Fasteignamarkaður

Smekkleg íbúð Rakelar Tómas til sölu
Rakel Tómasdóttir listakona hefur sett stílhreina íbúð sína við Grettisgötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 54,9 milljónir.

Hús Ingu Lindar það dýrasta sem selst hefur á Íslandi
Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona og einn eigenda Skot productions, seldi 760 fermetra einbýlishús sitt að Mávanesi 17 í Garðabæ á 850 milljónir króna. Um er að ræða dýrasta einbýlishús sem selst hefur hér á landi.

Fasteignasamningar í uppnámi vegna stíflu í brunabótamati
Dæmi eru um að fasteignaviðskipti séu í uppnámi vegna mikils fjölda beiðna um brunabótamat hjá Hús- og mannvirkjastofnun. Endurmatsbeiðnir í febrúar voru á pari við fjölda slíkra beiðna yfir átján mánuði.

Stærðarinnar vínkjallari undir enn stærra húsi
Á fasteignavefjum landsins kennir ýmissa grasa og oft má rekast á áhugaverðar eignir þar. Eina slíka er að finna í Kópavogi. Um er að ræða einbýlishús með 65 fermetra vínkjallara. Eignin hefur verið seld með fyrirvara.

Listamannaíbúð til sölu í Hafnarfirði
Reinar Ágúst Foreman myndlistamaður og eiginkona hans, Jenný Lárentínusardóttir, hafa sett ævintýralega íbúð við Nönnustíg 8 í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 94,9 milljónir.

Lífeyrissjóðir fái eignir Heimstaden á 15 milljarða afslætti
Sjóður í eigu nokkurra lífeyrissjóða í stýringu Stefnis er sagður munu greiða 61 milljarð króna fyrir allt hlutafé í leigufélaginu Heimstaden. Fasteignamat eigna Heimstaden er tæpir 76 milljarðar króna.

Opnað á sölu húsa í Grindavík
Fólk sem vill selja íbúðarhúsnæði sitt í Grindavík til ríkissjóðs getur nú gert það. Eigendur um níu hundruð íbúða í Grindavík geta nýtt sér úrræði þetta sem fer í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu.

Dökk ský á leigumarkaði
Þegar talað er um húsnæðismál á opinberum vettvangi hafa leigjendur oft þurft að mæta afgangi. Að vissu leyti er það skiljanlegt, þar sem meirihluti landsmanna er utan leigumarkaðar og erfiðara hefur verið að safna gögnum um þann markað með jafn ítarlegum hætti og gert hefur verið fyrir fasteignamarkaðinn.

Glæsivilla Ingu Lindar keypt inn í Atlanta veldið
Eitt glæsilegasta einbýlishús landsins að Mávanes 17 í Garðabæ hefur verið selt Hannesi Hilmarssyni, einum eiganda flugfélagsins Atlanta og eiginkonu hans Guðrúnu Þráinsdóttur. Húsið var í eigu Ingu Lindar Karlsdóttur sjónvarpskonu og eiganda Skot Productions.

Sjarmerandi eign í gamla Vesturbænum
Við Ægisgötu í Vesturbæ Reykjavíkur má finna fallega og mikið endurnýjaða 94 fermetra íbúð á annarri hæð í steinsteyptu húsi frá árinu 1954. Ásett verð er 82,5 milljónir.

Sturlaðar arðsemiskröfur leigusala grafa undan lífskjörum leigjenda
Arðsemiskrafa leigusala á íslenskum leigumarkaði er um það bil tíu sinnum hærri en þeirra sem fjárfesta á almennum hlutabréfamarkaði. Slík krafa um arðsemi kemur til þrátt fyrir að ávöxtun á húsnæðismarkaði sé töluvert meiri en á hlutabréfamarkaði.

Íbúð Bergsteins í Kastljósinu til sölu
Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á RÚV, hefur sett íbúð sína við Drekavog í Reykjavík á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 63,9 milljónir.

Er eldra fólk auðlind peningaaflanna?
Málaflokkur öldrunarmála og öll sú margvíslega þjónusta sem veitt er af fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum hefur vafalaust alla burði til þess að vera gróðavænlegur bransi þar sem hægt væri að græða á tá og fingri.

Arion hyggst stórauka eignir í stýringu og skoðar að stofna fasteignafélag
Arion banki, sem er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði, stefnir á að auka eignir í stýringu samstæðunnar um meira en fjörutíu prósent á næstu fimm árum. Þá hefur bankinn hefur til skoðunar að stofna fasteignafélag á íbúðamarkaði sem mögulega yrði skráð í Kauphöll.

Fasteignafélag Festar fær nýtt nafn
Festi hefur breytt nafninu á Festi fasteignum, einu ekstrarfélaga sinna sem sérhæfir sig í útleigu atvinnuhúsnæðis til félaga í verslunarrekstri og eru fasteignirnar að mestu leyti í útleigu til félaga innan samstæðunnar, það er N1, Krónunnar, Elko og Bakkans. Félagið hefur fengið nafnið Yrki eignir.

Handboltahjónin í Garðabæ selja húsið
Þau gerast varla meiri íþróttahjón en Tinna Jökulsdóttir og Vilhjálmur Halldórsson í Garðabænum sem hafa sett raðhúsið sitt í Brekkubyggð á sölu.

35 fermetrar á 220 þúsund krónur
Dæmi eru um það að leiguverð á litlum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sé komið yfir sex þúsund krónur á fermetrann. Leiguverðið er langt yfir meðalfermetraverði á höfuðborgarsvæðinu.

Breyttu hlöðu í íbúð: „Þú sleppir ekki góðu brasi“
Bryndís Óskarsdóttir og maðurinn hennar, Ólafur Aðalgeirsson, eða Dísa og Óli eins og þau eru alltaf kölluð, hafa síðustu ár unnið að því að breyta hlöðu í Glæsibæ í Hörgársveit í einbýlishús. Hlaðan er í um tíu mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri.

Líf færðist á markaðinn seinni hluta liðins árs en meðalsölutíminn lengdist
Kaupsamningar á nýliðnu ári voru 9.156 talsins og var heildarfjárhæð þeirra 644,4 milljarðar króna. Þar af voru gerðir 950 kaupsamningar í desembermánuði sem er vel yfir mánaðarmeðaltali ársins, meðal annars vegna magnkaupa á íbúðum sem ætlaðar voru Grindvíkingum.

Ungir fasteignaeigendur tapi öllu við uppkaup ríkisins
Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur.

Hafnfirsku athafnahjónin selja slotið
Hjónin á bakvið hönnunarverslunina Systur og makar, Katla Hreiðarsdóttir og Haukur Unnar Þorkelsson, hafa sett sjarmerandi heimili sitt við Mjósund í Hafnarfirði á sölu.

Huggulegustu hommar landsins selja miðbæjarperlu
Pétur Björgvin Sveinsson markaðssérfræðingur og Helgi Ómarsson, ljósmyndari og áhrifavaldaur, hafa sett sjarmerandi íbúð í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Ásett verð er 59,9 milljónir.

Reginn býðst til að að liðka fyrir yfirtöku með sölu eigna
Fasteignafélagið Reginn óskaði á föstudag eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið í tengslum við fyrirhugaðrar yfirtöku á öllu hlutafé Eikar fasteignafélags. Reginn býðst til að selja eignir til að vinna gegn skaðlegum áhrifum á samkeppni vegna samrunans.

Kannast ekkert við að húsið sé til sölu
Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi Viðreisnar í Hafnarfirði kannast ekkert við að hús hans á Nönnustíg sé til sölu, þvert á það sem haldið er fram í Smartlandi Morgunblaðsins. „Lýsandi fyrir Moggann, það er hálfur sannleikurinn,“ segir Jón Ingi.

Hagkvæmara að leigja en eiga á höfuðborgarsvæðinu
Töluvert hagkvæmara er að leigja heldur en eiga á höfuðborgarsvæðinu þessa stundina, þar sem mánaðarlegar greiðslur af óverðtryggðum lánum eru allt að 40 prósentum umfram leiguverði.

Sjarmerandi hönnunarheimili með útsýni til sjávar
Við Ásbúðartröð í Hafnarfirði má finna glæsilega endurnýjaða sérhæð á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni til sjávar. Um er að ræða 168 fermetra eign í fjölbýlishúsi frá árinu 1954.

Eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæði borgarinnar hefur opnað - Regus Kirkjusandur
Eitt glæsilegasta skrifstofurými landsins opnaði við Kirkjusand í Reykjavík um síðustu mánaðamót. Skrifstofurýmið er heppilegt fyrir allar stærðir fyrirtækja, allt frá einyrkjum til stærri fyrirtækja, og býður upp á frábæra aðstöðu og glæsilega hönnun.

Segir ummæli Helga Pé um fangabúðir í besta falli ósmekkleg
Bæjarstjóri Kópavogsbæjar segir gagnrýni formanns Landssambands eldri borgara og minnihlutans í bæjarstjórn, um áform um uppbyggingu í Gunnarshólma, ómálefnalega og ósmekklega.

Ekkert alvöru inngrip í frumvarpi um Airbnb
Þingmaður segir frumvarp ráðherra um Airbnb íbúðir ekki leiðrétta þá vondu þróun sem hefur átt sér stað á fasteignamarkaði. Löggjafin verði að stíga lengra inn því annars er inngripið lítið sem ekkert til skamms tíma.

Fimm fantaflottar miðbæjarperlur
Í miðborg Reykjavíkur má finna fjölda eigna í öllum stærðum og gerðum. Sögufræg hús, nýjar eignir, lúxusíbúðir og allt þar á milli. Lífið á Vísi tók saman nokkrar eignir sem má finna í póstnúmeri 101.