Besta deild karla

Treystir sér ekki að skoða myndir sem teknar voru rétt eftir samstuðið
Framherji HK missti tvær tennur og sauma þurfti þrjátíu spor þegar hann lenti í samstuði við samherja sinn í Bestu deildinni um helgina.

Besta sætið um KR: „Aumingja Gregg Ryder virðist því miður ekki eiga nein svör“
„Það var meðbyr í byrjun, nýr þjálfari og tveir sigrar í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en nánast allt loft er farið úr blöðrunni,“ sagði Ingvi Þór Sæmundsson, þáttastjórnandi Besta sætisins, um lið KR í Bestu deild karla í fótbolta.

Leitaði ráða hjá Rio Ferdinand áður en hann tók flugið til Ísafjarðar
Það vakti gífurlega athygli þegar að Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United og enska landsliðsins setti inn athugasemd við myndband sem að Besta deildin setti inn á Instagram af marki Toby King, leikmanns Vestra gegn Stjörnunni á dögunum. Ferdinand er náinn fjölskylduvinur Toby og hefur hann geta leitað ráða hjá honum í gegnum sinn feril í fótboltanum.

Stúkan um varnarvandræði KR: „Það er ekkert sjálfstraust, menn eru farnir að efast um eigin getu“
KR hefur átt í miklum varnarvandræðum að undanförnu og fengið á sig töluvert fleiri mörk en óskað var eftir. Fimm sinnum þurftu Vesturbæingar að tína boltann úr eigin neti í gær og Stúkan hefur áhyggjur af stöðu mála.

FH spilar í gulum búningi til styrktar Píeta samtakanna
FH frumsýndi nýjan búning í leiknum gegn Fram í Bestu deild karla á föstudaginn. Búningurinn er styrktarbúningur fyrir Píeta samtökin.

Rio Ferdinand klappar fyrir leikmanni Vestra
Nýliðar Vestra unnu frábæran sigur á Stjörnunni 4-2 á sunnudaginn. Liðið er með tíu stig í níunda sæti Bestudeildarinnar eftir sigurinn.

Stúkan ræðir ólöglegt mark Breiðabliks: „Ívar Orri er ekkert að horfa á þetta“
HK og Breiðablik mættust í Kórnum á sunnudag. Breiðablik fór þar með tveggja marka sigur en mikið hefur verið rætt um hvort fyrra mark þeirra hefði átt að standa þar sem boltinn var á ferð þegar aukaspyrna var tekin.

Sjáðu öll átta mörkin og rauða spjaldið í Reykjavíkurslagnum
Valur lagði KR að velli í Vesturbæ í miklum markaleik þar sem rautt spjald fór á loft.

„Róm var ekki byggð á einum degi“
Gregg Ryder þjálfari KR segist ekki vera stoltur af því hvernig lið hans er að spila. KR tapaði 5-3 á heimavelli gegn Val í kvöld.

Tryggvi Hrafn eftir sigur Vals í Frostaskjóli: „Þetta var hálfpartinn furðulegt“
„Ég segi bara allt gott, þetta var hálfpartinn furðulegt. Það var 2-0 fyrir þeim eftir 5 mínútur en einhvern veginn endum við á að vera svekktir að vera ekki með meira en tveggja marka forystu í hálfleik,“ sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson eftir ótrúlegan sigur Vals á KR í Bestu deild karla í fótbolta.

Uppgjör og myndir: KR-Valur 3-5 | Vesturbæingar niðurlægðir í Frostaskjóli
Valsmenn fóru illa með nágranna sína úr KR þegar liðin mættust í Bestu deildinni í Vesturbænum í kvöld. Hlíðarendapiltar unnu 5-3 sigur og vandræði KR-inga verða augljósari með hverjum leiknum.

„Höfum kannski ekki verið eins lélegir og fólk vill meina“
„Þetta er náttúrlega bara eldgamall Reykjavíkurrígur þannig að þetta hefur alveg gríðarlega merkingu, sérstaklega fyrir áhorfendur og eins og staðan er í deildinni hefur þetta gríðarlega merkingu fyrir okkur sem lið í dag,“ segir Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, í hádegisfréttum Bylgjunnar fyrir stórleikinn gegn Val í Bestudeildinni í kvöld.

Sjáðu Blikamörkin í Kórnum, Vestra skella Stjörnunni og markaflóðið í Víkinni
Fimmtán mörk voru skoruð í leikjunum þremur í Bestu deild karla í fótbolta í gær.

„Mér var sagt að drulla mér í burtu og grjóthalda kjafti“
Það var ýmislegt sem Ómar Ingi Guðmundsson gat verið ósáttur við í kvöld þegar HK tapaði fyrir Breiðablik 0-2 í Kórnum. Leikið var í 9. umferð Bestu deildar karla og náðu HK-ingar því ekki að fjarlægjast fall svæðið í þetta sinn.

„Skiptir ekki máli hvort ég sé þungur eða léttur, ég skora alltaf“
Annar markaskorara Breiðabliks var að vonum sáttur með leik liðsins í kvöld og eigin frammistöðu. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði seinna mark gestanna í byrjun seinni hálfleiks til að tryggja öll stigin fyri Breiðablik í 2-0 sigri þeirra í Kórnum í kvöld.

„Við vorum mjög öflugir í 70 mínútur“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, þurfti að játa sig sigraðan á móti Íslandsmeisturum Víkings í kvöld. Leikurinn var fjörugur en Árbæingar komust yfir á fyrstu mínútu en þurftu á endanum að sætta sig við 5-2 tap.

„Það bara fauk út í veður og vind í þessu roki“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, stýrði sínum mönnum til sigurs í miklum markaleik í Víkinni í kvöld á móti Fylki. Hann var þó langt frá því að vera hæstánægður með 5-2 sigur.

Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 5-2 | Öruggt hjá meisturunum eftir erfiða byrjun
Úrslitin voru eftir bókinni í Víkinni í kvöld þegar efsta lið Bestu deildar karla mætti því neðsta. Víkingur tók á móti Fylki og sigruðu heimamenn 5-2 í ansi fjörugum leik.

Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum
Tvö mörk sitt hvoru megin við hálfleikinn dugði Breiðablik til að landa öllum stigunum í Kópavogsslagnum í 9. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Blikar hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk en tvö dugðu í þetta sinn. Blikar halda því í við Víking í topp baráttunni.

Uppgjör og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik
Vestramenn hoppuðu upp fyrir HK og upp í níunda sæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 4-2 heimasigur á Stjörnunni en leikurinn var spilaður í Laugardalnum. Stjörnuliðið hefur fengið á sig níu mörk í síðustu tveimur leikjum.

Sjáðu markasúpu fyrri hálfleiksins á Akureyri í gær
Skagamenn sóttu þrjú stig norður á Akureyri í gær eftir að hafa unnið 3-2 sigur á KA í öðrum leik níundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

„Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var langt frá því að vera sáttur með lið sitt eftir 3-2 tap gegn ÍA en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Hann var sérstaklega ósáttur með varnarleikinn en KA hefur fengið á sig flest mörk allra liða í deildinni eða 23 talsins.

„Erum á ákveðinni vegferð”
Arnór Smárason, hinn þaulreyndi fyrirliði ÍA, var kampakátur í viðtali eftir 3-2 útisigur gegn KA í 9. umferð bestu deildarinnar þar sem öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Arnór skoraði þriðja mark leiksins af vítapunktinum.

Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður
Áfram heldur slakt gengi KA en liðið beið í lægri hlut, 3-2, gegn ÍA á Greifavellinum í níundu umferð bestu deildarinnar í dag. KA komst snemma yfir en Skagamenn gengu á lagið og leiddu 3-2 í hálfleik sem urðu lokatölur. KA áfram í næstneðsta sæti deildarinnar en ÍA í því sjötta.

Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador
Víkingurinn Pablo Punyed er á leiðinni í langt ferðalag eftir að hafa verið valinn í landsliðhóp El Salvador.

KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár
KA-menn geta loksins komist upp úr fallsæti með sigri á Skagamönnum fyrir norðan í eina leik dagsins í Bestu deild karla í fótbolta.

Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“
Heimir Guðjónsson lét í ljós óánægju sína með skipulag Bestu deildar karla í fótbolta í viðtali eftir leik FH og Fram í deildinni í gær. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli eftir að FH-ingar höfðu komist 3-0 yfir. Fyrrum kollegi hans hjá FH hafði gaman að.

Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH
FH og Fram gerðu 3-3 jafntefli í fyrsta leik níundu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta en leikurinn fór fram í Kaplakrikanum í gær.

„Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram í fótbolta, var að minnsta kosti sáttur með seinni hálfleik sinna manna þegar þeir mættu FH í kvöld. Fram lenti 3-0 undir en kom til baka og jafnaði í 3-3.

„Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH í fótbolta, var svekktur eftir að hafa gert jafntefli við Fram í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Lokatölur 3-3.