Málið hefur vakið gríðarlega athygli síðan Vísir fjallaði um það fyrr í vikunni. Steinunn Árnadóttir íbúi í Borgarnesi sagði nærsveitunga sína lamaða vegna illrar meðferðar á hestum á bæ í Borgarfirði. Þar væri fjöldi hrossa því sem næst lamaðir vegna illrar meðferðar og vannæringar.
Í gær varð eigandi hrossanna við kröfum Matvælastofnunar um að flytja hrossin á beit en Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST sagði í samtali við fréttastofu í gær aðhafst alltof seint. Þá hefur Dýraverndarsamband Íslands sagt MATS endurtekið bregðast illa og seint við rökstuddum grun um slæma meðferð á dýrum í Borgarbyggð. Ábendingar streymi inn án nokkurra viðbragða hjá MAST.
Steinunn segir nú að þrátt fyrir aðkomu bæði MAST og lögreglu, sem á þriðjudagskvöld fór að bænum og hafði afskipti af ábúendum, sé hryssa með folald enn innilokuð í hesthúsinu. Steinunn tilkynnti aðstöðu hryssunnar og folaldsins til lögreglu 16. ágúst síðastliðinn og degi síðar til MAST. Þá hafði hún séð merina í gerði í hesthúsahverfinu í Borgarnesi þar sem hún var bæði vatns- og heylaus.

„Hún var færð til í annað hús og eftirlitsaðilin, Guðlaugur Antonsson, hringir í mig og spyr hvar hryssan sé með folaldið. Ég auðvitað vissi það ekki og hef ekki heyrt frá honum síðan. Það hefur ekkert gerst. Þessi læti eru búin að vera í fjölmiðlum og hún er enn þarna inni,“ segir Steinunn.
„Þessi vesalingsskepna er enn þarna inni í hesthúsi, með folaldið sitt litla, sem ég tilkynnti 16. ágúst. Hún er búin að vera lokuð inni síðan í maí. Þarna er ekki einu sinni dagsbirta.“
Engin viðbrögð fengið frá Svandísi vegna hrossanna
Steinunn birti færslu á Facebook í morgun um stöðu hryssunnar þar sem hún tekur fram að eftir að hún tilkynnti málið til lögreglu og MAST hafi hún sent bréf til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra og eftirlitsaðilar fengið afrit af því bréfi. Hún hafi engin viðbrögð við því fengið.

„Allir hérna í hverfinu eru að tilkynna þetta og það er ekkert búið að gerast,“ segir Steinunn.
Hestamenn í Borgarbyggð hafi þá miklar efasemdir um að betur sé farið fyrir hrossunum, sem hleypt var út fyrr í vikunni, úti á beit vegna vannæringar og kalsarigninga.
„Þau fóru alla vega út, þó það sé ekki eins og maður vildi hafa það. Bara dúndrað út í rigningu en allavega er hending að það er þokkalegt veður hérna þessa dagana,“ segir Steinunn.
„Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir, var búin að segja við mig að það ætti að vörslusvipta þau um þessi hross. Og sérðu fyrri eigendur eru grátandi og vilja fá skepnurnar til baka. Þær eru þarna grindhoraðar, reyna að krafsa, hafa aldrei bitið gras. Þau eru búin að vera inni síðan síðasta haust.“