Sænski boltinn

Ari Freyr leggur skóna á hilluna og snýr sér að þjálfun
Ari Freyr Skúlason hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir feril sem spannar nærri tvo áratugi. Hann mun nú snúa sér að þjálfun hjá IFK Norrköping í Svíþjóð, þar sem hann hefur spilað undanfarin ár.

Elfsborg á toppinn þegar aðeins tvær umferðir eru eftir
Íslendingalið Elfsborg er komið á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni.

Jón Guðni sagður á leið heim
Miðvörðurinn Jón Guðni Fjóluson er sagður vera á leið heim en hann er í dag samningsbundinn sænska úrvalsdeildarliðinu Hammarby.

Elfsborg á toppinn þegar þrjár umferðir eru eftir
Íslendingalið Elfsborg er komið á topp sænsku úrvalsdeildarinnar þegar aðeins þrjár umferðir eru til loka tímabilsins. Í Danmörku var Sverrir Ingi Ingason í byrjunarliði Midtjylland sem vann dramatískan sigur.

Vonar að fólkið þori að mæta í gulu á leik stelpnanna
Sænska kvennalandsliðið í fótbolta er að fara að spila leiki í Þjóðadeildinni í þessari viku alveg eins og það íslenska.

Tvö mörk frá Emelíu tryggðu Kristianstad áfram
Emelía Óskarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir sænska liðið Kristianstad þegar liðið tryggði sér sæti í næstu umferð sænska bikarsins í dag.

Sænska liðið í lögreglufylgd út á flugvöll og stuðningsfólkið í lögregluvernd
Leikur Belgíu og Svíþjóðar í undankeppni EM í gærkvöldi var flautaður af í hálfleik eftir að sænska liðið frétti fyrst þá af skotárás á sænska stuðningsmenn í Brussel.

Ari leikur ekki áfram með Norrköping og gæti lagt skóna á hilluna
Íslenski knattspyrnumaðurinn Ari Freyr Skúlason mun ekki leika áfram með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á næsta tímabili.

Guðrún skrefi nær riðlakeppninni
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í liði Rosengård eru einum leik frá riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið vann umspilsleik sinn í dag.

Daníel Guðjohnsen á lista yfir efnilegustu fótboltamenn heims
Daníel Tristan Guðjohnsen, leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Malmö, er á lista The Guardian yfir 60 efnilegustu knattspyrnumenn heims sem fæddir eru árið 2006.

Magnús Agnar dæmdur í átján mánaða bann í Svíþjóð
Íslenski umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon má ekki starfa í sænska fótboltanum næsta eina og hálfa árið.

Ísak skoraði, Malmö tapaði og Elfsborg komst í efsta sætið
Þrír leikir fóru fram í Allsvenskan, efstu deild Svíþjóðar í knattspyrnu, og Íslendingar komu við sögu í þeim öllum. Ísak Andri Sigurgeirsson var sá eini sem komst á blað en hann skoraði mark Norrköping í 1-2 tapi gegn Varnamo.

Sjáðu Svein Aron leggja upp og brenna af dauðafæri fyrir opnu marki
Sveinn Aron Guðjohnsen kom svo sannarlega við sögu í 2-1 sigri Elfsborg á Varberg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Beta hættir hjá Kristianstad eftir nærri fimmtán ár í starfi
Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir, nær alltaf kölluð Beta, mun láta af störfum sem þjálfari sænska efstu deildarliðsins Kristianstad þegar yfirstandandi leiktíð lýkur. Hún hefur starfað fyrir félagið undanfarin 15 ár eða svo.

Fyrsta mark Guðmundar Baldvins kom í súru tapi
Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið skoraði hann undir lok fyrri hálfleiks en Mjallby missti forystuna niður og tapaði 3-2 á heimavelli fyrir Varnamo.

Svíar hneykslast á því að stelpurnar þeirra voru sendar upp í sveit
Svíþjóð er að spila í Þjóðadeild kvenna í fótbolta í dag alveg eins og íslenska landsliðið. Á meðan íslensku stelpurnar spila á Ruhrstadion, heimavelli VfL Bochum, þá eru sænsku stelpurnar ekki eins hrifnar af sínum leikstað.

Hörður Björgvin meiddist á fyrstu mínútu
Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu og gríska liðsins Panathinaikos, fór meiddur af velli í kvöld þegar lið hans tók á móti AEK Aþenu.

Mikilvæg stig í súginn hjá Valgeiri og félögum
Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Häcken töpuðu dýrmætum stigum í sænsku úrvalsdeildinni þegar liðið beið lægri hlut gegn Kalmar í dag.

Fyrsta mark Ísaks í sænsku deildinni í jafntefli Norrköping
Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði fyrir Norrköping sem gerði jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Þetta er fyrsta mark Ísaks Andra fyrir félagið síðan hann kom frá Stjörnunni í sumar.

Markvörðurinn bjargaði stigi í blálokin og draumurinn lifir
Íslendingalið Öster í sænsku B-deildinni í fótbolta náði í stig gegn Västerås SK á heimavelli í gærkvöld þegar liðin gerðu 2-2 jafntefli. Það væri ekki frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að markvörður Öster skoraði jöfnunarmark í 96. mínútu leiksins.

Hlín skoraði og lagði upp í sigri Kristianstad
Hlín Eiríksdóttir skoraði annað mark Kristianstad og lagði upp það fyrra er liðið vann góðan 2-1 sigur gegn Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Sjáðu tvennu Guðrúnar í endurkomu Rosengård | Bayern missteig sig
Guðrún Arnardóttir skoraði tvö mörk þegar Rosengård vann 3-1 sigur á IF Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Bayern München misstigu sig í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Óvissa uppi um næstu skref hjá Ara Frey: „Eina sem ég hef lifað fyrir“
Samningur Ara Freys Skúlasonar, atvinnumanns og fyrrum landsliðsmanns Íslands í fótbolta, við sænska úrvalsdeildarfélagið IFK Norrköping rennur út eftir yfirstandandi tímabil. Óvissa er uppi um framhaldið.

Hlín allt í öllu í sigri Kristianstad
Hlín Eiríksdóttir fór á kostum í liði Kristianstad sem vann 4-2 sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Tveir aðrir íslenskir leikmenn komu við sögu í leikjum dagsins.

Arnór Ingvi valinn leikmaður mánaðarins í Svíþjóð
Arnór Ingvi Traustason var í dag valinn besti leikmaður ágústmánaðar í sænsku úrvalsdeildinni.

Bergþóra gengin til liðs við Örebro
Knattspyrnukonan Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er gengin í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Örebro frá Breiðabliki.

Þrír leikir án sigurs hjá Kristianstad
Íslendingalið Kristianstad gerði 1-1 jafntefli við Djurgården í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Þetta var þriðji leikur liðsins í röð án sigurs.

Sjáðu Hákon Rafn fá rautt og stoðsendingu Arons
Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson var rekinn af velli þegar Elfsborg, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, tapaði 1-0 gegn Varnamo á útivelli. Þá tapaði Íslendingalið Sirius fyrir Halmstad þó Aron Bjarnason hafi lagt upp mark.

Sveinn Aron orðaður við lið í Þýskalandi
Greint er frá því í þýska miðlinum Bild í dag að þýska B-deildar liðsins Hansa Rostock sé með augun á Sveini Aroni Guðjohnsen, framherja Elfsborg sem situr um þessar mundir á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar.

Rúnar Þór til Willem II frá Öster
Vinstri bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson er genginn í raðir hollenska B-deildarliðsins Willem II frá Öster í Svíþjóð.