
Samkomubann á Íslandi

Búin undir að fá þúsundir á Laugardalsvöll ef Svandís gefur grænt ljós
Eins og staðan er núna gætu 2.300 áhorfendur mætt á hvern af leikjum Íslands við Þýskaland, Rúmeníu og Norður-Makedóníu, í undankeppni HM karla í fótbolta. Vonir standa hins vegar til þess að fleiri fái að mæta á Laugardalsvöll.

Um vegna áhættu og ábata
Reglur um sóttkví barna og ungmenna munu valda uppnámi á næstu vikum. Það blasir við að þúsundir barna munu lenda í sóttkví og fullbólusettir foreldrar þeirra og systkini í mörgum tilvikum. Skólastarf verður slitrótt.

Skoða þurfi breytingu á framkvæmd sóttkvíar
Skoða þarf breytingar á framkvæmd sóttkvíar ef halda á leikskólum, grunnskólum og atvinnulífi gangandi á næstu vikum. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í samtali við fréttastofu.

Hvar er framtíðarplanið um lífið með COVID?
Þann 23. júlí kynnti ríkisstjórnin hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands. Þá töluðu ráðherrar um að ríkisstjórnin væri nú að gefa sér stuttan tíma, 2-3 vikur til að vinna stefnumótunarvinnu um lífið með COVID til framtíðar. Sá tími er tími liðinn. Ekkert hefur heyrst.

„200 manna takmörkunin þýðir bara tap“
Páll Óskar Hjálmtýsson hefur ákveðið að fresta afmælistónleikum sínum í enn eitt skiptið. Um er að ræða fimmtugsafmælistónleika en Páll Oskar stefnir á að halda tónleikana í mars 2022 þegar hann verður nýorðinn 52 ára.

Kári: Ekkert fokking væl
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að það verði ekki umflúið að halda svipuðum samkomutakmörkunum og nú eru í gildi næstu eitt til tvö árin. Hann er bjartsýnn á að þjóðin haldi áfram að tækla verkefnið af krafti þó ljóst sé að það sé orðið örlítið lengra en menn höfðu vonast til í upphafi.

„Þetta er hálf nöturleg framtíðarsýn“
Jón Mýrdal, eigandi Húrra og Skuggabaldurs í miðbæ Reykjavíkur, segir að sér finnist sú framtíðarsýn sem sett er fram í minnisblaði sóttvarnalæknis um framtíðarfyrirkomulag sóttvarna á Íslandi vegna Covid-19 vera hræðileg. Hann bendir á að á skemmtistöðum sé farið eftir ströngum kröfum um sóttvarnir, annað en til dæmis í partýum í heimahúsum.

Hugmyndir Þórólfs ekki tillögur sem beri að samþykkja eða hafna
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hyggst ekki taka afstöðu til þess hvort 200 manna samkomubann verði áfram við lýði næstu mánuði og misseri.

Dauðadómur yfir djamminu ef sýn Þórólfs verður að veruleika
Framtíðarsýn sóttvarnalæknis næstu misseri: Opið til ellefu í bænum. Það er dauðadómur fyrir ákveðna rekstraraðila, segir bareigandi.

Nýtt minnisblað: Svona sér Þórólfur fyrir sér framtíðina
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ólíklegt að hægt verði að aflétta takmörkunum innanlands á meðan faraldurinn geisar í heiminum. Þetta segir hann í minnisblaði sínu til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um framtíðarfyrirkomulag sóttvarna á Íslandi vegna Covid-19.

„Ég yrði mjög fljótur að henda inn tillögum“
Fari svo að Landspítalinn lýsi yfir neyðarástandi vegna álags, yrði sóttvarnalæknir fljótur að skila inn tillögum að hertum sóttvarnaráðstöfunum innanlands og minnir á að fækkun smitaðra í samfélaginu taki minnst tvær vikur að skila sér með tilliti til álags á spítalann.

„Ef eina staðan er að hafa fjarnám þá verðum við bara að vinna með það“
Nýnemadagur Háskólans í Reykjavík fór fram með öðru sniði en venjulega í dag. Í stað þess að hittast og blanda geði á göngum skólans var nemendum raðað niður í stofur eftir deildum, vegna sóttvarnaráðstafana. Nýnemar eru þó flestir spenntir að hefja nám við skólann.

Hafa gefið út leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi í haust
Stjórnvöld hafa gefið út nánari leiðbeiningar til skóla um áhrif gildandi sóttvarnaráðstöfunum á mismunandi skólastigum.

Þjóðhátíð aflýst annað árið í röð
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum mun ekki fara fram með neinum hætti í ár.

Segir ósamræmi í stefnu ríkisstjórnar og menntamálaráðherra
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í allsherjar- og menntmálanefnd þingsins, er gagnrýnin á Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, vegna óljósra skilaboða um hvernig skólahaldi verður háttað í haust.

Telur ótækt að láta veiruna ganga óhindraða um samfélagið
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að á hverjum degi sé unnið að því að bregðast við stöðunni á Landspítalanum, en líkt og fjallað hefur verið um eru blikur á lofti um hvort spítalinn ráði við mikið fleiri innlagnir af völdum Covid-19. Hún segir ljóst að óhindruð útbreiðsla myndi valda miklu álagi á heilbrigðiskerfið.

200 manna samkomubann framlengt um tvær vikur
Heilbrigðisráðherra hyggst framlengja gildandi sóttvarnatakmarkanir innanlands um tvær vikur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Verður því 200 manna samkomumann og eins metra regla í gildi til og með 27. ágúst. Núgildandi reglugerð átti að gilda til og með næsta föstudegi.

Ríkisstjórnin kynnti aðgerðir á blaðamannafundi
Ríkisstjórnin mun kynna næstu skref í innanlandsaðgerðum á blaðamannafundi klukkan 16. Fundurinn er sendur út frá Grindavík þar sem ríkisstjórnin hefur fundað í dag.

Ekki ástæða til að herða aðgerðir á meðan flestir eru með væg einkenni
Sóttvarnalæknir telur ekki ástæðu til að grípa til harðari innanlandsaðgerða á meðan faraldurinn valdi mestmegnis tiltölulega vægum einkennum hjá bólusettu fólki. Hann telur þó óráðlegt að slaka á aðgerðum eins og staðan er núna.

Segir upplýsingar um framhald aðgerða eiga að liggja fyrir í hádeginu
Spurð að því hvaða sóttvarnaaðgerðir tækju við í lok vikunnar, þegar núverandi aðgerðir falla úr gildi, hvatti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra til þolinmæði og sagði að það myndi liggja fyrir í hádeginu.

Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar á morgun
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur síðdegis á morgun.

„Við erum ekki að horfa á pest sem við losum okkur við á skammri stundu“
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir óbólusetta aldrei í meiri hættu gagnvart kórónuveirunni en í dag. Margir séu sýktir í samfélaginu án þess að vita af því. Veiran verði ekki stöðvuð en bólusetningin eigi að koma í veg fyrir slæmar afleiðingar hennar.

Skilur ekki hvers vegna lokað er á sviðslistir
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar er hugsi yfir því hvers vegna lokað er á sviðslistir þegar tjaldsvæðum og sundlaugum er haldið opið.

Hvetur ríkisstjórnina til að hlusta á sóttvarnalækni
Nú styttist í að stjórnvöld tilkynni hvort ráðist verði í frekari samkomutakmarkanir innanlands til að bregðast við hröðum vexti faraldursins. Ráðherrar hafa fundað stíft með sérfræðingum og hagsmunahópum síðustu daga áður en ákvörðun er tekin um næstu aðgerðir.

Mikilvægt að halda lífi í menningunni í faraldrinum
Formaður Bandalags íslenskra listamanna segir mikilvægt að halda lífi í menningunni í kórónuveirufaraldrinum og vill opna samfélagið eins mikið og hægt er. Stjórnvöld funda nú stíft með sérfræðingum og hagsmunahópum áður en ákvörðun verður tekin um næstu sóttvarnaaðgerðir.

„Við erum á krossgötum“
Sigurður Ingi Jóhannesson, samgönguráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir stjórnvöld vera að meta hvernig þjóðin geti lifað með kórónuveirufaraldrinum. Hann segir Íslendinga nú vera á krossgötum í kórónuveirufaraldrinum.

Boða til Covid-fundar með fulltrúum listafólks og íþróttahreyfingar
Stjórnvöld hafa boðað til fundar á morgun með fulltrúum úr listageiranum og íþróttahreyfingunni til að ræða áhrif kórónuveirufaraldursins.

Stefna að takmarkalausu skólahaldi á öllum stigum í haust
Stefnt er að því að skólahald geti hafist takmarkalaust á öllum skólastigum í haust. Forsætisráðherra segir að verið sé að meta hvort áhættuþætti við bólusetningar barna og ungmenna og fylgst sé náið með stöðunni.

Breyting hjá Þórólfi sem gefur boltann á stjórnvöld
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að óvíst sé hvort hann muni leggja til einhverjar ákveðnar aðgerðir þegar núverandi takmarkanir á samkomum renna sitt skeið á enda. Stjórnvöld þurfi að taka ákvörðun um hvort grípa eigi til harða aðgerða eða ekki til þess að koma böndum á núverandi bylgju kórónuveirufaraldursins.

„Ég held að við getum ekki farið að hrósa neinu happi“
Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir að færri sýni hafi verið tekin í gær en dagana á undan og því of snemmt að hrósa happi. Mikið álag er á símaveri Covid-19 göngudeildarinnar.