Hernaður
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 53 ›
Innlimun, bakslag og yfirtaka Vladímír Pútín Rússlandsforseti skrifaði í gær undir síðustu skjölin sem fela í sér að Rússar innlimi fjögur héruð í Úkraínu, á sama tíma og rússneskar hersveitir hafa orðið fyrir bakslagi og áfram þurft að hörfa bæði í norðausturhluta og suðurhluta Úkraínu. Erlent 6.10.2022 07:38
Vilja dæla vopnum til Taívans Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja koma fyrir miklum birgðum af vopnum í Taívan ef ske kynni að Kínverjar reyndu að gera innrás þar. Markmiðið er að gera eyríkinu kleift að verjast innrás þrátt fyrir að Kínverjar einangri Taívan um langt skeið. Erlent 5.10.2022 17:09
Rússar sagðir standa frammi fyrir tveimur slæmum kostum Einn af leppstjórum Rússlands á hernumdum svæðum í Kherson-héraði í Úkraínu viðurkenndi í morgun að hersveitir Rússa í héraðinu hefðu hörfað undan sókn Úkraínumanna. Ráðamenn í Rússlandi standa frammi fyrir tveimur slæmum valmöguleikum varðandi herkvaðningu. Erlent 5.10.2022 11:54
Suður-Kóreumenn svöruðu fyrir sig en báðust síðan afsökunar Fjórum eldflaugum var skotið frá Suður-Kóreu seint í gærkvöldi. Talið er að með eldflaugunum hafi Suður-Kóreumenn, ásamt Bandaríkjamönnum, verið að svara fyrir eldflaug sem nágrannar þeirra í norðri skutu í gær yfir Japan. Herinn baðst síðar afsökunar á einni eldflauginni. Erlent 5.10.2022 08:42
Bandaríkjaforseti setur tugi milljarða í hernaðaraðstoð Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst setja aukinn kraft í hernaðaraðstoð. Bandaríkjamenn hyggist útvega Úkraínumönnum hergögn að andvirði 625 milljóna bandaríkjadala en þar á meðal eru HIMARS-eldflaugakerfi, skriðdrekar og stórskotaliðstæki. Erlent 4.10.2022 18:49
Rússar á undanhaldi í suðri Úkraínskir hermenn virðast sækja hratt fram gegn Rússum í suðurhluta Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komið verði fram við Úkraínumenn sem búa í byggðum sem búið er að frelsa frá Rússum af sanngirni. Erlent 4.10.2022 13:13
Úkraínuher sækir fram í suðri og austri Varnir Rússa í Kherson-héraði í sunnanverðri Úkraínu voru brotnar á bak aftur í dag á sama tíma og Úkraínuher sótti fram í austanverðu landinu sem Rússar segjast hafa innlimað. Birgðaflutningaleiðum fyrir rússneska hermenn er sagt ógnað með gagnsókninni. Erlent 3.10.2022 23:55
Petreaus segir bandamenn myndu þurrka Rússa út í Úkraínu David Petreaus, fyrrverandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA og fjögurra stjörnu hershöfðingi, segir að Bandaríkin og bandamenn þeirra innan Atlantshafsbandalagsins myndu grípa til afgerandi aðgerða ef Rússar notuðu kjarnorkuvopn í Úkraínu. Erlent 3.10.2022 07:53
Góð helgi fyrir Úkraínumenn Frá því Vladimír Pútin lýsti yfir ólöglegri innlimun fjögurra héraða Úkraínu á föstudaginn virðist sem Úkraínumönnum hafi vegnað verulega vel gegn Rússum á vígvöllum landsins. Rússar eru víðast hvar á hælunum í Úkraínu. Erlent 2.10.2022 21:30
Lyman sýni að innlimunin sé farsi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að undanhald Rússa frá Lyman sýni að tilraunir Rússa til að innlima úkraínskt landsvæði væri „algjör farsi“. Úkraínumenn eru sagðir hafa elt þær rússnesku hersveitir sem hörfuðu og munu bardagar geisa á ný, austur af Lyman. Erlent 2.10.2022 10:17
Segir trúverðugleika Rússa minnkandi sem gæti aukið hömluleysið Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir sigur Úkraínumanna í Lyman í dag mikið áfall og bakslag í áróðursstríði Rússa. Áhyggjuefni sé að leið Rússa úr slíkum ógöngum sé að stigmagna aðgerðir og verða hömulausari. Erlent 1.10.2022 20:43
Kadyrov kallar eftir herlögum og notkun kjarnorkuvopna Ramsan Kadyrov, einræðisherra Téténíu, birti í dag langan pistil þar sem hann gagnrýnir leiðtoga rússneska hersins harðlega vegna undanhaldsins frá Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Meðal annars kallar hann eftir því að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, setji á herlög á landamærasvæði Rússlands við Úkraínu og beiti kjarnorkuvopnum gegn Úkraínumönnum. Erlent 1.10.2022 15:23
Lyman er í höndum Úkraínumanna Úkraínumenn hafa rekið Rússa á brott frá bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Talsmaður úkraínska hersins sagði í morgun að allt að 5.500 rússneskir hermenn hefðu verið umkringdir þar en meirihluti þeirra virðist hafa flúið áður en borgin var umkringd. Erlent 1.10.2022 12:30
„Þetta sýnir ekki styrk. Þetta sýnir veikleika“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir ólöglega innlimun Rússlands á fjórum héruðum Úkraínu vera mikla stigmögnun í tengslum við innrás Rússa hingað til. Ákvörðun Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, hefði þó ekki áhrif á eðli átakanna eða stuðning NATO við Úkraínu. Erlent 30.9.2022 17:09
Umkringdir rússneskir hermenn sagðir hörfa frá Lyman Úkraínumenn eru sagðir hafa nánast umkringt hóp rússneskra hermanna í borginni Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Rússar eru sagðir undirbúa það að hörfa frá bænum á sama tíma og forseti Rússlands lýsir yfir innlimun héraðsins. Erlent 30.9.2022 12:16
23 látnir og 28 særðir eftir árás í Zaporizhzhia Að minnsta kosti 23 eru látnir og 28 særðir eftir árás á bílalest almennra borgara í Zaporizhzhia. Úkraínumenn segja Rússa hafa staðið að árásinni en Rússar segja Úkraínumenn ábyrga. Erlent 30.9.2022 07:50
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar Úkraínskir hermenn eru sagðir nærri því að umkringja stóran hóp rússneskra hermanna í bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Þorp víðs vegar um bæinn hafa verið frelsuð og er útlit fyrir að Rússar eigi einungis eina undankomuleið frá Lyman. Erlent 29.9.2022 14:00
Ætlar að innlima héruðin á morgun Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar að skrifa undir innlimun fjögurra héraða Úkraínu á morgun, föstudag. Þetta tilkynnti Kreml nú fyrir skömmu og sagði að klukkan þrjú á morgun, að staðartíma, myndi Pútín skrifa undir innlimun héraðanna í rússneska sambandsríkið og halda ræðu í kjölfarið. Erlent 29.9.2022 10:13
Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. Erlent 29.9.2022 07:30
Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. Erlent 28.9.2022 14:46
„Þetta land er Úkraína“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir væntanlega innlimun Rússa á fjórum héruðum Úkraínu vera marklausa og alvarlegt brot á alþjóðalögum. Hann segir að ríki NATO muni ekki láta af stuðningi við rétt Úkraínumanna til fullveldis og sjálfsvarnar og að sviðsettar atkvæðagreiðslur Rússa hafi ekki lögmæti. Erlent 27.9.2022 16:56
Boða innlimun, heita syndaaflausn og hóta kjarnorkustríði Atkvæðagreiðslum í Donetsk, Luhansk, Kherson og Zaporizhizhia um innlimun svæðanna í Rússland lýkur í dag. Rússneskir miðlar segja kosningaþátttöku vera komna yfir 50 prósent, sem sérfræðingar segja lygi. Erlent 27.9.2022 12:25
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Ná enn árangri í austri og reyna að umkringja rússneska hermenn Úkraínumenn virðast enn ná góðum árangri í áframhaldandi gagnsókn þeirra gegn Rússum í austurhluta Úkraínu. Rússar eru sagðir í töluverðum vandræðum með hverkvaðningu og hafa verið að senda lítið sem ekkert þjálfaða menn á víglínurnar í Úkraínu. Erlent 26.9.2022 15:52
Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu. Erlent 26.9.2022 10:24
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. Erlent 23.9.2022 16:20
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. Erlent 23.9.2022 12:36
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. Erlent 23.9.2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. Erlent 22.9.2022 22:30
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. Erlent 22.9.2022 07:23
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. Erlent 21.9.2022 20:27
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti