
Akranes

Gísli Örn og Steindi sem keppendur í Love Island – Akranes
Þátturinn Stóra sviðið var á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldið en í þeim þáttum leggur Steinunn Ólína fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir í hverjum þætti.

Óli Palli poppar Skagann upp
Skaga- og útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, betur þekktur sem Óli Palli, hefur verið í önnum við að skipuleggja mikla tónlistarhátíð í sínum heimabæ.

Hnignun stórveldis: Er ljós við enda Hvalfjarðaganganna?
Hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir átjánfalda Íslandsmeistara og nífalda bikarmeistara ÍA? Getur félagið endurheimt sína gömlu stöðu í íslenskum fótbolta? Og hvað er raunhæft og ásættanlegt fyrir þetta fornfræga stórveldi á næstu árum?

Hnignun stórveldis: Gullöldin sem skilaði ekki gulli í kassann
Það er ekki bara inni á vellinum sem staða ÍA er ekki jafn góð og áður heldur einnig utan vallar. Fjárhagsstaða félagsins er ekki jafn sterk og þeirra stærstu á landinu og það hefur haft áhrif á gengið innan vallar.

Hnignun stórveldis: Kominn tími á glöggt gests auga?
Eins og fjallað var um í öðrum hluta greinaraðarinnar hefur ÍA jafnan verið sjálfbært þegar kemur að leikmönnum. Félagið er líka nánast alveg sjálfbært þegar kemur að þjálfurum. En það er spurning hvort það sé ekki hluti af vandamáli ÍA?

Tónleikar í heimahúsum Skagamanna
Tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI á Akranesi er einstök hátíð sem fer fram á heimilum Skagamanna. Hún er haldin er í tengslum við Vökudaga, menningarhátíð Akurnesinga. Á henni spila tíu listamenn í tíu heimahúsum tvisvar sinnum yfir laugardaginn 5. nóvember.

Hnignun stórveldis: Spekileki og kettir í sekknum
Í leikmannahópi sérhvers liðs er fall þess falið svo snúið sé út úr orðum Steins Steinars. Ein af stærstu ástæðunum fyrir hnignun ÍA undanfarin ár eru leikmannamál. Þá helst hvernig hópur liðsins hefur verið uppbyggður og síðast en ekki síst hvaða leikmenn félagið hefur fengið í sínar raðir.

Hnignun stórveldis: Leiðin á botninn
Það eru tvær mínútur til leiksloka í mikilvægum fallslag ÍA og Leiknis á Akranesi í 22. umferð Bestu deildar karla. Emil Berger tekur hornspyrnu og boltinn fer af Viktori Jónssyni og í mark Skagamanna. Þetta er annað sjálfsmark ÍA í leiknum og reynist sigurmark Leiknis. Skagamenn sitja eftir á botni deildarinnar fyrir úrslitakeppnina, fimm stigum frá öruggu sæti. Ef eitthvað augnablik var lýsandi fyrir síðustu tvo áratugi hjá ÍA var það þetta.

Skagamaður gerði allt vitlaust í London
Víkingaklapp, runkarabending og ömurleg skottilraun komu við sögu hjá Degi Jóhannssyni sem varð á örfáum sekúndum vinsælasti maðurinn á The Valley, heimavelli enska C-deildarliðsins Charlton, á laugardaginn var.

Eins umhverfisvænn bílabruni og hægt er
Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri Akraness og Hvalfjarðarsveitar, segir bílabrunann sem varð á gámasvæði Terra rétt fyrir utan Akranes í dag vera eins umhverfisvænan og hægt er. Stillt veður hefur komið í veg fyrir að reykur leggist yfir bæinn.

Gríðarlegur reykur eftir að kviknaði í hundrað bílhræjum
Gríðarlega mikill reykur streymir til himins vestur af Akrafjalli eftir að kviknaði í hrúgu af bílhræum á gámasvæði Terra rétt fyrir utan Akranes.

Jón Þór mun stýra Skagamönnum áfram á næsta tímabili
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, verður áfram við stjórnvölinn hjá félaginu sama hvort liðið falli úr efstu deild eða ekki.

Skagamenn vilja kaupa land af Hvalfjarðarsveit og færa sveitarfélagamörkin
Akraneskaupstaður sendi í morgun sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar erindi þar sem óskað er eftir samkomulagi við um færslu sveitarfélagamarka og viðræðum um kaup eða makaskipti á landi í eigu Hvalfjarðarsveitar.

Akurnesingur svífur um á bleiku skýi í treyju númer sex
Þrátt fyrir gríðarleg vonbrigði leikmanna kvennalandsliðsins eftir tap í Portúgal á þriðjudaginn gáfu landsliðskonurnar sér tíma, þegar tárin voru þornuð, og sinntu hörðustu aðdáendum sínum.

Segir íbúa í Fjarðabyggð lítt spennta fyrir jarðgangagjöldum
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir boðað frumvarp innviðaráðherra um gjaldtöku í jarðgöngum landsins ekki hljóma vel í eyrum íbúa sveitarfélagsins. Þar er að finna tvö jarðgöng; Norðfjarðar- og Fáskrúðsfjarðargöng.

Skyndiákvörðun sex meyja af Skaganum
Þrjár framtíðar landsliðskonur af Skaganum voru heldur betur spenntar fyrir ferðalaginu til Portúgal þegar blaðamaður hitti á þær í flugstöðinni í morgun. Þær segja ekki spurning að stelpurnar okkar vinni sigur ytra í dag og tryggi sér farseðilinn á HM í fyrsta skipti.

Nýr stigabíll gjörbreyti öllu fyrir slökkviliðið
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar fékk afhentan nýjan stigabíl í dag. Bíllinn kemst í 42 metra hæð. Þjálfunarstjóri slökkviliðsins segir aðra stigabíla á landinu töluvert lægri.

Um Sigurfara, Blátind, Aðalbjörgina og Maríu Júlíu
Um síðustu helgi var haldið áhugavert málþing um tréskipasmíði og bátavarðveislu. Fundarmenn voru sammála um mikilvægi þess að varðveita handverkið í trébátasmíðinni, meðal annars vegna þess að súðbyrðingurinn er komin á heimsminjaskrá UNESCO. Sú staðreynd ein og sér leggur brýna skyldu á stjórnvöld að leggja rækt við hann.

„Þá verður allt vitlaust á Akranesi“
Forseti bæjarstjórnar Akraness segir að það verði allt vitlaust í bænum, nái hugmyndir innviðaráðherra um gjaldtöku í jarðgöngum fram að ganga. Það gildi allt annað um Hvalfjarðargöngin en önnur göng, enda sé löngu búið að borga göngin upp.

Gjaldtaka hrein og bein svik við íbúa Akraness
Bæjarstjórn Akraness mótmælir þeim fyrirætlunum innviðaráðherra að hefja gjaldtöku í Hvalfjarðargöngunum til að fjármagna ný Fjarðarheiðargöng. Þá gerir bæjarstjórnin alvarlega athugasemd við að árskort í strætó hafi hækkað um tæplega hundrað þúsund krónur án samráðs við bæjarfélagið.

„Við erum ekkert verri neytendur eða verri viðskiptavinir“
Gríðarlegt óréttlæti felst í þvi að eldsneytisverð sé umtalsvert hærra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu að sögn formanns Verkalýðsfélags Akraness. Hann skorar á olíufélögin að sýna landsbyggðinni virðingu og bjóða sambærileg kjör alls staðar, en landsbyggðin hafi þurft að þola að margt annað sé talsvert dýrara sökum fákeppni.

Nafn mannsins sem lést við Langasand
Maðurinn sem lést við sjósund við Langasand á Akranesi hét Elías Jón Sveinsson.

Sjósundsmaðurinn fannst látinn
Sjósundsmaður sem leitað var að út fyrir Langasandi við Akranes í gær fannst látinn. Þetta staðfestir lögreglan á Vesturlandi en maðurinn hafði verið ásamt öðrum við sjósund. Leit hófst eftir að hann skilaði sér ekki í land.

Leita að sjósundsmanni við Akranes
Björgunarsveitir leita nú að sjósundsmanni úti fyrir Langasandi við Akranes. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á flugi á svæðinu og aðstoðar við leitina.

Símatímar falla niður vegna manneklu
Símatímar heilsugæslulækna Heilbrigðisstofnun Vesturlands falla niður í dag vegna manneklu. Í símsvara Heilbrigðisstofnunarinnar er beðist velvirðingar á því að símatímarnir falli niður.

Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng
Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum.

Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi
Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls.

Eldur kviknaði í Elkem í nótt og slökkvilið kallað til
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað til vegna bruna í járnblendiverksmiðjunni Elkem á Grundartanga á þriðja tímanum í nótt.

Fjórtán hvalir komnir á land í Hvalfirði og fjórir við skipshlið
Fjórtán langreyðar hafa verið dregnar á land til vinnslu í hvalstöðinni í Hvalfirði á þeim tólf dögum sem liðnir er frá því hvalbátarnir tveir héldu til veiða. Auk þeirra eru fjórar langreyðar til viðbótar veiddar, komnar að skipshlið, og á leið til lands.

Rauðhærðasti Íslendingurinn krýndur á Írskum dögum
Lilja Björk Sigurðardóttir er rauðhærðasti Íslendingurinn. Rauðhærðasti Íslendingurinn var krýndur í 23. sinn á Akranesi þar sem nú er haldið upp á Írska daga.