Breiðablik

Umfjöllun: Shamrock Rovers - Breiðablik | Blikar fara með forystu í seinni leikinn
Breiðablik heimsótti írska félagið Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í Undankeppni Meistaradeildar UEFA. Seinni leikurinn fer á Íslandi í næstu viku en í boði eru leikir á móti FC Kaupmannahöfn í næstu umferð. Breiðablik vann sterkan útisigur, 0-1.

Sjáðu markið: Damir Muminovic skoraði af löngu færi
Damir Muminovic skoraði rosalegt mark eftir vel útfærða aukaspyrnu í leik Breiðabliks gegn Shamrock Rovers. Liðin eigast við í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.

Í beinni: Shamrock Rovers - Breiðablik | Hvað gera Blikar á Írlandi?
Breiðablik mætir Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar. Sigurvegarinn í einvíginu mætir FC Kaupmannahöfn í næstu umferð.

Sjáðu mörkin tólf sem komu Blikum áfram: Hitað upp fyrir beina frá Dublin
Breiðablik mæta í kvöld írska félaginu Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í Undankeppni Meistaradeildar UEFA.

Bryndís Arna hættir ekki að skora og ÍBV vann fyrir norðan: Öll mörkin úr Bestu deildinni
Breiðablik og Valur deila áfram efsta sætinu í Bestu deild kvenna en 12. umferð deildarinnar lauk í gær.

Alex Freyr ósáttur hjá Blikum og vill burt
Vefmiðillinn 433.is greindi frá því í gær að Alex Freyr Elísson, leikmaður Breiðabliks í Bestu deildinni, væri ósáttur með spiltíma sinn í Kópavoginum og vildi komast á lán frá félaginu sem fyrst.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Keflavík 2-0 | Katrín sökkti Keflavík
Breiðablik bar sigurorð á Keflavík í 12. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Leikurinn endaði 2-0 og skoraði Katrín Ásbjörnsdóttir bæði mörkin í síðari hálfleik.

„Verðum að fara nýta færin betur“
Jonathan Glenn, þjálfari Keflavíkur, þurfti að sætta sig við 2-0 tap á móti toppliði Breiðabliks í tólftu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Leikurinn var markalaus í hálfleik og var Jonathan sáttur með frammistöðuna framan af.

„Þú verður bara að fara með það á koddann“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum afar sáttur eftir öruggan 5-1 sigur hans liðs á Fylki í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Fylkismenn geti ekki hætt sér hátt og pressað: „Við skíttöpuðum þessu“
„Mér líður ekkert vel,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, eftir 5-1 tap liðs hans fyrir Breiðabliki í Bestu deild karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 5-1 | Blikar blésu til veislu
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu öruggan 5-1 sigur á nýliðum Fylkis í Bestu deild karla í knattspyrnu þrátt fyrir að brenna af vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

Blikar hafa ekki unnið íslenskt lið í meira en mánuð
Breiðablik tekur á móti Fylki í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld og Blikunum eru örugglega farið að þyrsta í deildarsigur.

Bikarúrslitaleik kvenna flýtt um einn dag
Leik Breiðabliks og Víkings í úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu hefur verið flýtt um einn dag.

Agla skoraði óvart eitt markanna í þrennunni sinni: Sjáðu mörkin úr Bestu
Ellefta umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta kláraðist í gær með fjórum leikjum og við fengum að sjá þrettán mörk í leikjunum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Tindastóll 4-0 | Þrenna frá Öglu Maríu í öruggum sigri
Breiðablik vann öruggan sigur á Tindastól er liðin mættust í Bestu deild kvenna í kvöld en Agla María Albertsdóttir skoraði þrennu í leiknum.

„Það er ekkert eðlilega gaman að vera í KA í dag”
Ívar Örn Árnason leikmaður KA var himinlifandi eftir að KA tryggði sig í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta skipti í 19 ár. KA vann sigur á Breiðablik eftir vítaspyrnukeppni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Breiðablik 6-4 | Akureyringar í úrslit eftir sigur í vítakeppni
KA er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars karla eftir frækinn sigur gegn Breiðabliki á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma þar sem KA jafnaði með síðustu spyrnu leiksins. Liðin skoruðu svo sitt hvort markið í framlengingu áður en KA hafði betur í vítaspyrnukeppni.

Nítján ára bið gæti lokið í kvöld
KA og Breiðablik mætast í dag í fyrri undanúrslitaleiknum í Mjólkurbikar karla í fótbolta, á Greifavellinum á Akureyri.

Breiðablik og Ísland í aðalhlutverki í stórri grein á ESPN
ESPN gefur lesendum sínum sína upplifun af Meistaradeildarleikjunum sem fóru fram í Kópavogi á dögunum. Ræddu meðal annars við einn svekktan leikmann sem fékk ekki að heyra Meistaradeildarlagið fyrir rassskellinn á móti Blikum.

Patro Eisden staðfestir komu Stefáns Inga
Stefán Ingi Sigurðarson, markahæsti leikmaður Bestu-deildar karla, er genginn til liðs við belgíska félagið Patro Eisden frá Breiðablik.

Blikar mjaka Íslandi upp fyrir Lúxemborg og Georgíu
Sigrar Breiðabliks í forkeppni Meistaraadeildar Evrópu í fótbolta karla mjakaði Íslandi upp um tvö sæti á styrkleikalista UEFA yfir deildarkeppni evrópskra þjóða.

„Ég held að ég sé bara enn að melta þetta“
Breiðablik sló Stjörnuna út í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli, eftir framlengingu var staðan 2-2 og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni, sem Breiðablik sigraði 4-1.

Umfjöllun: Stjarnan - Breiðablik | Breiðablik í úrslit Mjólkurbikarsins
Stjarnan og Breiðablik mættust í undanúrslitum Mjólkurbikar kvenna á Samsung-vellinum í Garðabæ. Breiðablik sigraði eftir vítaspyrnukeppni og mætir Víkingi í úrslitaleik þann 12. ágúst. Blikar skoruðu úr öllum vítaspyrnum sínum en Stjarnan klúðraði tveimur og eru því úr leik.

„Virkilega skemmtilegur leikur til að enda á“
Stefán Ingi Sigurðarson var á skotskónum þegar Breiðablik vann Budućnost Podgorica frá Svartfjallalandi 5-0 og mætir því Shamrock Rovers frá Írlandi í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Þetta var síðasti leikur Stefáns Inga fyrir Blika en hann staðfesti í viðtali eftir leik að hann væri á leið til Belgíu.

Umfjöllun, viðtal og myndir: Breiðablik - Buducnost 5-0 | Blikar sannfærandi í undankeppni Meistaradeildarinnar
Breiðablik vann sannfærandi 5-0 sigur gegn Buducnost og tryggði sér sæti í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem Blikar mæta Shamrock Rovers frá Írlandi.

„Stefán er einn af þeim sem flýgur úr hreiðrinu“
Breiðablik vann sannfærandi 5-0 sigur gegn Buducnost. Breiðablik skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og seinni hálfleikur var formsatriði. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með sigurinn.

Damir býst ekki við að upp úr sjóði í kvöld gegn „fullorðnari“ gestum
Damir Muminovic og félagar í Breiðabliki mæta Buducnost frá Svartfjallalandi í úrslitaleik forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, á Kópavogsvelli í kvöld.

Óskar upplifir andstæðinga Blika kokhrausta: „Ekki fyrstir til þess að gera það“
Það ræðst á föstudagskvöld hvort það verður hlutskipti Breiðabliks eða Buducnost frá Svartfjallalandi að spila í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Liðin eiga sér stutta en hatramma sögu og mætast í hreinum úrslitaleik í forkeppni Meistaradeildarinnar á Kópavogsvelli.

Síðast mætti lögreglan en Viktor segir að harkan verði öll innan vallar
Viktor Karl Einarsson segir möguleika Breiðabliks mjög góða fyrir úrslitaleikinn við svartfellska liðið Buducnost annað kvöld, í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Ævintýri Isabellu halda áfram á erlendri grundu
Íslenska körfuknattleikskonan Isabella Ósk Sigurðardóttir spilar ekki áfram í Subway deild kvenna næsta vetur því hún hefur samið við lið í Króatíu.