Veður

Fréttamynd

Hið ró­legasta veður og hiti að fjór­tán stigum

Öflugt háþrýstisvæði í grennd við landið stjórnar veðrinu á landinu næstu daga og gerir Veðurstofan ráð fyrir að veður verði með rólegasta móti í dag. Spáð er hægri breytilegri átt og víða léttskýjuðu, en sunnan golu eða kalda.

Veður

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Veðrið stjórnast af lægð á Græn­lands­hafi

Hægfara lægð á Grænlandshafi og vaxandi hæðarhryggur skammt fyrir austan land stjórna veðrinu á landinu í dag. Búast má við suðaustan 8 til 15 metrum á sekúndu suðvestan- og vestantil. Skýjað með köflum og líkur á smáskúrum en hægari vindur og bjart að mestu á Norður- og Austurlandi.

Veður
Fréttamynd

Hitinn nær upp í tíu stig

Veðurstofa Íslands spáir hita þrjú til tíu stig í dag, heitast á suðausturlandi. Úrkomubakki liggur yfir Austurlandi, norðvestan kaldi eða strekkingur. 

Veður
Fréttamynd

Oftar en ekki við­vörun í gildi í mars

Gular og appelsínugular viðvaranir voru orðnar daglegt brauð um miðbik marsmánaðar. Í samantekt Veðurstofu Íslands segir að flesta daga mánaðarins hafi einhvers konar veðurviðvaranir verið í gildi einhvers staðar á landinu.

Veður
Fréttamynd

Má búast við mikilli úr­komu á Aust­fjörðum

Nú færast skil yfir norðurhluta landsins sem valda snjókomu, slyddu eða rigningu, einkum norðan- og austanlands. Í dag má svo búast við að vind lægi smátt og smátt í flestum landshlutum en áfram verður hvasst norðvestanlands með snjókomu fram á kvöld og nótt. Mildasta veðrið verður að finna sunnantil á landinu, þurrt að mestu en spáir fyrir einhverjum skúrum.

Veður
Fréttamynd

Út­lit fyrir vor­veður á næstu dögum

Hiti mun ná allt að níu stigum næstu daga en í dag nálgast víðáttumikil og djúp lægð landið úr suðaustri og því má búast við vaxandi norðaustanátt fram eftir degi. Mjög hvasst verður í Öræfum um tíma í kvöld og geta hviður farið upp í allt að 35 m/s.

Veður
Fréttamynd

Minnkandi vindur og stöku él

Dagurinn í dag byrjar með minnkandi vindi og stöku éljum á víð og dreif. Það mun létta til á norðanverðu landinu, en einnig sunnanlands eftir hádegi.

Veður
Fréttamynd

All­hvass vindur og rigning

Veðurstofa Íslands spáir suðaustan átt þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og rigningu en suðlægri átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu og skúrir með morgninum.

Veður
Fréttamynd

Vaktin: Austanbylur annan í páskum

Páskahretið setti strik í reikning ferðalanga um allt land en gular og appelsínugular viðvaranir tóku gildi eftir hádegi í dag. Í vaktinni hér að neðan var fylgst með áhrifum veðursins.

Veður
Fréttamynd

Logn í dag á undan storminum á morgun

Hægur vindur er á suðvesturlandi í dag en víðast hvar annars staðar er spáð norðaustanátt 8–13 m/s og lítilsháttar éljum. Hiti verður í kringum frostmark yfir daginn, annars 0–8 stiga frost. Á morgun hvessir þó hressilega.

Veður
Fréttamynd

Mæla með að fólk leggi fyrr af stað

Vegna veðurs biður lögregla ferðalanga um að huga að því að leggja fyrr af stað um páskana, þar sem gular veðurviðvaranir taka gildi á mánudag, annan í páskum. Viðvaranirnar verða mögulega færðar upp á appelsínugult.

Veður
Fréttamynd

Gul við­vörun vegna austan stórhríðar annan í páskum

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna austan stórhríðar á landinu öllu á mánudag. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta á mánudagsmorgun og er í gildi þar til klukkan fjögur aðfaranótt þriðjudags. Viðvaranir verða mögulega uppfærðar í appelsínugular á morgun. 

Veður
Fréttamynd

Þung­fært víða um land

Víða er þungfært um landið allt og kalt. Á vef Vegagerðar má sjá að á Vestfjörðum og Norðurlandi er snjóþekja og hálka og þungfært eða þæfingar. Á Norðausturlandi er lokað um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Mokstur átti að hefjast um klukkan átta.

Veður
Fréttamynd

Kalt í veðri miðað við árs­tíma

Áfram snjóar á Norðaustur- og Austurlandi og sunnan heiða má búast vði éljum, einkum við ströndina. Hvessir á Austurlandi í kvöld og hiti í kringum frostmark um allt land yfir daginn en 0 til 8 stiga frost að næturlagi.

Veður
Fréttamynd

Hæðar­hryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt

Hæðarhryggur fer yfir landið í dag. Þá lægir fyrir hádegi á vestanverðu landinu og dregur smám saman úr éljum, en áfram vestan tíu til 15 metrar á sekúndu austanlands fram eftir degi. Hiti verður á bilinu eitt til sex stig, en nálægt frostmarki austanlands.

Veður