Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Ýmsum þætti upphafning að vera á svörtum lista Rússa
Utanríkisráðherra segir svartan lista Rússa vera útspil sem hefur minnstu áhrif á utanríkisstefnu Íslendinga. Þá segir hún að henni þyki ekki ósennilegt að af níu Íslendingum á listanum séu einhverjir sem myndu telja það upphefð.

Sjálfstæðisflokknum sé með engu móti treystandi fyrir sölu ríkiseigna
Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina hafa klúðrar sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka nokkuð hressilega. Það séu vonbrigði fyrir þau sem vilja að ríkið losi um eignarhluti sína í bankakerfinu.

„Ekki benda á mig“
Í umræðum um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka er stjórnarþingmönnum tíðrætt um stóru myndina. En þeirri mynd hefur ríkisstjórnin klúðrað nokkuð hressilega. Það eru mikil vonbrigði fyrir þau okkar sem viljum að ríkið losi um eignarhluti sína í bankakerfinu.

Hrópandi ósamræmi í svörum ráðherranna
Ráðherrum ber ekki saman um hvort þeir hafi verið með efasemdir um útboðið á Íslandsbanka. Innviðaráðherra kennir Bankasýslunni um það sem misfórst og segist svekktur vegna málsins á meðan fjármálaráðherra segist treysta Bankasýslunni.

Einkamál innviðaráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, gerðist uppvís að því að fara með rasísk, eða eins og hann komst að orði, helst til „óviðurkvæmileg“ ummæli fyrir fáeinum vikum síðan. Málið varð kveikja að talsverðri samfélagsumræðu – en hvert hras ríkisstjórnarinnar á fætur öðru gerði það að verkum að umræðan snerist fljótlega annað. Mér þykir þó einstaklega mikilvægt að við skiljum ekki við málið og látum þar við sitja.

„Heldurðu í alvörunni að þú komist upp með að selja pabba þínum banka?“
Nokkur pirringur var í mörgum nefndarmönnum fjárlaganefndar á opnum fundi hennar í morgun þar sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat fyrir svörum. Ráðherranum misbauð ein spurning nefndarmanns Pírata og sagði hann fara fram með áróður.

Bjarni kannast ekki við fullyrðingar Lilju um áhyggjufulla ráðherra
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir lýsingu Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, á viðhorfi sínu til útboðs á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í aðdraganda þess ekki rétta. Hann hafi ekki haft neinar efasemdir um ferlið.

Bein útsending: Bjarni svarar spurningum fjárlaganefndar um bankasöluna
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra verður gestur á opnum fundi fjárlaganefndar Alþingis sem hefst klukkan 8:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan.

Alvarleg vanræksla af hálfu ráðherra
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag sagði Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra, að forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafi deilt áhyggjum hennar á framkvæmd sölu ríkisins á hluta í Íslandsbanka. Þingmaður Viðreisnar segir að það þurfi að skoða þátt og ábyrgð ráðherranna í málinu.

Lilja segir Bjarna og Katrínu einnig hafa verið með áhyggjur af bankasölu
Lilja Alfreðsdóttir segir að bæði fjármála- og forsætisráðherra hafi deilt þeim áhyggjum og efsemdum sem hún hafði um aðferðina við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og og viðraði á ráðherrafundi. Þingmaður Viðreisnar segir það pungspark í íslensku þjóðina.

Spilltasti og óvinsælasti stjórnmálamaður sögunnar
Skoðanakönnun Maskínu í vikunni leiddi í ljós að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er sá stjórnmálamaður sem flestir landsmanna vantreysta. Ekki bara núna heldur í gegnum alla Íslandssöguna.

Fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar eftir mikið vatnstjón: „Þetta lýsir því bara hvað aðstæður eru óviðunandi“
Tjón í húsnæði Listaháskóla Íslands í Þverholti virðist minna en á horfðist í fyrstu þegar mikill vatnsleki kom þar upp í gær. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að vinna að húsnæðismálum háskólans og flutning þess í Tollhúsið. Eektor segir það löngu tímabært og hlakkar til að glæða miðbæinn lífi aftur.

Auknar félagslegar aðgerðir í kjölfar Covid-19
Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á líf okkar allra. Úttektir sem gerðar hafa verið sýna fram á að faraldurinn, sóttvarnaraðgerðir og sá efnahagslegi samdráttur sem fylgdi í kjölfarið hafi bitnað verst á fólki sem þegar glímdi við erfiðleika eða tilheyrir viðkvæmum hópum.

Ríkisstjórnin kolfallin samkvæmt nýrri könnun
Ríkisstjórnarflokkarnir þrír –Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Vinstri græn –mælast með tæplega fjörutíu prósenta fylgi í nýrri könnun sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið.

„Helsta vandamálið að þetta trufli ekki Bjarna“
Forsætisráðherra segir fjármálaráðherra njóta fulls stuðnings innan ríkisstjórnarinnar, á meðan 70% segjast í könnunum bera lítið traust til ráðherrans. Stjórnarandstaðan krefst enn sjálfstæðrar rannsóknarnefndar um Íslandsbankasöluna.

Telur ólíklegt að Íslandsbankamálið sprengi stjórnarsamstarfið
Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, telur ólíklegt að Íslandsbankamálið svokallaða verði til þess að sprengja stjórnarsamstarf ríkisstjórnarflokkanna þriggja.

„Því miður, en okkur er bara alveg sama“
Trans fólk veigrar sér oft við að leiðrétta kynskráningu sína í þjóðskrá. Ástæðan er einföld: enn eru til staðar fordómar gagnvart trans fólki, ekki aðeins í alþjóðasamfélaginu, heldur einnig hér heima fyrir.

Léttir að yfirvöld viðurkenni að brotið var á þeim
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldi á barnaheimili á Hjalteyri á síðustu öld sanngirnisbætur. Nú þegar liggi fyrir nægar sannanir um að þau hafi verið beitt þar gríðarlegu ranglæti. Maður sem dvaldi á Hjalteyri ásamt systkinum sínum segist klökkur, léttir sé að stjórnvöld hafi ákveðið að hlusta.

Dagný Jónsdóttir ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar
Dagný Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnar Íslands um samhæfingu mála. Hún mun vinna að því að samhæfa stefnu og aðgerðir í málaflokkum sem heyra undir fleiri en eitt ráðuneyti.

Bein útsending: Áframhaldandi umræður um bankasöluna á þingi
Umræða um hlutabréfasölu ríkisins í Íslandsbanka heldur áfram á Alþingi í dag en umræður um bankasöluna stóðu yfir á þingi langt fram á nótt. Halldóra Mogensen þingflokksformaður Pírata mun hefja umræðuna og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sitja fyrir svörum.

Öskruðu „Bjarni burt“ en Bjarni segist ekki á förum
Hópur fólks, um tíu manns, kom saman fyrir utan ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í morgun til að mótmæla bankasölunni á meðan á reglulegum fundi ríkisstjórnarinnar stóð.

Hjalteyrarbörnin fá greiddar sanngirnisbætur frá ríkinu
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldist á barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar sanngirnisbætur. Fram hefur komið að hjón sem höfðu umsjón með börnunum beittu þau gríðarlegu andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þá verður skipuð rannsóknarnefnd um Vöggustofuna í Reykjavík.

Varð fyrir verulegum vonbrigðum þegar Bankasýslan hafnaði birtingu listans
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki á þeim skónum að ætla að verða við kröfum mótmælenda um að hann segi af sér vegna sölu ríkisins á hlutabréfum þess í Íslandsbanka.

Dauði Bankasýslunnar er björgunarlína ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hvarf sjónum yfir páskana þegar ljóst varð hvernig viðbrögð fólksins í landinu voru eftir að listi yfir kaupendur í bréfum Íslandsbanka var birtur. Ekki náðist í formenn ríkisstjórnarflokkanna og ráðherra ríkisstjórnarinnar dögum saman.

Tíu þúsund tonn af þorski í strandveiðipottinum í sumar
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað reglugerð um strandveiðar þorsks fyrir komandi strandveiðitímabil. Tíu þúsund tonn af þorski eru í pottinum á tímabilinu, sem hefst í maí og varir fram í ágúst.

Lögregla til taks vegna mótmæla við Ráðherrabústaðinn
Nokkrir lögreglumenn standa vaktina við Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem á annan tug mótmælenda er saman kominn og bíður þess að fundi ríkisstjórnarinnar ljúki.

Þingmenn ræddu bankasölu langt fram á nótt
Alþingismenn ræddu munnlega skýrslu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um sölu hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka langt fram á nótt en fundi var ekki slitið fyrr en klukkan var langt gengin í þrjú.

„Ef að einhverjir hafa brotið lög þá þarf að rannsaka það til hlítar“
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að sala ríkisins á 22,5% hlut í Íslandsbanka hafi almennt gengið vel. Þó séu atriði við söluna sem þarf að rannsaka.

Engan þarf að öfunda
Spilling getur tekið á sig ýmsar birtingarmyndir – sumar ljósar, aðrar lúmskar. Það er spilling þegar löggæslufólk tekur við mútum, eins og tíðkast sumsstaðar í heiminum. Lögreglan stöðvar bílinn þinn og segir að þú hafir brotið umferðarlög – en að þú getir sloppið við að fara fyrir dómara ef þú borgar smávægilega “sekt” sem lögreglumaðurinn stingur svo í vasann.

Sé rangt hjá Bjarna að enginn hafi getað selt strax með tíu milljóna hagnaði
Páll Magnússon segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra hafa farið með rangt mál þegar hann gerði lítið úr frásögn um að einstaklingur hafi grætt tíu milljónir á innan við sólarhring með því að selja bréf í Íslandsbanka sem hann keypti í útboði Bankasýslunnar. Fjármálaráðherra segir sögu Páls hafa tekið breytingum.