Ítalski boltinn

Albert skoraði í mikilvægum sigri
Albert Guðmundsson skoraði fyrra mark kvöldsins í 2-0 sigri Genoa á Palermo í næstefstu deild ítalskrar knattspyrnu í kvöld. Genoa er í 2. sæti og í harðri baráttu um sæti í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni.

Rekinn í þriðja sinn frá sama félaginu
Þeim sem hefur verið sagt upp störfum á lífsleiðinni geta eflaust vitnað um að það er miður skemmtileg lífsreynsla. Það eru samt eflaust ekki margir sem hafa verið reknir í þrígang frá sama vinnuveitandanum.

Fyrsti deildarsigur Juventus síðan stigin voru dregin af liðinu
Juventus sótti þrjú stig er liðið vann öruggan 3-0 útisigur gegn Salernitana í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fyrsti deildarsigur Juventus síðan 15 stig voru dregin af liðinu fyrir brot á félagsskiptareglum.

United ætlar að bjóða yfir hundrað milljónir punda í Osimhen
Manchester United er tilbúið að borga fúlgur fjár fyrir markahæsta leikmann ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Lazio mistókst að komast upp fyrir nágranna sína
Lazio náði aðeins jafntefli gegn Verona í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Með sigri hefði Lazio farið upp fyrir nágranna sína og erkifjendur í Roma.

Dagskráin í dag: Seinni bylgjan, Gametíví og ítalski boltinn
Íslenski handboltinn verður fyrirferðamikill á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag en ítalski boltinn fær einnig sitt pláss.

Inter hafði betur í Mílanóslagnum
Lautaro Martinez var hetja Inter en hann skoraði eina markið í nágrannaslagnum gegn AC Milan í kvöld. Inter er enn í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Albert lék í tapi Genoa
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem tapaði 2-0 á útivelli gegn Parma í Serie B deildinni á Ítalíu í dag. Genoa er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í efstu deild.

Napoli styrkti stöðu sína á toppnum með öruggum sigri
Napoli er nú með 16 stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir öruggan 3-0 útisigur gegn Spezia í dag.

Guðný og Sara spiluðu báðar þegar Milan vann Juventus
AC Milan vann góðan sigur á Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Guðný Árnadóttir lék allan leikinn í vörn Milan sem vann 2-1 sigur en Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn af bekknum hjá Juventus.

Stoðsending frá Alexöndru þegar Fiorentina vann
Alexandra Jóhannsdóttir lagði upp mark í 4-1 sigri Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigrinum lyfti liðið sér upp í þriðja sæti deildarinnar.

Pirraðir út í Pogba og íhuga að rifta samningi hans
Forráðamenn Juventus eru orðnir afar pirraðir á Paul Pogba og íhuga að rifta samningi hans við félagið.

Bremer skaut Juventus í undanúrslit
Juventus er á leið í undanúrslit ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia í fótbolta eftir 1-0 sigur gegn Lazio í kvöld.

Zlatan stefnir á endurkomu í næstu viku
Hinn 41 árs Zlatan Ibrahimovic stefnir á að spila með AC Milan á ný þegar liðið mætir Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í næstu viku.

Pogba meiddur á nýjan leik
Franski knattspyrnumaðurinn Paul Pogba hefur ekki enn spilað fyrir Juventus á leiktíðinni eftir að ganga í raðir félagsins síðasta sumar. Hann var á bekknum í síðasta deildarleik liðsins en er nú aftur kominn á meiðslalistann.

Darmian skaut Inter í undanúrslit
Metteo Darmian skoraði eina mark leiksins er Inter vann 1-0 sigur gegn Atalanta í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia í kvöld.

Sjáðu heitasta framherjann á Ítalíu minna vel á sig á móti Mourinho
Napoli er á góðri leið að verða ítalskur meistari í fyrsta skiptið án hjálpar frá Diego heitnum Maradona.

McKennie frá Juventus til Leeds
Leeds United heldur áfram að versla nær eingöngu Bandaríkjamenn í leikmannahóp sín og á því varð engin breyting í kvöld þegar Weston McKennie gekk í raðir félagsins á láni frá Juventus á Ítalíu.

Með skeifu á skrítinni hópmynd Mourinhos
José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, birti ansi sérstaka mynd á Instagram eftir 2-1 tap liðsins fyrir Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.

Punktur & basta: AC Milan í frjálsu falli
Punktur & basta fór yfir leiki helgarinnar í ítalska fótboltanum og þá sérstaklega óvæntan skell AC Milan liðsins. Ítölsku meistararnir í AC Milan eru að upplifa mjög erfiða tíma núna.

Simeone hetja Napoli gegn lærisveinum Mourinho
Napoli vann sinn fjórða leik í röð í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar liðið fékk Rómverja í heimsókn í kvöld.

Óvænt tap Juventus á heimavelli
Ítalska stórveldið Juventus er í alls kyns vandræðum, innan vallar sem utan, þessa dagana og í dag fékk liðið skell á heimavelli.

Tvö mörk dæmd af Milan sem steinlá á heimavelli
AC Milan tapaði 5-2 fyrir Sassuolo í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. AC Milan hefur fengið á sig þrjú mörk eða meira í þremur leikjum í röð.

Martínez skaut Inter í annað sæti
Heimsmeistarinn Lautaro Martínez, framherji Inter og argentíska landsliðsins, skoraði bæði mörk Inter þegar liðið kom til baka og vann 2-1 sigur á Cremonese í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Markalaust í Íslendingaslagnum á Ítalíu | Jökull hélt hreinu
Albert Guðmundsson og Hjörtur Hermannsson mættust í Serie B, næstefstu deild ítalskrar knattspyrnu í dag. Willum Þór Willumsson lék 72 mínútur í 0-2 tapi Go Ahead Eagles gegn PSV í Hollandi. Þá hélt Jökull Andrésson hreinu í endurkomu sinni hjá Exeter City í ensku C-deildinni.

Guðný spilaði þegar AC Milan steinlá fyrir Inter
Það var boðið upp á nágrannaslag í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og var einnig um Íslendingaslag að ræða þegar AC Milan og Inter áttust við.

Mikael Egill á bekknum og vandræði Venezia halda áfram
Mikael Egill Ellertsson var ónotaður varamaður í fyrsta leik sínum með ítalska B-deildarliðinu Venezia í dag.

Stigafrádráttur hjá Juventus og Mourinho vill þrjú stig í stórafmælisgjöf
Þeir hafa rekið upp stór augu sem hafa skoðað stöðuna í ítölsku A deildinni í vikunni án þess að lesa fréttir undangenginna daga. Juventus, sem áður var helsti keppinautur Napoli um titilinn og virtist vera á góðri siglingu um 10 stigum á eftir toppliðinu, hafði allt í einu misst 15 stig og var fallið niður í 10. sæti, rétt á eftir Empoli.

Aðeins einn leikmaður fékk sneið af afmælisköku Mourinhos
José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, varð sextugur í gær. Leikmenn og starfslið Roma fögnuðu með Portúgalanum á þessum tímamótum.

Mikael Egill skiptir um lið á Ítalíu
Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson hefur gengið til liðs við ítalska liðið Venezia í ítölsku Serie B. Hann hefur skrifað undir samning til ársins 2027.