Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Jóhanna lækkaði hæstu laun innan kerfisins vegna kreppunnar
Liður í tiltekt Jóhönnu Sigurðardóttur í kjölfar fjármálahruns var að lækka laun æðstu embættismanna ríkisins.

Veita rúmum milljarði til til menningar-, æskulýðs- og íþróttastarfs
Hálfum milljarði króna verður veitt til menningarstarfs og skapandi greina, með sérstakri áherslu á sjálfstætt starfandi listamenn, og hálfum milljarði króna til íþrótta- og æskulýðsstarfs, til að mæta áhrifum Covid-19.

Formenn flokkanna ræddu launahækkanir í dag
Fyrirhugaðar launahækkanir ráðherra og þingmanna voru ræddar á fundi formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi í morgun. Halldóra Mogensen, formaður þingflokks Pírata, segir flokk sinn tilbúinn með frumvarp um að fella niður hækkanirnar aðhafist ríkisstjórnin ekkert í málinu.

Bjarni segir að útgerðin sjálf muni borga reikninginn vegna makrílmálsins
Fjármálaráðherra segir að reikningurinn verði ekki sendur á skattgreiðendur fari svo að útgerðin vinni málið á hendur ríkinu.

Katrín setur hornin í útgerðina vegna makrílsins
Forsætisráðherra telur að útgerðin eigi að draga makrílkröfu sína til baka.

Rząd przedstawi nowy plan związany z koronawirusem
Podczas dzisiejszej konferencji prasowej zaplanowanej na godzinę 12:00, zostaną przedstawione dalsze działania rządu Islandii w ramach walki z koronawirusem.

Stjórnvöld kynntu tilslakanir sem taka gildi 4. maí
Næstu aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur vegna kórónuveirunnar verða kynntar á blaðamannafundi klukkan tólf í Safnahúsinu í dag.

Annar aðgerðarpakki stjórnvalda mun snúa að fólki og heimilum
Annar aðgerðapakki stjórnvalda til að bregðast við efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldursins mun lúta að heimilum og fólki að sögn félagsmálaráðherra.

Bjarni segir enga ákvörðun hafa verið tekna um stefnu sem varðar ferðatakmarkanir til og frá landinu
Ummæli Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanns Framsóknarflokksins, í hlaðvarpi ViðskiptaMoggans hafa vakið verulega athygli.

Þingmenn, ráðherrar og ráðuneytisstjórar fengu rausnarlega launahækkun
Laun Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra hækkaði um tæplega 130 þúsund krónur.

Mesti samdráttur í heila öld rætist svartsýnustu spár
Fjármála- og efnahagsráðherra segir að ef svartsýnustu spár gangi eftir stefni í mesta samdrátt hér á landi í heila öld. Augljóst sé að stjórnvöld þurfi að koma inn af meiri krafi til að spyrna við á móti efnahagsþrengingum

Nýta megi tímann til að byggja upp „Ísland í uppfærslu 2.0“
Það væri heillavænlegt ef Íslendingum tækist að nýta núverandi ástand í efnahags- og þjóðfélagsmálum til þess að búa í haginn fyrir framtíðina að sögn fjármálaráðherra.

Ríkið fær sitt
Núverandi ástand minnir óþæglileg á ástandið í efnahagsmálum hrunárið 2008 og árin þar á eftir.

Setja fjóra milljarða í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
Ríkisstjórnin hyggst auka hlutafé Isavia um fjóra milljarða með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

Umhugsunarefni hversu langt sum Evrópuríki ganga
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir mikla áherslu lagða á það að halda þinginu gangandi þó svo að aðstæður í samfélaginu séu erfiðar.

Forsætisráðherra og geðheilbrigði fanga í Víglínunni
Forsætisráðherra segir algerlega nauðsynlegt að hafa Alþingi með í ráðum við þær aðstæður sem nú ríki þótt það sé í hægagangi þessar vikurnar vegna kórónufaraldursins. Ný stofnsett geðheilbrigisþjónusta við fanga tekst á við vandamál þeirra við erfiðar aðstæður þessa dagana.

Um að ræða mikilvægt skref til að jafna stöðu foreldra
Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um skipta búsetu barns var afgreitt úr ríkisstjórn á dögunum. Verði frumvarpið að lögum getur barn verið skráð í Þjóðskrá með búsetu hjá báðum foreldrum.
Styttist í að ræða þurfi beina styrki við fyrirtæki að mati Bjarna
Fjármálaráðherra segir að það styttist í að skoða verði beinan fjárstuðning ríkissjóðs við fyrirtæki í landinu ef þau eigi ekki að leggja upp laupana. Hann telji ólíklegt að öll brúarlán bankanna til fyrirtækja með ríkisábyrgð muni innheimtast. Krísan verði lengri en menn voru að vona.

Frumvarp um takmarkanir á landareign lagt fram
Frumvarpi forsætisráðherra um jarðamál sem dreift var á Alþingi í dag er ætlað að skýra reglur og takmarkanir á jarðakaupum. Einnig er kveðið á um skráningu upplýsinga um kaupverð og eigendur.

Bjarni bjartsýnn á samninga en segir krísuna dragast á langinn
Fjármálaráðherra segir samningum við hjúkrunarfræðinga að mestu lokið og hefur trú á að endanlegir samningar náist fljótlega.

Auknar framkvæmdir í samgöngum gætu skapað á fjórða hundrað ársverk
Aukaframlög upp á 6,5 milljarða til samgönguverkefna verður meðal annars nýtt til að fækka þeim þrjátíu og sex einbreiðu brúm sem enn eru á Hringvegi 1. Þá framkvæmdahraði aukinn í ýmsum stórverkefnum í vegagerð, uppbyggingu flugvalla og hafna á þessu ári.

Ríkisstjórnin bætir við sig miklu fylgi
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur ekki notið meira fylgis frá því í apríl 2018 þegar fimm mánuðir voru frá myndun hennar. Miðflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn miss fylgi frá síðustu könnun en stuðningur við aðra flokka stendur í stað samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup.

Stjórnarandstaðan segir slegið á útrétta hönd hennar
Stjórnarandstaðan segir stjórnarflokkana slá á útrétta hönd hennar með því að fella allar hennar tillögur. Atvinnuleysi og samdráttur í samfélaginu verði mun meiri en stjórnarflokkarnir geri ráð fyrir.

Íslendingar miklu betur í stakk búnir en áður
Íslendingar eru í stöðu sem þeir hafa aldrei lifað áður. Þó heimsfaraldrar hafi áður átt sér stað hafi þeir verið með öðrum hætti og önnur eins viðbrögð í samfélaginu hafi ekki gerst.

Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar samþykktur
Alþingi samþykkti í kvöld aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldsins. Aðgerðirnar sem samþykktar voru hljóða upp á tæplega 26 milljarða króna.

Aðgerðapakki upp á tæpa 26 milljarða afgreiddur í kvöld
Alþingi hyggst afgreiða sex mál sem tengjast aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins í kvöld.

Ríkið hyggst greiða Icelandair til að tryggja samgöngur
Íslensk stjórnvöld hyggjast greiða upp tap Icelandair sem hlýst af því að halda flugi gangandi tvo daga í viku til Evrópu og Bandaríkjanna.

Bannað að greiða út arð á meðan ríkisábyrgðar nýtur
Fyrirtæki sem munu njóta skjóls frá skattgreiðendum verður bannað að greiða út arð á meðan ríkisábyrgðar nýtur. Um er að ræða tillögu frá efnahags- og viðskiptanefnd en formaður hennar segir um sanngirnismál að ræða.

Tvö hundruð nema útskriftarferð og 32 milljónir króna í uppnámi
Breki Karlsson biðlar til stjórnvalda að beita sér fyrir samræmdu tryggingakerfi fyrir ferðaskrifstofur. Fjöldi fólks hefur áhyggjur af réttarstöðu sinni gagnvart ferðum sem það hefur greitt inná.

Ráðgjafi ríkisstjórnarinnar færir sig til ASÍ
Halla Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands.