
Vinnumarkaður

Aðgerðapakki stjórnvalda: Fríar skólamáltíðir, sérstakur vaxtastuðningur og hærri barnabætur
Húsaleigulögum verður breytt og skýrari rammi settur um ákvörðun og fyrirsjáanleika leigufjárhæðar. Þá verður sérstakur vaxtastuðningur kynntur heimilunum á þessu ári. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem stjórnvöld leggja til í aðgerðapakka til að koma til móts við aðila vinnumarkaðarins í gerð kjarasamnings, sem undirritaður var síðdegis.

Bein útsending: Skrifað undir fjögurra ára kjarasamning
Stefnt er að undirritun kjarasamninga til fjögurra ára félaga í Starfsgreinasambandinu, Eflingar og Samiðnar - breiðfylkingar stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins klukkan 17 í dag. Samningarnir ná til tug þúsunda manna. Ríkisstjórnin kynnir aðkomu sína að samningnum á blaðamannafundi klukkan 18. Allt í beinn útsendingu á Vísi auk þess sem fylgst er með gangi mála í vaktinni.

Einstakt tækifæri fyrir samfélagið og vonar að skrifað verði undir í dag
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bindur vonir við að sveitarfélögin komi í sameiningu að aðgerðapakka til að greiða fyrir undirritun kjarasamninga. Hún bindur vonir við að gengið verði frá síðustu lausu endum samninganna í dag.

Eðlilegt að starfsmenn og stjórnendur skipti um vinnu reglulega
Erlendis er víða talað um að þumalputtareglan sé sú að æskilegt sé að skipta um starf á eins til þriggja ára fresti. Að undanskildum stjórnendum, þar er oft talað um fimm til tíu ára starfstímabil.

Björn Brynjúlfur nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Gengið hefur verið frá ráðningu Björns og hefur hann störf þann 1. maí næstkomandi.

„Stjórnendur átta sig ekki alltaf á því að starfslýsing er ekki nóg“
„Stjórnendur átta sig ekki alltaf á því að starfslýsing er ekki nóg. Starfslýsing er upphafspunktur en ekki endapunktur,“ segir Tómas Bjarnason sviðsstjóri Stjórnendaráðgjafar Gallup.

Bein útsending: Niðurstöður könnunar um stöðu launafólks kynntar
Varða – rannsóknarstofnun Vinnumarkaðarins mun kynna niðurstöður nýrrar spurningakönnunar um stöðu launafólks á Íslandi á fundi í Þjóðmenningarhúsinu sem hefst klukkan 12.

Ræða mögulegar verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli
Fulltrúar VR mættu til síns fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Þetta var fyrsti fundurinn frá því VR klauf sig frá breiðfylkingunni fyrir rúmri viku. Formaðurinn segir ýmis sérmál VR standa út af borðinu.

Lokakröfur Eflingar: Uppsagnarvernd, trúnaðarmenn og orðalag um ræstingarfólk
Formaður Eflingar segir einkum þrennt standa út af í samningsviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Náist sátt um þau atriði ætti að vera hægt að undirrita kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum.

Fjórtán sagt upp í einu hópuppsögn mánaðarins
Fjórtán manns var sagt upp í einu hópuppsögn til tilkynnt var til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði.

Segir undirskrift handan við hornið
Formaður Starfsgreinasambandsins á von á því að skrifað verði undir kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. Viðsnúningur varð í viðræðum um helgina og nú er aðkoma sveitarfélaganna það eina sem stendur út af borðinu.

Telja hóflegar launahækkanir ekki duga einar og sér
Viðræðunefnd VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) hafa formlega óskað eftir að ríkissáttasemjari hlutist til um viðræður við Samtök atvinnulífsins. Nefndin telur að í viðræðunum dugi hóflegar launahækkanir ekki einar og sér.

Ögurstund runnin upp og Vilhjálmur býr sig undir það versta
Ögurstund er runnin upp í kjaraviðræðum Eflingar, Starfsgreinasambandsins og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins. Formaður SGS segist búa sig undir það versta en samninganefndir funda nú hjá ríkissáttasemjara í skugga verkfallsboðunar.

„Þess fullviss að verkfallsboðunin verður samþykkt“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist vera fullviss um að félagsmenn muni samþykkja verkfallsboðun. Boðað hefur verið til atkvæðagreiðslu um verkföll starfsfólks sem starfa við ræstingu á mánudag. Fundað verður á eftir í Karphúsinu klukkan níu.

Fyrirmyndir stækka framtíðina
Stundum segir mynd – eða myndband – meira en þúsund orð. Við leggjum því til að þú horfir á myndbandið hér að neðan áður en lengra er haldið.

Níu hundruð félagsmenn Eflingar gætu lagt niður störf í mars
Líkur eru á að um níu hundruð félagsmenn Eflingar, sem starfa við ræstingar, fari í ótímabundið verkfall um miðjan mars ef fram heldur sem horfir. Formaður Eflingar segir verkfall ræstingafólks munu bíta fast á öllum sviðum samfélagsins.

Kjósa einnig um verkfall hjá ræstingarfólki
Ákveðið var á fundi samninganefndar Verkalýðsfélags Akraness í dag að halda atkvæðagreiðslu um hvort ræstingarfólk sem tilheyrir VLFA vilji í verkfall. Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélagsins, segir að verði verkfall samþykkt geti það líklega hafist 25. mars.

Segir verkfallsaðgerðir ekki viðeigandi
Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist þykja það mjög miður að samninganefnd Eflingar upplifi að trúnaðarbrestur hafi orðið í viðræðunum og skoði verkfallsaðgerðir.

Vilja fá vinnandi fólk til að segja börnum frá vinnumarkaði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Í tilkynningu um verkefnið segir að markmið þess sé að tengja alls konar fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins þar sem það segi nemendum frá starfi sínu og menntun.

Bein útsending: Stækkaðu framtíðina
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, munu á blaðamannafundi kynna nýtt verkefni sem verið er að setja af stað í menntakerfinu og ber heitið Stækkaðu framtíðina.

Alvotech sagði 21 upp í gær
21 starfsmanni var sagt upp störfum hjá Alvotech í gær. Þar af voru fjórtán sem starfa á Íslandi. Þetta staðfestir Benedikt Stefánsson, forstöðumaður fjárfesta- og almannatengsla hjá Alvotech, í samtali við Vísi.

Íslenskum ríkisborgurum hefur fækkað jafnt og þétt þar sem sjókvaíeldi á laxi er mest við Ísland
Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands kemur fram að íslenskum ríkisborgurum hefur fækkað jafnt og þétt þar sem sjókvíaeldi á laxi er mest við Ísland, á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta er þvert á það sem hagsmunagæslusamtök sjókvíaeldisfyrirtækja hafa haldið fram en meginrök þeirra hafa verið að sjókvíaeldi á laxi styrki búsetu í brothættum sjávarbyggðum og laði til baka ungt fólk sem hefur flutt úr þessum bæjum og þorpum. Það er rangt.

Sýnileikadagur FKA: Erfiðast að rukka!
„Að rukka!“ svarar Elín Arnar hjá Birtu Media og hlær þegar hún er spurð um það, hvað henni hafi fundist erfiðast að yfirstíga á þeim tveimur árum sem fyrirtækið Birta Media hefur verið starfrækt.

Fjórtán sagt upp hjá Keili og FS tekur yfir brautir
Fjölbrautaskóli Suðurnesja mun taka yfir hluta af starfsemi Keilis eftir að samkomulag um slíkt náðist. Fjórtán starfsmönnum Keilis hefur verið sagt upp í kjölfarið.

Sér fram á verkfallsboðun
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist sjá fram á að samninganefnd Eflingar muni á fundi sínum í kvöld samþykkja verkfallsboðun.

Uppsagnir hjá Alvotech
Þónokkrum starfsmönnum lyfjafyrirtækisins Alvotech var sagt upp störfum í dag.

„Gjörsamlega misboðið yfir stöðunni“
Fundi dagsins í Karphúsinu er lokið og ekki hefur verið formlega boðað til þess næsta. Gert er þó ráð fyrir að fundað verði aftur á morgun. Formenn Starfsgreinasambandsins og Samiðnar eru sammála um að staðan sé flókin og erfið.

Fundar með samninganefnd um mögulega verkfallsboðun
Samninganefnd Eflingar mun funda í kvöld í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins opnuðu á viðræður um launaliðinn við aðra en láglaunafólk. Formaður Eflingar segir vel koma til greina að boðað verði til verkfallsaðgerða.

Jafnlaunavottun sé orðin að bissness
Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hyggst leggja til breytingar á lögum um jafnlaunavottun þannig að hún verði valkvæð en ekki skylda líkt og í dag. Hún segir engan marktækan mun á kynbundnum launamun fyrirtækja með vottunina og þeirra sem séu án hennar.

Sýnileikadagur FKA: „Mikið er hún góð þessi!“
„Ein sem ég þekki ákvað til dæmis eitt sinn að taka svolítið karlana á þetta, bjóða þeim í einn og einn golfhring. Og hvað gerðist? Jú, strax eftir fyrsta höggið var viðmótið öðruvísi og hún sá hvernig svipurinn á andlitinu á þeim breyttist í: Mikið er hún góð þessi!“segir Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir og hlær.