Hundar

Þrjú ungmenni grunuð um sleðahundadrápin
Þrjú ungmenni, öll undir sakhæfisaldri, eru grunuð um að hafa drepið sleðahundana tíu sem fundust dauðir á eyju við grænlenska bæinn Qasigiannguit aðfararnótt mánudagsins.

Tíu sleðahundar drepnir á Grænlandi
Tíu sleðahundar voru skotnir til bana á Grænlandi aðfaranótt mánudags. Lögregla telur að þjófnaður á mótorbát og rifflum um nóttina tengist málinu.

Kindur vilja ekki leika við hunda
En hundar vilja gjarnan leika við kindur. Þetta fer ekki saman. Hundaeigendur þekkja ekki allir eðli kinda sem dýrategundar. Fólk sem heldur lausan hund í dreifbýli eða fólk sem fer með hunda í víðavangslausagöngur á þeim svæðum þar sem kindur eru haldar þarf að þekkja grundvallarmuninn á atferliseðli kinda og hunda.

Guðmundur starfar sem hundagangari: „Til í að gera þetta að ævistarfinu“
Guðmundur Ingi Halldórsson starfar sem atvinnuhundagangari, eitthvað sem þekkist meira erlendis.

Réttur dagur til að láta svæfa hund vegna elli eða hægfara veikinda
Þegar hundar veikjast eða slasast illa þá leiðbeinir dýralæknir um hvenær óhjákvæmilegt er að svæfa.

Botna ekkert í dauða tíu hunda á Austurlandi
Yfirdýralæknir MAST segir óútskýrðan dauða tíu hunda á Austurlandi einstakt mál sem stofnunin botni ekki í að svo stöddu. Málið er nú á borði lögreglu.

Hundadauðinn kominn á borð lögreglu
Mál tíu hunda sem fundust dauðir fyrr í mánuðinum án skýringar er komið á borð lögreglu. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að verið sé að rannsaka hvort eitrað hafi verið fyrir þeim.

Fann tíu hunda sína dauða og grunar ódæði: „Allt sem ég stefndi að í lífinu var tengt hundunum“
Laugardaginn 8. júlí síðastliðinn kom Askur Bárðdal Laufeyjarson að tíu hundum sínum dauðum. Askur bíður eftir niðurstöðu krufninga en grunar að hundunum hafi verið unnið mein.

Labbaði inn á völl með hund sem meig á samherja hans
Fótboltamaður í Kólumbíu varð fyrir því að hundur sem hann fór með inn á völlinn meig á samherja hans.

Magnaður mótorhjólahundur á Selfossi
Hundurinn Stormur Snær á Selfossi er engin venjulegur hundur því það sem honum þykir skemmtilegast að gera er að sitja á mótorhjólum eigenda sinna og rúnta með þeim um landið. Stormur er meira að segja með sérstök mótorhjólagleraugu og nammi í mótorhjólatöskunni sinni.

Skipverja og hundi bjargað eftir marga mánuði á sjó
Áströlskum skipverja og hundi hans hefur verið bjargað undan ströndum Mexíkó eftir að hafa verið skipreka í tvo mánuði. Þeir lifðu á engu nema regnvatni og hráum fisk.

Tík bjargað úr klettum
Síðdegis í gær voru tíkin Mýsla og eigandi hennar á ferð um Einstakafjall þar sem eigandi Mýslu var að taka ljósmyndir. Á meðan hann tók myndir hljóp Mýsla frá honum og hvarf niður fyrir klettabrún.

Breytir hundum í listaverk
Á snyrtistofu Gabriel Feitosa getur allt gerst. Bernedoodles hundar umbreytast í gíraffa og kjölturakkar líkjast Pokémon. Upphalningarnar kosta frá 500 til 1200 Bandaríkjadala. Hundasnyrtistofan er staðsett í San Diego en sjálfur er Gabriel ættaður frá Brasilíu. Stofuna opnaði hann árið 2018 og hefur tíu starfsmenn á sínum snærum sem snyrta að meðaltali tuttugu hunda á degi hverjum.

Ekki ástæða til að vara íslenska hundaeigendur við
Matvælastofnun sér ekki ástæðu til að vara hundaeigendur sérstaklega við smitandi hósta meðal hunda að óbreyttu. Ekki eru fleiri tilvik um smitaða hunda nú en áður. Langstærstur hluti hunda hér á landi er bólusettur gegn flestum veirum.

„Það er ekkert grín fyrir hundana að fá þetta“
Hundaeigandi sem missti einn hund sinn sem veiktist af svokölluðum hótelhósta og á tvo hunda til viðbótar sem eru veikir vill vara hundaeigendur við að fara með dýr sín á fjölfarin hundasvæði á meðan pestin gengur yfir. Hann segist hafa átt hunda í mörg ár en aldrei lent í slíkum veikindum líkt og nú.

Schäfer-ræktunar mæðgur reyna aftur að hnekkja úrskurði siðanefndar
Mál mæðgnanna í Schäfer-hunda ræktuninni Gjósku gegn Hundaræktunarfélagi Íslands (HRFÍ) er enn á ný komið til héraðsdóms. Krefjast þær að úrskurði um fimmtán ára bann verði hnekkt.

Már þarf ekki að greiða kostnað vegna leiðsöguhundarins Max
Matvælaráðuneytið greindi frá því nú síðdegis að blindur maður þurfi ekki að greiða himinháan kostnað sem fylgi því að taka leiðsöguhundinn sinn með í frí til landsins. Margra mánaða barátta við kerfið virðist því vera á enda.

Fjölskylda á Ítalíu leitar Tipsý: „Ég er búin að grenja úr mér augun“
Fjölskyldufrí Maríönnu Magnúsdóttur tók snögga beygju þegar Tipsý, einn fjögurra hunda fjölskyldunnar, týndist degi fyrir brottför. Hennar er nú leitað en Maríanna biðlar til fólks að láta dýraleitarþjónustuna Dýrfinnu vita, verði einhver hennar var.

„Líður eins og það sé verið að segja mér að skilja augun mín eftir“
Már Gunnarsson, söngvari og námsmaður, þarf að borga háan kostnað í hvert skipti sem hann heimsækir fjölskylduna til Íslands með leiðsöguhundinn sinn. Hann segir það eina í stöðunni að láta hundinn frá sér verði ekkert gert.

Samningi rift vegna kaupa á pug-hundi sem reyndist fatlaður
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur viðurkennt rétt manns til að rifta samningi um kaup á hreinræktuðum hundi af tegundinni pug þar sem í ljós hafi komið að hundurinn hafi reynst fatlaður.

Dimma gæðir sér á pönnuköku úr munni eiganda síns
Pönnukökur eru í mestu uppáhaldi hjá Dimmu, sem er taminn hrafn, sem býr í Heiðmörk í Reykjavík. Dimma er ánægðust þegar eigandinn heldur á henni og biður hana að gera ýmsar æfingar. Á heimilinu er líka risa hundur, sem heitir Rjúpa.

Fyrsti leiðsöguhundurinn á Selfossi
Fyrsti blindrahundurinn á Selfossi er nú komin til starfa en það er hún Hilda, sem er labrador og fjórtándi leiðsöguhundurinn á Íslandi. Hilda þarf að læra tuttugu og sex skipanir hjá notenda sínum. Fullþjálfaður leiðsöguhundur kostar um sex milljónir króna.

Hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum
Í lögum um fjöleignahús er kveðið á um að hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi sé háð samþykki 2/3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. Þá segir að þegar hvorki er um sameiginlegan inngang né stigagang að ræða er samþykkis annarra eigenda ekki þörf fyrir hunda- og kattahaldi í húsinu.

Rekin úr íbúðinni vegna smáhunds fósturdóttur sinnar
Monika Macowska leigjandi er afar ósátt við hvernig staðið var að riftun leigusamnings hennar og á hvaða forsendum. Smáhundur sem hún fékk fyrir fósturdóttur sína sem er að eiga við áfallastreituröskun eftir alvarlegt áfall er uppgefin ástæða uppsagnarinnar.

„Hann getur ekki gert neinum mein og er besti vinur allra“
„Ég gæti ekki ímyndað mér að lifa án hans,“ segir dóttir konu sem tók að sér hund systur sinnar sem lést úr krabbameini. Nágrannar eru ósáttir við veru hundsins í húsinu þrátt fyrir að þeir búi ekki á sama stigagangi. Enginn hefur borið fyrir sig ofnæmi né ónæði.

Berjast fyrir að halda hundi sem hjálpaði systur í krabbameinsbaráttu
Systir konu sem lést úr krabbameini sér fram á að missa hundinn sem var henni við hlið í dauðastríðinu. Málið er komið fyrir kærunefnd húsamála.

Barnabarnið kom grátandi er hundur varð ketti að bana í Vogum
Hundur varð ketti að bana í Vogum á Vatsnleysuströnd í gær. Íbúi í Vogum sem tókst að koma kettinum undan hundinum segir að um sé að ræða skelfilegt óhapp. Hún biðlar til eiganda hunda að passa að hafa þá í bandi.

Lést af sárum sínum eftir árás hunds
Karlmaður lést í Derby á Englandi í gær eftir árás hunds. Lögregla aflífaði hundinn á vettvangi.

Tindur fékk lifrarpylsu sem þakklætisvott eftir níu ára þjónustu
Fíkniefnaleitarhundurinn Tindur hefur lokið þjónustu sinni hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Þar hefur hann verið í níu ár en sem þakklætisvott fékk hann frá samstarfsfólki sínu lifrarpylsu.

Hunda- og kattafólk snýr bökum saman fyrir frumvarp
Hunda og kattaeigendur hafa sameinast um undirskriftalista til stuðnings frumvarpi um breytingu á lögum um fjöleignarhús. Samkvæmt frumvarpinu yrði katta og hundahald í fjölbýlishúsum ekki háð leyfi annarra íbúa.