Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Aron Guðmundsson skrifar 8. nóvember 2025 10:02 Ólafur Jóhannesson á að baki magnaðan feril í þjálfun. Vísir/Hulda Margrét Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi knattspyrnuþjálfari FH, segir lágpunktinn á sínum ferli hafa verið þegar hann var rekinn frá FH og situr það í honum hvernig staðið var að uppsögninni. Stjórnendur FH hafi sýnt honum vanvirðingu og komið illa fram við hann.
Út er komin ævisaga knattspyrnuþjálfarans Ólafs Jóhannessonar. Bókin: Óli Jó – fótboltasaga, er rituð af Ingva Þór Sæmundssyni íþróttafréttamanni og í henni segir Ólafur, sem kom víða við á sínum ferli og gerði FH meðal annars að stórveldi, sögu sína á fádæma skemmtilegan og beinskeyttan hátt. Ólafur er á því að lágpunkturinn á hans þjálfaraferli hafi komið tímabilið 2022 þegar að hann var þjálfari FH, liðið í níunda sæti efstu deildar eftir níu umferðir og hafði verið nýbúið að gera jafntefli við Leikni Reykjavík á heimavelli. Ólafur sat með teymi sínu, Sigurbirni Hreiðarssyni og Fjalari Þorgeirssyni inni í klefa þegar bankað var á dyrnar. Fyrir utan stóðu Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH, Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála og Gunnar Beinteinsson, fyrrverandi handboltamaður Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH Vísir/VÍS „Svo byrjaði Valdimar að tala. Hann var búinn að tala í einhverjar fimm mínútur eða lengur þegar ég sagði við hann: „Valdi, ertu að reyna að segja okkur að þú sért að reka okkur? Geturðu ekki bara sagt það?“ Þá sagði hann að þeir hefði ákveðið að breyta til.“ „Var ég rekinn líka?“ Ólafur segist hafa verið dónalegur við Valda í kjölfarið. Sagt ýmislegt sem hann átti ekki að segja, rak þá svo úr klefanum. Hann og Bjössi Hreiðars fóru svo heim til Óla og fengu sér einn bjór. „Við komum heim til mín og þá sagði Bjössi: „Var ég rekinn líka?“ Ég sagðist ekkert vita um það. Ég hugsa að ég hafi verið svo vondur að þeir hafi ekki komið sér að því að reka Bjössa líka.“ Sigurbjörn Hreiðarsson og Ólafur Jóhannesson á góðri stunduHimmi Stjórnendur FH verði að líta í eigin barm Það sem Ólafi þótti fúlast við þetta var að þeir menn sem réðu hann til starfa skyldu ekki hafa verið meiri menn en svo að þeir þorðu ekki að standa fyrir framan hann og segja honum þetta. „Heldur sendu einhverja skrifstofutitti í það. Það fór líka í taugarnar á mér að þeir skyldu gera þetta svona, strax eftir leik.“ Hann hafi átt skilið meiri virðingu þá neituðu stjórnendur í FH að borga honum uppsagnarfrestinn og þurfti lögfræðing til að sækja hann. „Mér fannst þeir koma illa fram við mig. Og síðan þá hef ég ekki farið á leik í Kaplakrika sem áhorfandi. Ég hef lýst leikjum þar og farið til að taka við viðurkenningum en ég fer ekki þangað til að horfa á fótboltaleiki eins og mig langar að gera. Ég nenni ekki að gera það meðan ákveðnir menn eru við völd þarna.“ Stundum sé talað um að menn verði of stórir fyrir félagið sitt. „Þegar þeir hafa starfað lengi verði þeir ráðríkir, og ég held að stjórnendur FH verði líka að líta í eigin barm og spyrja sig hvort þeir hafi verið of lengi við völd. En það getur enginn sett þá af nema þeir sjálfir.“
FH Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira