

Íbúi í Borgarnesi segir nærsveitunga sína lamaða vegna illrar meðferðar á hestum í nærsveitinni. Hún er ósátt við yfirvöld að grípa ekki inn í þrátt fyrir endurteknar ábendingar. Dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST segir málið í ferli hjá stofnuninni.
Sex knapar, fjórir erlendir og tveir íslenskir, keppa nú í þolreiðum á hálendi Íslands - á baki íslenska hestsins. Skipuleggjendur þvertaka fyrir að velferð hestanna sé stefnt í hættu með fyrirkomulagi keppninnar; hún snúist ekki aðeins um að ríða hratt heldur ríða rétt.
Dýraverndarsamband Íslands telur velferð hesta ekki gætt í þolreiðarkeppninni Survive Iceland sem hefst á morgun. Um er að ræða 270 kílómetra þolreið um suðurhálendið sem stendur yfir í fjóra daga.
Dagana 25-28. ágúst verður haldin þolreiðarkeppni á vegum Landssambands hestamannafélaga (LH) sem ber yfirskriftina Survive Iceland. Um er að ræða 270 km þolreið um suðurhálendið sem stendur yfir í fjóra daga. Hver hestur fer um 25-35 km á dag, vegalengd sem farin er á um tveimur klukkustundum, án áningar.
Matvælastofnun (MAST) segir fuglaflensusmit enn vera viðvarandi í villtum fuglum og enn sé hætta á að smit berist yfir í alifugla. Dregið hefur úr tilkynningum um smit síðustu mánuði sem er þó ekki merki um að fuglaflensan sé að hverfa.
Paula Masselos, bæjarstjóri Waverley nærri Sydney, vill hætta notkun hákarlaneta við hina vinsælu Bondi strönd, þar sem hún segir netin ekki virka og vera skaðleg öðrum sjávarlífverum.
Matvælastofnun (MAST) ræður fólki eindregið frá því að taka hunda og önnur dýr með að gosstöðvunum í Meradölum. Mengun getur haft afar skaðleg áhrif á dýrin.
Skyndilegur dauði mörg þúsund fiska í Oder-á í Póllandi hefur vakið mikla furðu. Vísindamenn hafa útilokað kvikasilfurseitrun sem mögulega skýringu en segja að selta í ánni hafi mælst óvenjuhá. Forsætisráðherra Póllands telur mikið magn efnaúrgangs valda fiskadauðunum.
Linda Karen Gunnarsdóttir, hestafræðingur, var um helgina kjörin formaður Dýraverndarsambands Íslands á aðalfundi sambandsins. Linda tekur við af Hallgerði Hauksdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Súgfirðingar gengu í gær til minningar þeirra fjölmörgu æðarfugla sem þurfi að aflífa eftir olíuslys í þorpinu fyrr á árinu. Skipuleggjandi segir mikilvægt að atvikið gleymist ekki og að lærdómur verði dreginn af því.
Þeir sem fara um þjóðvegi landsins komast ekki hjá því að taka eftir fuglum sem liggja steindauðir víðsvegar við vegi landsins. Árlega drepst óhemju mikið af fuglum eftir að á þá hefur verið keyrt, ekki síst á þessum tíma ársins.
Á laugardaginn munu Súgfirðingar ganga minningargöngu til heiðurs minningar fjölmargra æðarfugla sem þurfti að aflífa eftir olíuslys á Suðureyri í mars síðastliðnum.
Starfandi sóttvarnalæknir segir að bakterían sem grunur leikur á að hafi greinst í hundi hér á landi í fyrsta skipti smitist mjög ólíklega yfir í menn þó hún geti það vissulega. Hún hefur ekki áhyggjur af stöðunni sem Matvælastofnun hafi þegar náð vel utan um.
Matvælastofnun hefur borist tilkynning um grun og Brucella canis bakteríusýkingu í hundi hér á landi. Sýkingin er súna, sem sagt sjúkdómur sem getur smitast á milli dýra og manna. Þetta er í fyrsta sinn sem grunur um Brucella canis kemur upp hér á landi.
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir tillögu matvælaráðherra um breytingar á reglugerð um hvalveiðar ekki ganga nógu langt. Þjóðin græði ekkert á hvalveiðum og eigi að vera þekkt fyrir verndun hafsins frekar en eyðileggingu þess.
Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum hefur staðfest að landlæg veiruskitu í kúm hér á landi sé af völdum „Bovcov“ eða nautgripakórónuveiru. Í vor gekk veiruskita á kúabúum víða um land og lá grunur að um nautgripakórónuveiru væri að ræða. Með raðgreiningu úr sýni frá kúabúi á Norðurlandi hefur það nú verið staðfest.
Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma.
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa bjargað 4.000 hundum í „hvolpaverksmiðju“ í Virginíu í kjölfar fjölda brota á lögum og reglum um dýravelferð. Þau hafa nú um tvo mánuði til að finna heimili fyrir dýrin.
Kona í Flórída fékk óvæntan gest á baðherbergi sitt á laugardagskvöld þegar græneðla kom upp úr klósettinu hjá henni. Kalla þurfti á sérfræðing til að fjarlægja græneðluna en dýrategundin hefur náð fótfestu í ríkinu eftir að fólk flutti þær inn sem gæludýr á sjöunda áratugnum.
Sextán kóalabirnir hafa fundist dauðir á trjáplantekru í Viktoríuríki í Ástralíu en dánarorsök þeirra er ókunn. Þrettán birnir fundust dauðir 14. júní síðastliðnir og þrír hafa fundist eftir það.
Jasper Pääkkönen, finnskur stórleikari, er staddur á Íslandi að vinna að heimildarmynd um Norður-Atlantshafslaxinn og þær hættur sem að tegundinni steðja. Jasper segist óttast að tegundin deyi út á næstu árum og gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa leyft fiskeldi að festa rætur á Íslandi, nánast eftirlitslausu fyrstu árin.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram drög að breytingu á reglugerð um hvalveiðar þar sem lagt er til að framvegis verði ávallt að vera dýravelferðarfulltrúi um borð á hvalveiðitúrum til að ganga úr skugga um að hvalir séu aflífaðir á sem skjótastan og sársaukaminnstan hátt.
Matvælastofnun eru enn að berast fjölmargar tilkynningar um dauða villtra fugla vegna fuglaflensunnar.
Tiger King stjarnan Bhagavan „Doc“ Antle hefur verið handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni, FBI, og verður færður fyrir dómara á mánudag þar sem hann verður ákærður fyrir peningaþvætti.
ISA-veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði. Grunur um tilvist veirunnar í firðinum vaknaði í lok maí.
Inga Sæland fordæmir afstöðu vinstri grænna en tveir úr þeim flokki eru meðflutningsmenn hennar á frumvarpi þar sem lagt er til að bann verði lagt við blóðmerahaldi á Íslandi.
Starfshópur, sem skipaður var af matvælaráðherra í lok síðasta árs, leggur til að blóðmerahald verði áfram leyfilegt. Matvælaráðherra hefur ákveðið að setja reglugerð um starfsemina sem gildir til þriggja ára þar sem skýrt er kveðið á um hvaða skilyrði starfsemin þurfi að uppfylla.
ISA veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði.
Íbúi á Álftanesi telur ekki ólíklegt að súlan hafi verið smituð af hinni skæðu fuglaflensu sem nú geisar og vonar að smit berist ekki í hundruð fugla sem þarna koma.
Fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndunum um þessar mundir.