Fótbolti

Blaða­manna­fundur KSÍ: Þor­steinn til­kynnti hópinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson tilkynnir hópinn fyrir leikina gegn Noregi og Frakklandi í dag.
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson tilkynnir hópinn fyrir leikina gegn Noregi og Frakklandi í dag. vísir/vilhelm

Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem hópur kvennalandsliðsins fyrir síðustu tvo leiki þess í riðli 2 í A-deild Þjóðadeildarinnar var tilkynntur.

Fundurinn hófst klukkan 13:15 og var í beinni útsendingu á Vísi. Upptöku frá fundinum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Blaðamannafundur A-landsliðs kvenna

Ísland mætir Noregi í Þrándheimi 30. maí og Frakklandi á Laugardalsvelli 3. júní.

Íslendingar eru með þrjú stig í 3. sæti riðilsins. Íslenska liðið hefur gert þrjú jafntefli og tapað einum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×