Skimun fyrir krabbameini

Sigurbjörn Árni með tandurhreinan ristil
Facebook-vinir Sigurbjörns Árna Arngrímssonar, ráku upp stór augu í dag – en skólameistarinn á Laugum birti glaðbeittur myndir af ristli sínum.

Tökum höndum saman í baráttunni gegn krabbameinum
Fyrir 22 árum sat ég fyrir framan Guðmund lækni þar sem hann tilkynnti mér að ástæðan fyrir slappleika mínum og veikindum væri hvítblæði. Mín fyrsta hugsun á var að ég myndi missa hárið en svo varð ég hrædd við að deyja og sorgmædd að mögulega myndi ég aldrei verða gömul.

Markvissar aðgerðir í rétta átt
Í desember bárust afar ánægjuleg tíðindi frá heilbrigðisráðuneytinu af skipan samráðshóps sem ætlað er að vinna aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum til fimm ára.

Snemmgreining krabbameina, mjög mikilvægt hagsmunamál
Á Íslandi greinast að meðaltali 1853 einstaklingar á hverju ári með krabbamein. Úr krabbameinum deyja að meðaltali 628 manns árlega og krabbamein er algengasta dánarorsök fólks á aldrinum frá 35 til 79 ára. Miklu máli skiptir að krabbamein greinist snemma enda eru batahorfur þá betri auk þess sem minna íþyngjandi meðferð er líklegri en ella. Mjög mikið er því í húfi.

Sigraðist á eistnakrabbameini þrátt fyrir að bíða í marga mánuði með að fara til læknis
Hinn 32 ára gamli Henri Lansbury lagði knattspyrnuskóna nýverið á hilluna. Í viðtali við Sky Sports staðfesti þessi fyrrverandi miðjumaður að hann hefði sigrast á eistnakrabbameini árið 2016 er hann var leikmaður Nottingham Forest í ensku B-deildinni.

Skoðum brjóstin allt árið
Bleiki mánuðurinn október rennur senn sitt skeið en hann er okkur vitundarvakning um brjóstakrabbamein, algengasta krabbamein sem konur fá. Bara hér á Íslandi greinast ár hvert um það bil 260 konur með sjúkdóminn og tilfellum fjölgar ár frá ári.

Hápunktur Bleiku slaufunnar á Bleika deginum í dag
Bleiki dagurinn er í dag. Krabbameinsfélagið hvetur alla til að sýna konum sem hafa þurft að glíma við krabbamein stuðning með því að taka þátt. Hægt er að klæðast bleiku, halda bleikt boð eða borða eitthvað bleikt.

Markvissar leiðir til að auka þátttöku í brjóstaskimun
Ísland er þátttakandi í norrænni rannsókn þar sem meðal annars var borin saman mæting í brjóstaskimun í Finnlandi, Noregi, Danmörku og Íslandi. Þar var einnig borin saman mæting innfæddra við innflytjendur af öðrum uppruna en vestrænum.

Tími til að skreppa í skimun!
Í tilefni að bleikum október og árlegri vitundarvakningu um brjóstakrabbamein stendur Brjóstamiðstöð Landspítala fyrir átaksverkefninu „skrepp í skimun“ í samstarfi við Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins og Félag kvenna í atvinnulífinu.

Hugleiðingar brjóstaskurðlæknis í Bleikum október
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að núna er Bleikur október. Fatnaður , varasalvar, sápur, nælur og skartgripi má kaupa til styrktar málstaðnum, svo fátt eitt sé nefnt.

Fléttur og bleikar slaufur
Það er mikið áfall að greinast með krabbamein. Heimurinn fer á hvolf. Ekki bara fyrir þann sem greinist heldur fyrir fjölskylduna alla. Fátt annað kemst að og veikindin setja lífið fljótt í aðeins annað samhengi. Krabbamein snertir okkur öll á lífsleiðinni með einum eða öðrum hætti.

Krabbameinsfélagið - samstaðan tryggir metnaðarfullt og fjölbreytt starf
Að greinast með krabbamein er ein stærsta áskorunin í lífi fólks.

Bleikasta partý ársins í Höfuðstöðinni
Eitt bleikasta partý ársins fór fram í Höfuðstöðinni í Elliðarárdal þar sem útgáfa Bleiku slaufunnar var fagnað. Hönnuðir slaufunnar í ár eru gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir.

Forvarnir og áhættuþættir brjóstakrabbameina – þekktu þína áhættuþætti
Það er komin hefð fyrir að október mánuður sé tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum kvenna, með Bleiku slaufunni árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins.

Drifu sig í vel heppnað leggönguboð
Konur fjölmenntu á sérstakt leggönguboð í Ásmundarsal í gær. Tilefnið var undirbúningur og styrktarkvöld fyrir góðgerðargönguna Leggangan sem útivistarhópurinn Snjódrífurnar standa fyrir til stuðnings konum sem þurfa að takast á við ófrjósemi í kjölfar krabbameinsmeðferðar.

Ekki í stuði til að lýsa íþróttum eftir að hafa fengið fregnirnar
Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólastjóri Framhaldsskólans á Laugum og einn ástsælasti íþróttalýsandi þjóðarinnar, hefur glímt við sortuæxli síðastliðin ár. Sjálfur telur hann sig ekki gott dæmi um krabbameinssjúkling, vegna þess að hann hefur aldrei upplifað sig neitt sérstaklega veikan.

Bein útsending: Varðar mig eitthvað um krabbameinsrannsóknir?
Krabbameinsfélagið stendur fyrir málþingi á alþjóðadegi krabbameinsrannsókna. Yfirskrift málþingsins er: „Varðar mig eitthvað um krabbameinsrannsóknir? Já, því vísindin eru leiðin fram á við.“

Krabbameinsgreiningum hjá yngri en 50 ára fjölgað um 80 prósent
Einstaklingum sem greinast með krabbamein áður en þeir verða 50 ára fjölgaði um 79 prósent á árunum 1990 til 2019. Dauðsföllum af völdum krabbameins fjölgaði um 27 prósent í umræddum aldurshóp.

Rannsóknirnar komnar heim og meðalbiðtíminn 12,5 dagar
Öllum sýnasendingum til Danmerkur var hætt fyrir síðustu áramót og biðtími eftir niðurstöðum úr leghálsskimun er nú 12,5 dagar að meðaltali, ef miðað er við fyrstu sjö mánuði ársins.

Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið
Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Á Íslandi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabbamein
Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Segja kerfið ekki búið undir fjölgun krabbameinstilvika
Krabbameinsfélagið skorar á stjórnvöld að setja af stað undirbúning vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar krabbameinstilvika og þeirra sem sigrast á krabbameini eða lifa með krabbameini.

Þjóðþekktir karlmenn sitja fyrir á nýju dagatali Krabbameinsfélagsins
Þjóðþekktir karlmenn prýða dagatal sem nú er til sölu til styrktar átaksins Mottumars. Dagatalið er hluti af herferðinni „Ekki humma af þér heilsuna“ sem vakið hefur mikla athygli á síðustu vikum.

Þegar skelin hverfur – Áskoranir blöðruhálskrabbameins
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein karlmanna á Íslandi. Yfirleitt eru þessi krabbamein hægvaxandi og þeim sem greinast gefst oftar en ekki tækifæri til að ræða næstu skref og mögulegar leiðir við lækni áður en þeir ákveða hvað gera skuli.

Stálheppinn eftir að hafa verið með skemmt eista í fjögur ár
Steinar B. Aðalbjörnsson, starfsmaður Krabbameinsfélagsins, segist stálheppinn að hafa haft betur í baráttu við krabbamein í eista. Hann beið með að láta rannsaka „skemmt“ eistað í fjögur ár frá því að hann fór fyrst að finna fyrir einkennum.

Í fjögur ár með skemmt eista
Árið er 1996. Ég bý í Bandaríkjunum, er í námi og stunda knattspyrnu. Ég fæ gríðarmikið högg í punginn þegar bolta er spyrnt af öllu afli í mig úr návígi. Þetta er óhapp. Þau gerast. Sama kvöld pissa ég blóði.

Stjörnum prýdd auglýsing Mottumars
Ný auglýsing Mottumars var frumsýnd í kvöld. Margir af frægustu leikurum, tónlistarmönnum og grínistum landsins birtast í myndbandinu en slagorð herferðarinnar í ár er „Ekki humma fram af þér heilsuna“.

Ekki humma fram af þér heilsuna
Flestir þekkja frestunaráráttuna, tilfinninguna að vilja ýta á undan sér einhverju verkefni sem manni hugnast ekki að sinna. Skila einhverju af sér á síðustu stundu og kannski ekki í þeim gæðaflokki sem maður hefði viljað. Að fresta einhverju og fresta því svo aftur, og finna kvíðann magnast þangað til að það er orðið óumflýjanlegt að ljúka verkinu.

Forsetinn fékk fyrstu sokkana
Forseti Íslands tók í dag á móti fyrsta parinu af Mottumarssokkunum sem seldir eru til styrktar árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins tileinkuðu krabbameinum hjá körlum.

Forsetinn fær fyrstu sokka Mottumars
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fær á morgun fyrsta Mottumarssokkaparið afhent á Bessastöðum.