Danski boltinn

FCK í bikarúrslit eftir ótrúlegan markaleik en Silkeborg féll úr leik
Íslendingalið FCK í Danmörku er komið í úrslit dönsku bikarkeppninnar eftir 5-3 sigur á Nordsjælland í undanúrslitum í kvöld. Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Silkeborg eru hins vegar úr leik.

Mikael kom AGF aftur á sigurbraut
Mikael Anderson skoraði eina mark leiksins er AGF vann góðan 1-0 útisigur gegn Nordsjællandi í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Íslendingaliðin töpuðu bæði
Íslendingaliðin FC Kaupmannahöfn og Lyngby töpuðu leikjm sínum í dönsku úrvalsdeildinni í dag. FCK tapaði 0-1 á heimavelli fyrir erkifjendum sínum í Bröndby á meðan Lyngby tapaði fyrir Álaborg á útivelli. Til að gera hlutina enn verri þá brenndi FCK af vítaspyrnu undir lok leiks.

Aron hetja Horsens í Íslendingaslag
Aron Sigurðarson skoraði jöfnunarmark Horsens er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Aroni Elísi Þrándarsyni og félögum hans í OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

FC Kaupmannahöfn á enn möguleika á að vinna tvöfalt þrátt fyrir naumt tap
Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson voru báðir í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar þegar liðið tapaði naumlega 3-2 gegn Nordsjælland í fyrri leik liðanna í undanúrslitum danska bikarsins.

Bjórkastarar settir í bann
Stuðningsmenn danska fótboltafélagsins Vejle fá bæði bann og sekt frá félaginu sínu eftir hegðun þeirra í bikarleik á dögunum.

Kolbeinn Birgir skoraði þegar Lyngby missti niður tveggja marka forystu
Íslendingalið Lyngby gerði 2-2 jafntefli við OB í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lyngby komst tvívegis yfir í leiknum.

Íslendingalið FCK greip ekki gæsina þegar að hún gafst
Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson komu báðir við sögu í liði FC Kaupmannahafnar í dag þegar að liðið þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli við AGF í dönsku úrvalsdeildinni.

Stefán og félagar köstuðu frá sér sigrinum
Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Silkeborg þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið tók á móti Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Mark Sævars Atla hjálpaði Lyngby upp úr botnsætinu
Landsliðsmaðurinn Sævar Atli Magnússon var á skotskónum þegar Lyngby komst upp úr botnsæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á AC Horsens. Sigurinn gefur liðinu byr undir báða vængi í fallbaráttunni.

Senda keppinautunum ný klósett
Stuðningsmenn FC Kaupmannahafnar létu illa eftir svekkjandi 1-0 tap á útivelli gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær og það hefur haft óvenjulegar afleiðingar.

Mikael Neville spilaði allan leikinn í sigri
Einn leikur fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Hákon Arnar undir smásjá þýskra úrvalsdeildarliða
Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson gæti orðið einn af eftirsóttustu leikmönnum í Skandinavíu þegar félagaskiptaglugginn í stóru deildunum opnar í sumar.

Tveir Íslendingar í úrvalsliði mánaðarins í Danmörku
Íslenskir knattspyrnumenn hafa verið áberandi í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta að undanförnu.

FCK áfram í bikar þrátt fyrir jafntefli
FC Kaupmannahöfn er komið áfram í undanúrslit danska bikarsins eftir marklaust jafntefli við Vejle sem leikur í næst efstu deild. FCK vann 2-0 sigur í fyrri leik liðanna.

Sjóðheitur Orri áfram á markaskónum
Orri Steinn Óskarsson skoraði annað marka Sönderjyske þegar liðið féll úr leik í danska bikarnum í knattspyrnu í dag. Sönderjyske tapaði 3-2 gegn Silkeborg og samtals 5-2.

Alfreð frá út tímabilið
Alfreð Finnbogason mun ekki spila með Lyngby það sem eftir lifir tímabils eftir að hafa meiðst í síðasta leik liðsins. Liðið er sem stendur í neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Íslendingalið FCK stal sigrinum og skaust á toppinn
Íslendingalið FCK vann mikilvægan 2-1 sigur er liðið tók á móti Nordsjælland í toppsla dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Með sigrinum skaust FCK á toppinn.

Jafnt í Íslendingaslag og Sævar Atli lagði upp
Arnór Sigurðsson og Arnór Ingvi Traustason voru báðir í byrjunarliði IFK Norrköping sem gerði 1-1 jafntefli við Aron Bjarnason og félaga hans í Sirius í sænska boltanum í dag.

Orri Steinn hetjan | Viðar Örn og Árni Vil á skotskónum
Alls voru þrír íslenskir framherjar á skotskónum í kvöld. Orri Steinn Óskarsson heldur áfram að skora en hann skoraði sigurmark SønderjyskE þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Hákon bestur og efnilegastur í mars
Hákon Arnar Haraldsson var valinn bæði besti og leikmaðurinn í dönsku úrvalsdeildinni í mars.

Segir að Hákon sé með „alþjóðlega hæfileika“ og „mikla fótboltagreind“
Hákon Arnar Haraldsson er nú með fjögurra ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið sem framlengdi við íslenska landsliðsstrákinn áður en hann mætti í leiki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM 2024.

Hákon Arnar samdi aftur við FCK: „Einn sá áhugaverðasti sem ég hef séð í mörg ár“
Hákon Arnar Haraldsson kemur til móts við íslenska A-landsliðið með nýjan samning í vasanum.

Hamrén rekinn frá Álaborg
Erik Hamrén, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, hefur verið rekinn sem þjálfari Álaborgar í dönsku úrvalsdeildinni.

Átta spor, enginn heilahristingur og Sævar Atli er klár í landsleikina
Sævar Atli Magnússon þurfti að fara af velli eftir þungt höfuðhögg í 1-1 jafntefli Lyngby og AC Horsens í dönsku úrvalsdeildinni. Hann var á dögunum valinn í íslenska A-landsliðið en talið var að hann myndi missa af komandi leikjum vegna meiðslanna. Svo verður ekki.

Alfreð skoraði fyrir Lyngby og Hákon fyrir FCK
Alfreð Finnbogason heldur áfram að skora mikilvæg mörk fyrir Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, en hann skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Horsens í dag. Þá skoraði Hákon Arnar Haraldsson fyrra mark FCK í 2-1 sigri gegn Viborg.

Willum Þór og Orri Steinn hetjurnar
Willum Þór Willumsson kom inn af bekk Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Utrecht. Orri Steinn Óskarsson er þá kominn á blað fyrir Sønderjyske í dönsku B-deildinni.

Þjálfara Elíasar Rafns sparkað
Danska úrvalsdeildarfélagið Midtjylland hefur ákveðið að láta þjálfara sinn, Albert Capellas, fara. Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson leikur með liðinu.

Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar í Danmörku
Þrír Íslendingar eru í liði 21. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta karla.

Mikael og félagar tryggðu sér sæti í efri hlutanum
Mikael Neville Anderson og félagar hans í AGF tryggðu sér í kvöld sæti í efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann góðan 2-1 útisigur gegn Randers.