leikið sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland tekur á móti Wales í Þjóðadeild Evrópu í kvöld. Sædís er annar tveggja nýliða í íslenska hópnum ásamt markverðinum Fanneyju Ingu Birkisdóttur.
Glódís Perla Viggósdóttir segist vera mjög upp með sér hvernig Bayern München kynnti nýjan samning hennar við félagið.
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ sem fór fram í morgun.
Sveindís Jane Jónsdóttir bíður spennt eftir fyrstu leikjum Íslands í nýrri Þjóðadeild í fótbolta.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur gert breytingu á hópnum sem mætir Wales og Þýskalandi í Þjóðadeildinni.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, segir að reynsluminni leikmenn þurfi að stíga upp í ljósi mikilla fráfalla landsliðskvenna í komandi landsliðsverkefni. Þó kveðst hann vonsvikinn með að fáir leikmenn í Bestu deild kvenna hafi gert raunverulegt tilkall til landsliðssætis.
Á morgun, föstudag, verður hleypt af stokkunum nýjum hlaðvarpsþætti sem ber nafnið Gula spjaldið en í þættinum verða allar helstu fréttirnar og vendingarnar úr knattspyrnuheiminum, bæði hér heima fyrir og erlendis, teknar fyrir í opinni dagskrá og á öllum helstu hlaðvarpsveitum af reynslumiklum sérfræðingum um fótbolta.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, segist ekki hafa valið Bryndísi Örnu Níelsdóttur, leikmann Vals og markahæsta leikmann Bestu deildarinnar í landsliðið því hún sé ekki alveg klár í það.
Sandra Sigurðardóttir snýr aftur í íslenska landsliðið í fótbolta, fyrir komandi leiki liðsins í Þjóðadeild UEFA, eftir að hafa tekið markmannshanskana af hillunni og gefið kost á sér í landsliðið á ný. Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, segist standa og falla með ákvörðuninni að taka Söndru inn í landsliðið á nýjan leik þrátt fyrir að hún hafi spilað fáa leiki undanfarið.
Sandra Sigurðardóttir snýr aftur í íslenska fótboltalandsliðið fyrir leikina gegn Wales og Þýskalandi í Þjóðadeildinni.
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem hópur kvennalandsliðsins fyrir fyrstu tvo leikina í Þjóðadeildinni var kynntur.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, verður frá keppni næstu mánuðina eftir að hafa meiðst illa á hné.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er fjórtánda besta landslið heims samkvæmt nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem var gefinn út í morgun.
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, tilkynnti um það á samfélagsmiðlum í dag að hún ætti von á sínu öðru barni.
Íslenska U-19 ára kvennalandsliðið er úr leik á lokakeppni Evrópumótsins 3-1 eftir tap gegn Frakklandi. Frakkar sigra riðilinn og fara áfram í undanúrslit mótsins, þar sem þær mæta Þýskalandi. Spánn fer einnig áfram í undanúrslit og mætir þar Hollandi.
Ísland vann afar mikilvægan 2-0 sigur gegn Tékklandi. Íslenska liðið var betra á öllum sviðum og sigurinn var verðskuldaður. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom Íslandi yfir snemma í fyrri hálfleik. Snædís María Jörundsdóttir gerði síðan út um leikinn á 85. mínútu þegar hún bætti við öðru marki.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Hún lék sinn síðasta landsleik þegar Ísland sigraði Austurríki, 0-1, í vináttulandsleik í gær.
Ísland tapaði 3-0 gegn Spáni í fyrsta leik sínum á lokakeppni Evrópumóts U19-ára landsliða sem fram fer í Belgíu. Sigur spænska liðsins var sanngjarn en stelpurnar okkar mæta Tékkum á föstudag.
Ísland mætti Austurríki í vináttulandsleik ytra nú í kvöld. Þetta var í annað sinn sem liðin mætast en síðasti leikur var lokaleikur riðlakeppni EM árið 2017 þegar lið Íslands tapaði 3-0. Annað var uppi á teningnum í dag og kláruðu stelpurnar okkar þetta verkefni í 0-1.
Ísland tapaði 1-2 gegn Finnlandi í vináttulandsleik. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins, var svekkt með frammistöðuna í kvöld.
Berglin Rós Ágústsdóttir skoraði eina mark Íslands er liðið mátti þola 2-1 tap gegn Finnlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Hún segist hafa séð margt jákvætt í leik íslenska liðsins sem hægt sé að taka með sér í næsta leik.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Finnum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands eftir að Eveliina Summanen og Jutta Rantala höfðu komið Finnum tveimur mörkum yfir.
Tvær öflugar knattspyrnukonur sem hafa gefið íslenska kvennafótboltanum mikið í gegnum árin verða heiðraðar í kvöld.
Anna Björk Kristjánsdóttir er kominn heim í landsliðsverkefni en hún er einnig á tímamótum. Anna Björk er nefnilega að flytja heim frá Ítalíu og ætlar að klára tímabilið með Val í Bestu deildinni.