Fótbolti

Lygilegur upp­gangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Amin Cosic er hér í leiknum á Villa Park í vikunni, hans fyrsta í Meistaradeild Evrópu.
Amin Cosic er hér í leiknum á Villa Park í vikunni, hans fyrsta í Meistaradeild Evrópu. Getty

„Þetta var bara ógleymanlegt,“ segir Amin Cosic sem varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður hjá Viking gegn Aston Villa. Amin lék með Njarðvík í Lengjudeildinni fyrir rétt rúmu ári og upprisa hans verið hröð.

„Ég var bara eitthvað að hita upp og við svo fengum mark á okkur. Svo var bara kallað á mig og já, ég var bara svona smá sjokki. Ég kom eitthvað inn á þarna og vinir mínir voru mættir á leikinn, þannig að þetta var alveg svakaleg tilfinning. Fullt af manns á vellinum og geggjaður völlur,“ segir Amin í samtali við íþróttadeild Sýnar.

Óhætt er að segja að sími Amins hafi sprungið um kvöldið, þar sem Amin hafði vart undan að svara hamingjuóskum.

„Jú, jú, síminn eyðilagðist næstum því í gær. Fullt af skilaboðum frá félögum og fjölskyldu og bara fjölskyldu alls staðar, í Bosníu og vinum hérna heima. Það var bara fullt að gerast,“ segir Amin.

Bætti á sig átta kílóum af vöðvum

Segja má að upprisa Amins hafi verið hröð. Aðeins rúmlega ár er síðan hann var í samskonar upphitun og kom inn á sem varamaður hjá Njarðvík í Lengjudeildinni hér heima.

Þaðan fór Amin til KR á miðju síðasta sumri og ári síðar farinn til Noregsmeistara Viking í Noregi. Menn vesturfrá höfðu vart séð aðrar eins framfarir og hjá Amin síðasta vetur, fyrir yfirstandandi tímabil.

Hann bætti á sig heilum átta kílóum af vöðvum síðasta vetur.

„Ég var alltaf 72 kíló eða eitthvað, svo fór ég í botnlangaaðgerð í lok nóvember. Ég mátti ekki byrja að æfa fyrr en í janúar eða eitthvað en ég byrjaði að æfa bara í desember strax, bara viku eftir atvikið. Af því ég bara vildi ekki detta úr hópi og ég hugsaði bara: „Þetta er minn tími, ég þarf núna að sýna hvað ég get svo ég get verið að spila næsta tímabil,“ segir Amin.

Í ræktinni meðan aðrir djömmuðu

Amin fór nánast daglega í ræktina og tók aukaæfingu að kvöldi til eftir hefðbundna fótboltaæfingu um morguninn. Hann var sérstaklega duglegur að æfa á helgarkvöldin meðan aðrir lyftu sér upp.

„Það var bara gymmið. Ég veit ekki hversu margir föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld fóru í þetta. Ég elskaði að fara þegar enginn var að æfa. Þá leið mér svona: „Ókei, ég er að gera meira, ég er að gera meira,““ segir Amin og sagan segir að aukaæfingin skapi meistarann.

Amin Cosic fagnar marki með Njarðvík fyrir ári síðan.knattspyrnudeild Njarðvíkur

„Ég fór oft bara um kvöldin upp í KR. Ég kláraði fyrst æfingu á morgnana og fór svo sjálfur um kvöldið bara átta, níu, tíu um kvöldið bara taka styrktaræfingu. Það voru helvíti margar æfingar sem fóru í það að styrkja sig og fá átta kíló af vöðvum á sig. Svo þurfti maður líka að byrja að borða aðeins hollar sko,“ segir Amin sem hafði ekki hugað mikið að mataræðinu fram að því.

Segja má því að botnlangaaðgerð síðasta vetrar hafi verið vel heppnuð og vel gengið síðan.

„Ég held það hafi verið besta botnlangaaðgerð í sögunni.“

Hluta viðtalsins má sjá í samfélagsmiðlafærslunni efst og á öllum samfélagsmiðlum Vísis.

Heyra má viðtalið í heild í hlaðvarpsspilaranum í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir þættinum Besta sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×