Sjálfstæðisflokkurinn

Endurnýjun á flokksforystu Sjálfstæðisflokks sé ekki ávísun á fylgisaukningu
Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, telur vangaveltur Páls Magnússonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um hvort fullreynt sé að flokkurinn nái árangri með núverandi forystu, geta verið vísir að ákalli um að stokkað verði upp í flokksforystunni á næstu árum, en bendir á að endurnýjun á flokksforystu sé ekki ávísun á fylgisaukningu.

Kallar eftir umræðu um Bjarna Ben
Páll Magnússon, fráfarandi fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, segir að Sjálfstæðismenn hljóti að ræða það hvort fullreynt sé að ná árangri með núverandi formanni flokksins, Bjarna Benediktssyni.

Uppbygging á íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði – skipsbrot Sjálfstæðisflokksins
Það er engin djörfung né skýr framtíðarsýn þegar kemur að uppbyggingu húsnæðis í Hafnarfirði undir stjórn núverandi meirihluta. Síðustu 7 ár hefur ládeyða og skortur á sóknarhug í skipulags- og byggingarmálum verið einkennandi á tíma meirihluta Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.

Stjórnar pólitískum umræðuþætti sem sitjandi þingmaður
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið fenginn til að halda utan um pólitíska umræðuþætti á sjónvarpsstöð Hringbrautar fram að næstu alþingiskosningum 25. september. Páll er auðvitað áfram sitjandi þingmaður þangað til nýtt þing tekur við og mun því stýra þættinum sem slíkur.

Fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins vegna faraldursins
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað að fresta landsfundi flokksins sem átti að fara fram síðustu helgina í ágúst um óákveðinn tíma. Þetta er í þriðja skiptið á innan við ári sem landsfundi er frestað vegna kórónuveirufaraldursins.

Sjálfstæðisflokkur vinsælastur hjá körlum en VG hjá konum
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur yfirburða fylgis meðal karla en Vinstri græn meðal kvenna samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis. Samfylkingin hefur mesta fylgið hjá yngstu kjósendunum en elstu kjósendurnir kjósa flestir Sjálfstæðisflokkinn.

Brynjar segir Gísla Martein stíflaðan af woke- og RÚV-frekju
Brynjar Níelsson þingmaður ritar pistil þar sem hann leiðir að því líkur að Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður sé ekki eins frjálslyndur og hann gefur sig út fyrir að vera.

Bjarni: Þetta er varúðarráðstöfun
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þær sóttvanraraðgerðir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld séu varúðarráðstafanir. Hann blæs á það að einhver óánægja sé innan raða Sjálfstæðismanna með hertar aðgerðir innanlands.

Búist við miklum hasar á fundi ríkisstjórnar
Verulegur þrýstingur er á ráðherra frá stjórnarþingmönnum um að gefa ekki eftir þau sjónarmið sem flokkarnir vilja standa fyrir. Komandi kosningabarátta skerpir þær línur.

Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn gæti skýrt andstöðuna
Þingflokksformaður Vinstri grænna segir lítinn stuðning meðal kjósenda Vinstri grænna við áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf ekki koma sér á óvart. Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn, sem sé á hinum enda pólitíska rófsins, geti skýrt andstöðuna.

Háværir hópar innan Vinstri grænna muni láta í sér heyra
Stjórnmálafræðingur telur að mjög háværir hópar innan Vinstri grænna muni láta í sér heyra í komandi kosningum vegna mótstöðu við áframhaldandi stjórnarsamstarf með Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki. Yfirgnæfandi meirihluti fylgismanna flokksins eru mótfallnir samstarfinu.

Kjósendur VG afgerandi á móti frekara ríkisstjórnarsamstarfi
Rúm sjötíu prósent kjósenda Vinstri grænna eru mótfallin áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir alþingiskosningar 25. september, samkvæmt könnun Maskínu sem gerð var fyrir fréttastofu dagana 14. til 22. júní. Aðeins tæpur þriðjungur, eða 29 prósent, kjósenda VG er fylgjandi frekara samstarfi.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Kraganum kynntur
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar var samþykktur á fundi Kjördæmisráðs flokksins sem fór fram í Valhöll í gær.

Hrópaði að Bjarna í þingsal: „Þetta var nú bara í hita leiksins“
Fyrsti varaforseti Alþingis var í dag truflaður í miðri kynningu sinni á næsta þingmanni í pontu með hrópum Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, að Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, sem hafði þá nýlokið svari sínu við óundirbúinni fyrirspurn.

Braga og Gunnars minnst á Alþingi
Þingmenn minntust tveggja látinna þingmanna – þeirra Braga Níelssonar og Gunnars Birgissonar – þegar þing kom saman klukkan 11 í morgun. Bragi lést 13. júní síðastliðinn og Gunnar 14. júní.

Ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri hjá OECD
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi þingmaður og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin til starfa hjá Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sem framkvæmdastjóri Þróunarmiðstöðvar stofnunarinnar.

Páll segir skipun Kristjáns Þórs hafa skaðað Sjálfstæðisflokkinn
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í grein í Morgunblaðinu að það hafi verið sjálfskaparvíti að gera Kristján Þór Júlíusson að sjávarútvegsráðherra. Hægt hefði verið að komast hjá því að valda grunsemdum um hagsmunaárekstra með því að sleppa því.

Brynjar tekur þriðja sætið og Sigríður í heiðurssæti
Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi Alþingiskosningar hafa verið samþykktir á fundi Varðar, fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík. Fundurinn var haldinn í Valhöll í dag og munu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, leiða listana.

Segir Brynjar í bullinu og trúir ekki að hann sé viðkvæmt blóm
„Fyrstu viðbrögð mín voru bara þau að það væri kannski kominn tími til að Brynjar Níelsson kynnti sér málin aðeins áður en hann færi að skrifa greinar um þau,“ sagði Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við grein Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem birtist á Vísi í dag.

Samtal lögreglumannanna hafi lýst fordómum
Formaður nefndar um eftirlit með lögreglu (NEL) segir ljóst að samtal lögreglumannanna tveggja við Ásmundarsal, sem nefndin taldi ámælisvert, hafi ekki verið persónulegt. Það hafi snúið beint að þeim sem lögregla hafði afskipti af á vettvangi, lýst fordómum og því fullt tilefni fyrir nefndina að fjalla sérstaklega um það.

Halla Bergþóra mun ekki tjá sig neitt frekar um samtalið við dómsmálaráðherra
Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ætlar ekki að tjá sig efnislega að neinu leyti um hið fræga símtal sem hún átti við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.

...en með ólögum eyða
Nefnd um eftirlit með lögreglu telur vísbendingar um að dagbókarfærsla lögreglu um meint sóttvarnabrot í Ásmundarsal á Þorláksmessu hafi verið efnislega röng og ekkert tilefni hafi verið til upplýsingagjafar af slíku tagi.

„Treysti mér ekki til að vinna í þessu athugasemdarlaust“
Arnar Þór Jónsson dómari við Héraðsdóm í Reykjavík ákvað að skella sér í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn um daginn. Hann segir í viðtali í hlaðvarpinu 24/7 að það sé mikilvægt að það eigi sér stað vitundarvakning í samfélaginu um réttarkerfið.

Haraldur hættur við að hætta líka
Haraldur Benediktsson þingmaður hefur ákveðið að þiggja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Fýlupúkafélagið í Sjálfstæðisflokknum safnar vopnum sínum
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gaf það út í gær að hann væri hættur við að hætta í pólitíkina. Hann skorar nú á Harald Benediktsson þingmann félaga sinn í flokknum að gera slíkt hið sama.

Eftir að hafa legið kófsveittur undir feldi hefur Brynjar ákveðið að hætta við að hætta
Brynjar Níelsson þingmaður hefur gefið það út að hann ætli að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Haraldur segist reka öðruvísi pólitík en Þórdís Kolbrún
Haraldur Benediktsson er þungt hugsi þessa dagana yfir því hvort hann þiggi annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, en í því hafnaði hann í prófkjöri flokksins um helgina.

Segir Eyjamenn hafa hótað að opna ekki kosningamiðstöð ef Páll yrði í heiðurssæti
Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum hafa hótað að opna ekki kosningaskrifstofu í Eyjum fyrir komandi þingkosningar og draga sig úr kosningabaráttu fyrir flokkinn ef Páll Magnússon, núverandi oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, yrði í heiðurssæti.

Þórdís þakklát fyrir traustið og Haraldur hvattur til að þiggja sætið
„Þetta er afgerandi traust og yfirlýsingu frá fólkinu í kjördæminu. Ég er auðvitað afskaplega þakklát fyrir það,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem bar sigur úr býtum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. „Þetta er breiður stuðningur og mikill, sem ég fann alveg fyrir en samt leyfði ég mér að dreyma um svona niðurstöðu en þorði ekki að búast við henni.“

Fagnar góðu gengi kvenna í prófkjörum flokksins
Formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna fagnar góðum árangri kvenna í prófkjörum flokksins fyrir komandi kosningar. Kynjahlutföll oddvitanna í kjördæmunum sex eru jöfn og útlit er fyrir að sjö konur muni taka sæti á Alþingi fyrir flokkinn á næsta kjörtímabili, haldi flokkurinn fylgi sínu.