„Ég veit ekkert hvað er í gangi“ Árni Sæberg skrifar 9. janúar 2026 15:56 Natan kannast ekki við að hafa skráð sig á listann hennar Heiðu Bjargar. Vísir/Vilhelm Einhverjir hafa vafalítið rekið upp stór augu þegar þeir komu auga á nafn Natans Kolbeinssonar á lista yfir stuðningsmenn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. Natan er enda formaður Viðreisnar í Reykjavík. Hann kannast ekkert við að hafa skráð sig á listann og telur að hrekkjusvín hafi verið þar á ferð.
Heiða Björg birti í dag færslu á Facebook þar sem hún þakkar sýndan stuðning í aðdraganda spennandi prófkjörs Samfylkingarinnar í borginni. Þar etur hún kappi við Pétur Marteinsson um oddvitasæti flokksins. „Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri er sönn baráttukona fyrir jöfnuði og jafnrétti. Hún hefur ítrekað leitt jafnaðarfólk til valda og haft afgerandi forystu um mikilvægar samfélagsbreytingar í anda jafnaðarstefnunnar. Hún hefur yfirburða þekkingu og reynslu af borgarmálum. Heiða Björg er sigurvegari og mannasættir, pólitískur dugnaðarforkur sem lætur verkin tala!“ segir í stuðningsyfirlýsingu sem nokkuð stór hópur fólks hefur skrifað undir. Á listanum má sjá ýmis nöfn sem ekki koma á óvart. Þar má nefna Alexöndru Ýr van Erven, Birgi Dýrfjörð, Ellen Calmon, Helga og Helgu Hjörvar, Guðnýju Maju Riba, Róbert Marshall, Sabine Leskopf, Vilhjálm Þorsteinsson og svo mætti lengi telja. Skiptir sér ekki af öðrum flokkum Eitt nafn stingur þó í stúf og það er nafn Natans Kolbeinssonar. Hann er nefnilega formaður Viðreisnar í Reykjavík og hefur verið virkur í Viðreisn frá árinu 2019. Hann var þó skráður í Samfylkinguna til ársins 2017. Vísir hafði samband við Natan og spurði hann út í skráningu hans á lista stuðningsfólks Heiðu Bjargar. Hann kvað þau Heiðu Björgu vera vini og hann hafi áður stutt hana í hinum ýmsu kosningum en hann kannist þó ekki við að hafa skráð sig á lista stuðningsmanna. „Ég er formaður Viðreisnar í Reykjavík og alþjóðafulltrúi Viðreisnar. Svo ég væri ekki að skipta mér af prófkjörum í öðrum flokkum.“ Róbert Marshall, aðstoðarmaður borgarstjóra og prófkjörsframbjóðandans Heiðu Bjargar, segir í samtali við Vísi að nafn Natans sé sannarlega að finna í þar til gerðu skjali sem stuðningsmenn skrá nöfn sín og helstu upplýsingar í. Fann hvar hnífurinn stendur í kúnni Natan hafði aftur sambandi við Vísi og sagðist hafa komist að því hvar hnífurinn stæði í kúnni. Einhver hrekkjalómur hafi skráð nafn hans, netfang, símanúmer, kennitölu og heimilisfang í skjal stuðningsmanna Heiðu Bjargar á milli klukkan 03:33 og 03:36 á aðfaranótt 2. janúar. Sjálfur hafi hann verið steinsofandi á þeim tíma. „Þetta hefur bara verið einhver að pönkast. Ég þekki mig nú það vel að ég veit að það tekur mig ekki þrjár mínútur að fylla inn kennitöluna mína og email-ið mitt. Ég veit ekkert hvað er í gangi og þetta er bara einhver asnalegur hrekkur.“ Netfangið hans sé víða aðgengilegt, símanúmerið á Já.is, og lítið mál sé að fletta upp kennitölum. Allir vinir Þá segir hann að hann hafi heyrt í Heiðu Björgu og Hrannari Birni Arnarssyni, eiginmanni hennar og umsjónarmanni áðurnefnds skjals. „Við erum bara paránægð og ligeglöð. Eins og ég segi, Heiða er vinkona mín og ég styð hana í mörgu hverju en ég ætla að fá Viðreisnarborgarstjóra eftir kosningar. Leiðrétt: Upphaflega var nafn Hildar Hjörvar sagt á lista stuðningsmanna Heiðu Bjargar en svo er ekki. Hins vegar er nafn ömmu hennar, Helgu Hjörvar, að finna á listanum.
Viðreisn Samfylkingin Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Erlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Fleiri fréttir Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Sjá meira