

Alþjóða knattspyrnusambandið hætti við fáránleikann og lét undan pressunni þegar sambandið ákvað að taka ekki tilboði frá Sádi-Arabíu um að vera einn af styrktaraðilum heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta í sumar.
Alþjóða leikmannasamtökin FIFPRO, kalla nú formlega eftir því að Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, jafni aðstöðu og almennan hlut kvenna á heimsmeistaramótum miðað við hvað karlpeningurinn fær að njóta á samskonar mótum.
Stórstjarna franska kvennalandsliðsins í fótbolta og ein allra sigursælasta knattspyrnukona sögunnar gæti verið með á heimsmeistaramótinu í sumar eftir allt saman.
Nú þegar aðeins fjórir mánuðir eru í að HM kvenna í fótbolta hefjist í Eyjaálfu hefur Corinne Diacre verið rekin úr starfi landsliðsþjálfara Frakka, eftir mikla óánægju nokkurra leikmanna með hennar störf.
Corinne Diacre er þjálfari franska kvennalandsliðsins í fótbolta og vill vera það áfram þrátt fyrir að hafa fengið á sig mikla gagnrýni síðustu vikur.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta var hársbreidd frá því að komast á sitt fyrsta heimsmeistaramót í sögunni þegar liðið tapaði í framlengingu í umspilsleik á móti Portúgal í lok síðasta árs.
Allir þurfa góða dæmisögu um að gefast ekki upp því það getur skilað miklum árangri á endanum. Markvörður Evrópumeistara Englendinga í kvennafótboltanum er frábært dæmi um að það borgar sig að halda áfram.
Búist er við því að Corinne Diacre, þjálfari franska kvennalandsliðsins í fótbolta, segi af sér á morgun. Talið er að Noël Le Graët, forseti franska knattspyrnusambandsins, gera slíkt hið sama.
Fyrirliði franska kvennalandsliðsins í knattspyrnu Wendie Renard tilkynnti í dag að hún myndi ekki gefa kost á sér fyrir heimsmeistaramótið í sumar vegna óánægju með forráðamenn landsliðsins.
Alex Morgan var á skotskónum og á metaveiðum þegar bandaríska kvennalandsliðið tryggði sér sigur í SheBelieves æfingamótinu í nótt.
Portúgalska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í dag með 2-1 sigri í úrslitaleik á móti Kamerún.
Evrópumeistarar Englands héldu sigurgöngu sinni áfram í gær þegar liðið vann 4-0 sigur á Suður-Kóreu í æfingaleik.
Hin íslensk-kanadíska Cloé Eyja Lacasse er í landsliðshópi Kanada á SheBelieves æfingamótinu.
Leikmenn kanadíska kvennalandsliðsins í fótbolta eru hættar í verkfalli eftir að forráðamenn kanadíska knattspyrnusambandsins hótaði leikmönnum og leikmannasamtökum þeirra með hundruðum milljóna í skaðabótakröfur.
Alex Morgan, ein af þremur bestu knattspyrnukonu heimsins samkvæmt FIFA, hefur gagnrýnt mögulegan styrktarsamning milli heimsmeistaramóts kvenna og Sádi-Arabíu.
María Þórisdóttir er í nýjasta hópnum hjá norska kvennalandsliðinu í fótbolta en landsliðshópurinn var tilkynntur í dag.
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, ætlar að styrkja enn frekar tengsl sín við Sádi-Arabíu með því að taka Sáda inn í hóp styrktaraðila sína á komandi heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta.
Eftirspurnin eftir miðum á upphafsleik Ástralíu á HM kvenna í fótbolta í Eyjaálfu næsta sumar hefur verið slík að mótshaldarar hafa neyðst til að skipta um leikvang.
Vivianne Miedema, framherji Arsenal á Englandi og hollenska landsliðsins, sleit krossband í vikunni. Enska félagið staðfesti tíðindin í dag.
Nýr samningur við leikmenn bandaríska kvennalandsliðsins sér til þess að landsliðskonurnar frá Bandaríkjunum græða miklu meira á góðum árangri karlalandsliðsins á heimsmeistaramótinu í Katar en þegar þær urðu sjálfar heimsmeistarar árið 2019.
Hannah Hampton er engin fyrirmyndar knattspyrnukona ef marka má nýjustu fréttir úr herbúðum Evrópumeistara Englands.
María Þórisdóttir er komin aftur inn í norska landsliðið í fótbolta eftir að hafa ekki verið valin í fyrstu landsleikina undir stjórn nýja þjálfarans Hege Riise, sem tók við liðinu eftir vonbrigðin á EM í sumar.
Dregið var í riðla fyrir lokakeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta árið í morgun.
Tap íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur áhrif á undirbúning margra þjóða fyrir heimsmeistaramótið á næsta ári.
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur hafnað mörgum tilboðum í útsendingarétt á heimsmeistarakeppni kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.
Klárum þetta augljósa fyrst. Stéphanie Frappart dómari óð í villu og svíma í umspilsleik Portúgals og Íslands á þriðjudaginn og kom sér vel fyrir á listanum yfir óvini íslenska ríkisins. En galin frammistaða hennar tók líka athyglina frá slakri spilamennsku Íslands meðan enn var jafnt í liðum. Og spilamennska sem er þessi er ekki einsdæmi hjá íslenska liðinu.
Þrátt fyrir gríðarleg vonbrigði leikmanna kvennalandsliðsins eftir tap í Portúgal á þriðjudaginn gáfu landsliðskonurnar sér tíma, þegar tárin voru þornuð, og sinntu hörðustu aðdáendum sínum.
Írska kvennlandsliðiðinu í fótbolta tókst það á þriðjudagskvöldið sem okkar stelpum tókst ekki. Írland tryggði sér þá sæti á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi með sigri á Skotum.
Það eru tuttugu klukkustundir síðan vekjaraklukkan hringdi í vesturbæ Reykjavíkur. 183 Íslendingar sitja á flugvellinum í Porto og bíða eftir því að komast aftur á klakann. Síðasti bjórinn teygaður. D-vítamínsöfnun dagsins er lokið. Hið daglega amstur er handan við hornið. HM draumurinn er úti. Þetta hefði alls ekki þurft að enda svona.
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta þurfti að sætta sig við tap á móti hálfgerðu varaliði Spánar í vináttulandsleik í Pamplona í gær.