Norður-Írland

Tveir handteknir til viðbótar vegna dauða norðurírsku blaðakonunnar
Lögreglan á Norður-Írland handtók tvo karlmenn á þrítugsaldri í dag á grundvelli hryðjuverkalaga í tengslum við drápið á Lyru McKee í Londonderry árið 2019. Fjórir aðrir voru handteknir í síðustu viku.

Fjórir handteknir vegna morðs á norðurírskri blaðakonu
Lögreglan á Norður-Írlandi handtók fjóra karlmenn í tengslum við morðið á blaðakonunni Lyru McKee í morgun. McKee var skotin til bana þegar hún fylgdist með óeirðum í Londonderry árið 2019.

Hóta stjórnarslitum verði útgöngusamningnum ekki breytt
Flokkur sambandssinna á Norður-Írlandi hótar því að sprengja heimastjórnina þar verðir breytingar ekki gerðar á útgöngusamningi Bretland og Evrópusambandsins á næstu vikum. Bresk stjórnvöld tilkynntu í vikunni að aðlögunartímabil yrði framlengt á Norður-Írlandi.

Framlengja Brexit-aðlögun Norður-Írlands
Bresk stjórnvöld tilkynntu í dag að aðlögunartími fyrir innflutning til Norður-Írlands eftir útgönguna úr Evrópusambandinu verði enn framlengt. Frestinum er ætlað að veita Bretum og Evrópusambandinu meiri tíma til að komast að niðurstöðu um varanlega lausn.

Bretar felldu saklaust fólk í Belfast
Breskir hermenn drápu fólk sem var blásaklaust í aðgerðum sínum í Belfast fyrir fimmtíu árum. Dánardómstjóri á Norður-Írlandi komst að þeirri niðurstöðu að hermenn hefðu valdi dauða að minnsta kosti níu af tíu manns sem féllu. Breska ríkisstjórnin ætlar að veita fyrrverandi hermönnum á Norður-Írlandi aukna friðhelgi fyrir saksókn.

Leiðtogi norðurírsku heimastjórnarinnar segir af sér
Arlene Foster, oddviti heimastjórnar Norður-Írlands, sagði af sér vegna innanflokksátaka í Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu í dag. Hún ætlar jafnframt að stíga til hliðar sem leiðtogi flokksins.

Leiðtogi Sinn Féin biðst afsökunar á morðinu á Mountbatten lávarði
Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, hefur beðist afsökunar á dauða Mountbatten lávarðs, frænda hertogans af Edinborg. Mountbatten var myrtur af Írska lýðveldishernum (IRA) árið 1979.

Óeirðirnar á Norður-Írlandi halda áfram enn eina nóttina
Til átaka kom á milli ungmenna og lögreglu í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Köstuðu ungmennin steinum og flugeldum að lögreglumönnum sem svöruðu með háþrýstivatnsbyssum. Óeirðir hafa brotist út daglega frá því um páskana.

Fimmtíu lögregluþjónar hafa særst á Norður-Írlandi
Minnst fimmtíu lögregluþjónar hafa særst í átökum í róstum á Norður-Írlandi síðustu sex nætur. Kveikt var í strætisvagni í nótt.

Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi
Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar.

Írar boða umfangsmiklar tilslakanir í næstu viku
Írsk stjórnvöld hafa ákveðið að draga verulega úr aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins. Frá og með þriðjudegi í næstu viku má opna verslanir á nýjan leik, sem og hárgreiðslustofur, söfn og bókasöfn svo fátt eitt sé nefnt.

Allir núlifandi forsætisráðherrar gagnrýna Johnson
David Cameron varð fimmti fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands til þess að gagnrýna áform Boris Johnson, forsætisráðherra, um að brjóta útgöngusamninginn sem hann gerði sjálfur við Evrópusambandið. Breska þingið greiðir atkvæði um frumvarp þess efnis síðar í dag.

Bretar og ESB deila enn á ný
Ríkisstjórn Bretlands ætlar að setja ný lög sem myndu breyta tollakerfi landsins gagnvart Evrópusambandinu. Forsætisráðuneytið þvertekur fyrir að lögin brjóti gegn Brexit-samkomulaginu við ESB.

Köstuðu bensínsprengjum að lögregluþjónum
Á þriðja tug norður-írskra lögreglumanna slösuðust eftir að hópar ungmenna köstuðu bensínsprengjum að þeim.

Tony Blair segir John Hume hafa talað í sig kjark
John Hume sem var einn aðalhvatamaðurinn að föstudagsins langa friðarsamkomulaginu á Norður Írlandi er látinn. Tony Blair segir Hume hafa talað í hann kjark til að ná fram friðarsamningum.

John Hume er látinn
Hume hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998.

Ferðalangar frá Íslandi ekki skikkaðir í sóttkví í Englandi
Alls eru 59 ríki og svæði sem ferðast má frá til Englands, Wales og Norður-Írlands, án þess að þurfa að sæta sóttkví, frá og með deginum í dag. Ísland er á meðal þessara svæða, og þurfa ferðalangar héðan nú ekki að sæta sóttkví við komuna.

Jean Kennedy Smith fallin frá
Jean Kennedy Smith, bandarískur erindreki sem gegndi lykilhlutverki í sáttaviðleitunum á Norður-Írlandi, er látin, 92 ára að aldri.

Ákæra mann fyrir morðið á blaðakonunni Lyru McKee
Lögregla á Norður-Írlandi hefur ákært 52 ára karlmann vegna morðsins á blaðakonunni Lyru McKee í Londonderry á síðasta ári.

Fjórir handteknir vegna morðs Lyra McKee en morðinginn gengur enn laus
Mennirnir fjórir voru handteknir á grundvelli hryðjuverkalaga Bretlands og voru þeir handteknir í Londonderry.

Sinn Fein með forskot í könnunum fyrir írsku kosningarnar
Írski þjóðernisflokkurinn sem hefur lengi verið bendlaður við Írska lýðveldisherinn (IRA) hefur aldrei setið í ríkisstjórn en hinir stóru flokkarnir neita að vinna með honum.

Klofin þjóð í óvissu
Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu skilur eftir sig klofna þjóð en ekki sameinaða, eins og Boris Johnson forsætisráðherra vonar að verði.

Grunur um kórónaveirusmit á Bretlandseyjum
Átján eru nú látnir af völdum Wuhan-veirunnar svonefndu og á sjöunda hundrað manna hefur smitast.

Segir Boris Johnson ljúga um Brexit
Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands, fellst ekki á að það verði ekki tollgæsla á milli Norður-Írlands og Bretlands þegar Brexit samningur Boris Johnson tekur gildi eins og Johnson hefur haldið fram.

Biður bræður um að gefa sig fram vegna vörubílsins í Essex
Lögregla í Bretlandi hefur lýst eftir tveimur norður-írskum bræðrum í tengslum við rannsókn á dauða 39 manna sem fundust látin í vörubíl í bænum Grays í síðasta mánuði.

Réttað yfir fyrrverandi IRA-liða vegna morða
Réttað verður yfir fyrrverandi IRA-liða vegna sprengjuárásar á tvo hermenn árið 1972. Eftir friðarsamkomulagið 1998 var 200 IRA-liðum heitið friðhelgi. Mál Downeys og útganga Bretlands úr ESB er vatn á myllu öfgahópa í landinu.

Norður-Írar búa sig undir miklar frjálsræðisbreytingar
Á miðnætti verður banni við þungunarrofi og hjónaböndum samkynhneigðra aflétt.

Úrslitadagar í Lundúnum, Brussel og Belfast
Eftir að Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands tilkynnti að samningur væri í höfn um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu varð fljótt ljóst að hann hafði aðeins náð samkomulagi við Evrópusambandið, ekki eigin bandamenn heima fyrir.

Mun óska eftir frestun ef þingið samþykkir ekki samninginn fyrir laugardag
Boris Johnson á nú í kapphlaupi við tímann þar sem hann reynir að ná fram samningi um Brexit fyrir leiðtogafund ESB á fimmtudaginn.

Bretar útlisti Brexit-hugmyndir sínar að fullu
Forsætisráðherra Írlands hefur sakað forsætisráðherra Breta um að afvegaleiða umræðuna og gera lítið úr áhrifum áætlunar bresku stjórnarinnar á efnahagslíf Íra.