Rangárþing eystra
1 2 3 4 5 6 … 13 ›
Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Ekki stendur til að bæta fallvarnir vegna grjóthruns við Holtshnúp þar sem varð banaslys í mars á þessu ári. Ráðherra segir fjármagni forgangsraðað í önnur verkefni. Það hafi komið til greina að setja upp varnir við veginn en það ekki enn komist til framkvæmdar. Íbúi við veginn segir stjórnvöld verða að forgangsraða. Það sé óásættanlegt að ekki séu varnir við veginn. Innlent 21.6.2025 07:01
Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Áhugamenn um Flugfélagsþristinn Gunnfaxa hafa ákveðið að hefja fjársöfnun til að bjarga þessari sögufrægu flugvél frá því að eyðileggjast á Sólheimasandi. Þeir hyggjast koma henni í sýningarhæft ástand í von um að Samgöngusafnið á Skógum taki við henni. Innlent 18.6.2025 22:44
Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Fjögur hundruð manns sem starfa við framleiðslu hérlendis á kvikmynd Christophers Nolan fengu inn í grunnskóla á Hvolsvelli eftir að tjaldbúðir þeirra fuku. Innlent 16.6.2025 15:23
Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Sú ákvörðun stjórnar Þristavinafélagsins að selja Flugfélagsþristinn Gunnfaxa til landeigenda á Sólheimasandi hefur valdið ólgu meðal þristavina. Bóndinn á Ytri-Sólheimum, kaupandi flugvélarinnar, segir þeim frjálst að fá hana til baka, svo fremi að þeir endurgreiði kaupverðið og kostnað við flutninginn. Innlent 15.6.2025 07:00
Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand Gömul Douglas Dakota-flugvél, sem landeigendur Sólheimasands keyptu í vetur af Þristavinafélaginu, verður í kvöld flutt eftir þjóðvegum austur í sveitir frá Keflavíkurflugvelli. Fyrirhugað er að skrokknum verði komið fyrir á sandinum nálægt gamla flugvélarflakinu sem verið hefur einn helsti ferðamannastaður Suðurlands. Innlent 12.6.2025 21:42
Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Það var líf og fjör á Bergþórshvoli í Vestur Landeyjum á slóðum Brennu Njálssögu þegar hópur karla, sem eru í Gömlu Fóstbræðrum mættu á staðinn til að syngja fyrir Njál og hans fólk á bænum. Fóstbræður er elsti karlakór landsins stofnaður 1916. Lífið 31.5.2025 20:04
Til varnar Eyjafjöllum - og Íslandi öllu Landinu okkar - náttúruperlunni Íslandi - er ógnað. Fjársterkir aðilar sem virðast skeyta um fátt annað en skjótfenginn gróða fara nú í hvert sveitarfélagið á fætur öðru með skipulagstillögur sem lúta að því að setja niður hótel, baðlón, smáhýsi, bensínstöðvar, skyndibitastaði og minjagripaverslanir. Skoðun 27.5.2025 11:33
Elsti hestur landsins er 36 vetra með tennur og hófa í fínu standi Hann heitir Sómi, tennurnar hans eru í góðu lagi og hófarnir líka en það fer engin á bak honum lengur. Hér erum við að tala um elsta núlifandi hest landsins því hann er þrjátíu og sex vetra og unir sér vel út í haga í Skógum undir Eyjafjöllum. Innlent 24.5.2025 22:33
Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni inn í Þórsmörk og sneri heill heim Leigubílstjóri sem ók Teslu yfir fjölda lækja inn í Þórsmörk segir nútímarafbíla vel hannaða til að keyra gegnum djúpa polla eða læki. Hann hafi verið meðvitaður um áhættuna en farið varlega og eru engin ummerki eftir svaðilförina á bílnum. Innlent 21.5.2025 16:45
Frábær þjóðbúningamessa í Fljótshlíð Það voru prúðbúnir gestir, sem sóttu messu í Fljótshlíð í morgun enda ærið tilefni til því þetta var þjóðbúningamessa þar sem mikill meirihluta kirkjugesta voru í þjóðbúningum. Flesta búningana hefur fólk saumað sjálft á sig. Lífið 4.5.2025 20:04
Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum Stefnt er að stækkun Samöngusafnsins í Skógum undir Eyjafjöllum enda safnið búið að sprengja allt húsnæðið utan af sér. Safnið á fjölmarga gamla bíla og tæki, sem ekki er hægt að sýna vegna plássleysis. Innlent 15.4.2025 20:05
Söngnemendur á Hvolsvelli með Kabarett Mikil spenna og eftirvænting er á Hvolsvelli og í sveitunum þar í kring því söngnemendur í Tónlistarskóla Rangæinga hafa æft söng kabarett síðustu vikurnar, sem sýndur verður í Hvolnum á Hvolsvelli. Átján ára aldurstakmark er á kabarettinn. Lífið 9.4.2025 21:03
Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Suðursvæði kveðst sleginn vegna banaslyss sem varð á mánudaginn þegar grjót hrundi niður Steinafjall og á bifreið. Honum finnst fullmikið að segja að Vegagerðin hafi fengið ítrekaðar ábendingar um hættuna þótt hún hafi verið meðvituð um vandann en strax verði ráðist í að skoða hvort ekki sé hægt að ráðast í framkvæmdir við vegarkaflann. Innlent 2.4.2025 12:11
Blikkandi viðvörunarljós Með stuttu millibili hafa orðið nokkur alvarleg bílslys hér á landi með þeim afleiðingum að nokkrir hafa látist. Lítið barn, maður á besta aldri og kona sem var á ferð um landið. Vegir um allt land eru að molna í sundur og víða er vörnum við vegi ábótavant. Skoðun 2.4.2025 10:00
„Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Kona sem býr steinsnar frá vettvangi banaslyss sem varð á Suðurlandi í gær segir að það hafi verið viðbúið að eitthvað hræðilegt myndi gerast á svæðinu í ljósi þess hve algengt er að það hrynji úr skriðum Steinafjalls. Hún bindur vonir við að Vegagerðin taki við sér áður en næsta stórslys verður. Innlent 1.4.2025 19:39
Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Banaslys varð í dag þegar grjót hrundi úr Steinafjalli á bíl á Suðurlandsvegi við Holtsós undir Eyjafjöllum, laust fyrir klukkan 13. Þrír erlendir ferðamenn voru í bílnum. Einn þeirra lést en hinir tveir hlutu minniháttar áverka. Innlent 31.3.2025 15:55
Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Holtsós undir Eyjafjöllum laust fyrir klukkan 13 í dag. Innlent 31.3.2025 13:55
Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Björgunarsveitir á Hellu og Hvolsvelli voru boðaðar út síðdegis í dag eftir að aðstoðarbeiðni barst frá hópi skíðafólks á leið yfir Eyjafjallajökul að Fimmvörðuhálsi. Innlent 29.3.2025 22:38
Landeigendur Sólheimasands keyptu gamlan Flugfélagsþrist Landeigendur Sólheimasands, sem geymir frægasta flugvélarflak Íslands, hafa keypt gamlan Flugfélagsþrist af Þristavinafélaginu. Hugmyndin er að flugvélarskrokkurinn leysi af hólmi gamla flakið á sandinum, sem er að tærast upp. Innlent 23.3.2025 22:40
Sinfónía í sundi slegin af borðinu vegna kjötsúpu Sveitarstjórn Rangárþings eystra þakkar Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir frumkvæði að viðburðinum „Sinfó í sundi“. Hins vegar fer fram kjötsúpurölt í sveitarfélaginu á sama tíma og sér sveitarstjórnin sér því ekki fært að taka þátt. Lífið 15.3.2025 22:16
Verðlaunabændur vilja norskar kýr til landsins Kúabændurnir, sem eiga afurðahæsta kúabú landsins annað árið í röð vilja fá norskar kýr til landsins því þær muni alltaf nýta heyið betur og mjólka meira en íslenska kýrnar. Hér erum við að tala um bændurnar á bænum Stóru – Mörk í Rangárþingi eystra. Innlent 4.3.2025 21:04
Náttúruverndarstofnun með höfuðstöðvar sínar á Hvolsvelli Íbúar á Hvolsvelli hafa sjaldan eða aldrei verið eins kátir og þessa dagana því þeir voru að fá höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar á staðinn eða Náttúruverndarstofnun. Um eitt hundrað starfsmenn vinna hjá stofnuninni á starfsstöðvum út um allt land. Innlent 28.2.2025 20:04
Sjálfhreinsandi salerni slá í gegn á Suðurlandi Sjálfhreinsandi salerna er það nýjasta í ferðaþjónustu á Suðurlandi en slík salerni vekja alltaf mikla athygli og lukku hjá ferðamönnum en þau eru opinn allan sólarhringinn. Innlent 4.2.2025 21:04
Kyngreint sæði notað í fyrsta skipti í Íslandssögunni Tilraun er nú að hefjast með notkun á kyngreindu sæði í fjósum landsins þar sem hægt verður að velja um hvort kvíga eða naut komi í heiminn með notkun sæðisins í kýrnar. Innlent 25.1.2025 13:05
Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Fyrsta skóflustungan af nýju 68 herbergja lúxus hóteli hefur verið tekin á Hvolsvelli. Hótelið, sem mun kostar um tvo milljarða króna verður tekið í notkun í byrjun sumars. Viðskipti innlent 22.1.2025 21:03
Tveir bílar og smárúta lentu saman á Suðurlandsvegi Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Suðurlandsvegar og Þórsmerkurvegar um klukkan eitt í dag. Um var að ræða tvo fólksbíla og smárútu sem lentu saman. Innlent 20.1.2025 16:00
Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Ærslabelgur og aparóla eru efst á óskalista hjá börnum og unglingum á Hvolsvelli en það mál og fleiri munu þau ræða á Barna- og ungmennaþingi, sem haldið verður á morgun sunnudag. Innlent 18.1.2025 15:04
Styrktartónleikar á Hvolsvelli fyrir mikið slasaðan bónda Það stendur mikið til á Hvolsvelli í dag því þar verða haldnir styrktartónleikar fyrir ungan bónda undir Eyjafjöllum og fjölskyldu hans en bóndinn slasaðist alvarlega í umferðarslysi undir Eyjafjöllum í síðasta mánuði. Þrír hryggjarliðir og fjórir hálsliðir brotnuðu meðal annars í bóndanum. Innlent 12.1.2025 12:18
Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Fulltrúar sveitarfélaga í Rangárvallasýslu lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í sýslunni og ítreka að núverandi staða og óvissa sé óboðleg 4519 íbúum sýslunnar og öðrum gestum hennar. Innlent 10.1.2025 16:52
Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Til skoðunar er að veita læknum sem starfa á landsbyggðinni ívilnanir á borð við að fella niður hluta af námslánum þeirra og jafnvel ráðast í skattaívilnanir. Heilbrigðisráðherra segir læknaskort í Rangárvallasýslu óásættanlegan og að forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar sé að bæta úr. Íbúar upplifa öryggisleysi. Innlent 6.1.2025 21:30