Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 24. október 2026 16:37 Þórsarar geta skiljanlega fagnað vel í kvöld. Guðmundur/Vísir Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var að vonum í skýjunum eftir 2-1 sigur liðsins gegn FH í lokaumferð Bestu deildar karla í Laugardalnum í dag. Með sigrinum tryggðu Þórsarar sér áframhaldandi sæti í efstu deild að ári, eftir afar krefjandi tímabil þar sem liðið hafði meðal annars tapað sjö leikjum í röð. „
Tilfinningin er bara mjög góð. Frábær. Þetta er fyrir fólkið sem er komið hingað að styðja okkur, fyrir Gedda Ara og stjórnina sem stóð með okkur, mér og teyminu mínu,“ sagði Sigurður eftir leik. Hann var sérstaklega stoltur af leikmönnum sínum og þjálfarateyminu sem tókst að snúa erfiðri stöðu við á síðari hluta tímabilsins. „Þetta er fyrir teymið mitt sem vann svo góða vinnu í sumar. Við vorum í svo svakalegri brekku þarna um mitt tímabil.“ „Það voru allir búnir að dæma okkur niður“ Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, má vera stoltur af sínum leikmönnum í dag.Hulda/Vísir Sigurður var greinilega með ýmislegt á hjarta eftir sigurinn og sendi gagnrýnendum liðsins skýr skilaboð. Hann taldi Þórsara ekki hafa fengið nægilega mikla viðurkenningu fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. „Það voru allir búnir að dæma okkur niður. Umfjöllunin um okkur var bara að við værum lélegastir í deildinni. Þó að við séum að klára hérna 30 stig þá er enn verið að kalla okkur lélegasta lið deildarinnar.“ Sigurður sagði árangurinn sýna að það væri fleira sem skipti máli í knattspyrnu en tölfræði og boltaeign. „Ég skora á fólk að endurskoða það aðeins því að fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og eitthvað svona kjaftæði að halda bolta.“ Hann sagði samheldni og baráttuanda hafa verið lykilinn að því að Þórsarar héldu sér uppi. „Þetta er bara hjartað í þessari stóru fjölskyldu og það er rosalega stórt.“ Skorar á gagnrýnendur að hjálpa frekar en að rífa niður Sigurður beindi einnig orðum sínum að þeim Þórsurum sem höfðu misst trúna á liðinu þegar illa gekk. „Þegar það gengur vel þá er frábært. Þegar það er brekka þá eru of margir Þórsarar sem hjálpa ekki til og það er bara þannig. En rödd hinna er miklu sterkari og þess vegna komumst við í gegnum þetta.“ Hann sagði trúna á verkefnið aldrei hafa horfið innan hópsins, jafnvel þegar úrslitin voru hvað verst. „Við trúðum því bara alltaf að það væri gott í gangi þó að við hefðum tapað sjö leikjum í röð. Miðað við hvað við lögðum í þetta og hjartað í þessu þá er þetta svo sannarlega verðskuldað.“ Þá nefndi hann sérstaklega starfsfólk félagsins sem hefði haldið í jákvæðnina á erfiðum tímum. „Það var fólk eins og Anna á skrifstofunni. Hún kom alltaf inn dansandi og trúði á okkur.“ Sigurður hvatti þá sem hefðu gagnrýnt liðið og þjálfarateymið til að hugsa sinn gang. „Ég skora á þá Þórsara sem voru búnir að dæma okkur niður og kalla okkur lélega í fótbolta að hugsa aðeins næst þegar illa gengur og reyna að hjálpa til í staðinn fyrir að berja niður.“ „Farið að taka okkur alvarlega“ Leikurinn gegn FH var afar fjörugur og Þórsarar þurftu að hafa mikið fyrir sigrinum. Sigurður viðurkenndi að spennustigið hefði verið hátt á hliðarlínunni. „Púlsinn var bara hár, skilurðu. Geggjaður leikur og hjartað í þessu. Það voru svo margir að spila vel hérna.“ Hann var sérstaklega ánægður með frammistöðu ungra leikmanna Þórs og taldi nokkra þeirra eiga fullt erindi í atvinnumennsku erlendis. „Það eru fjórir krakkar hérna inni á. Ef umboðsmennirnir geta ekki selt þessa stráka þegar þeir fara út eftir tímabilið þá verða þeir að fara að finna sér aðra vinnu.“ Sigurður nefndi einnig sérstaklega Ásbjörn Lyngdal, varnarmann liðsins, sem hann taldi ekki hafa fengið verðskuldaða athygli. „Það kom einhver listi um daginn yfir efnilegustu hafsenta á Íslandi. Hann var ekki nálægt þeim lista.“ Þjálfarinn lauk þessum hluta viðtalsins með skýrum skilaboðum. „Bara virðingu fyrir því sem er í gangi í Þorpinu og farið að taka okkur alvarlega.“ „Elska þetta lið og þessa stemningu“ Sigurður er samningsbundinn Þór og gaf sterklega til kynna að hann hygðist halda áfram með liðið á næsta tímabili. „Ég er með samning og elska þetta. Ég elska þetta lið og elska þessa stemningu.“ Hann sagðist þó ætla að gefa sér tíma til að jafna sig eftir átök tímabilsins og fara yfir stöðuna. „Maður sest aðeins niður, slakar á og lítur til baka yfir tímabilið.“ Sigurður hrósaði jafnframt stjórn Þórs í hástert fyrir stuðninginn við þjálfarateymið á erfiðum tímum. „Ég held að þeir geti bara farið að halda námskeið um það hvernig á að vera stjórnarmaður.“ Hann sagðist að lokum ekki búast við öðru en að halda áfram með Þór og lagði áherslu á að hann hefði mikinn áhuga á að byggja áfram á því starfi sem unnið hefði verið hjá félaginu.
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Íslenski boltinn Umfjöllun og viðtöl: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Pólland - Ísland | Seinni slagur við EM-gestgjafa Handbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Leik lokið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Leik lokið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Víkingur - Fram | Lokaleikur tímabilsins Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn