Reykjanesbær
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 34 ›
Gas lagði yfir Njarðvík í nótt og gæti fundist í byggð í dag Engar breytingar urðu á eldgosinu á Reykjanesi í nótt og lítil skjálftavirkni var á svæðinu. Gas lagði um tíma yfir Njarðvík en mengunin dreifðist fljótt aftur. Íbúar á Reykjanesskaga gætu fundið fyrir gasmengun í dag. Innlent 23.4.2021 07:24
„Suðurnes eru heitasti sumardvalastaðurinn á árinu“ Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum segir aukna bjartsýni á svæðinu. Eldgosið hafi reynst mikil landkynning og verkefni í kringum uppbyggingu í Geldingadölum skapi mörg atvinnutækifæri. Hún telur að Suðurnes verði heitasti sumardvalarstaðurinn í ár. Innlent 21.4.2021 10:43
Þingkona í ræktinni hjá systur sinni Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, er gagnrýnin á Silju Dögg Gunnarsdóttur, þingmann Framsóknarflokksins. Sú síðarnefnda fór í líkamsræktarstöð systur sinnar í dag en líkamsræktarstöðvar hafa verið lokaðar síðan fyrir páska. Innlent 12.4.2021 21:56
„Síðustu þrjár ferðirnar voru mjög krefjandi“ Guðný Petrína Þórðardóttir og Börkur Þórðarson hlupu á dögunum tíu ferðir upp og niður fellið Þorbjörn við Grindavík. Þau söfnuðu með hlaupinu alls 607 þúsund krónum fyrir Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Lífið 5.4.2021 07:01
Guðbrandur leiðir lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, mun leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn. Guðbrandur, sem oftast er kallaður Bubbi að því er segir í tilkynningunni, er fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja. Innlent 3.4.2021 10:54
BB Hótel á Ásbrú skoðað í dag fyrir sóttkvíarhótel Gert er ráð fyrir að sóttkvíarhótel verði opnað í Reykjanesbæ þegar Fosshótel við Þórunnartún fyllist. Unnið er að því að búa hótelið undir komu farþega úr þremur flugvélum á morgun. Innlent 31.3.2021 11:58
Isavia tapaði 13,2 milljörðum króna í fyrra Afkoma Isavia var neikvæð um 13,2 milljarða króna eftir skatta árið 2020. Er um að ræða 14,4 milljarða króna viðsnúningur frá fyrra ári. Tekjur drógust saman um 62% milli ára og námu 14,7 milljörðum króna. Viðskipti innlent 25.3.2021 12:49
Auddi rétt slapp en Jón Jónsson varð eftir Fjöldi skemmtikrafta steig á svið á Skjálftatónleikum Fjölbrautarskóla Suðurnesja í Hljómahöllinni í kvöld. Á sama tíma og ballið fór fram fór að gjósa í Fagradalsfjalli og hefur Reykjanesbrautinni verið lokað vegna þessa. Lífið 19.3.2021 23:00
Tveir með berkla á hjúkrunarheimili en hvorugur smitandi Tveir starfsmenn Hrafnistu Nesvöllum í Reykjanesbæ greindust með berkla í hefðbundinni heilbrigðisskoðun á dögunum. Hvorugur er smitandi. Til stendur að senda alla íbúa heimilisins í berklaprufu. Innlent 16.3.2021 15:01
Langtímalausnir við skammtímavandamáli? Reykjanesbær er það sveitarfélag sem hvað verst hefur orðið úti vegna kórónuveirufaraldursins. Atvinnuleysi hefur mælst í hæstu hæðum og miklu meira en það var eftir efnahagshrunið 2008. Það myndi hafa áhrif í hvaða sveitarfélagi sem er að búa við 25% atvinnuleysi. Skoðun 16.3.2021 11:30
Þrjár bílveltur á Reykjanesbraut Þrjár bílveltur hafa orðið á Reykjanesbraut það sem af er morgni. Engin slys urðu á fólki, að sögn varðstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja, en leiðindafærð er á svæðinu. Innlent 10.3.2021 11:47
Lömuð kona fær ekki þjónustu á næturnar: „Hún er logandi hrædd“ Lömuð kona sem er með samning um sambærilega þjónustu og notendastýrða persónulega aðstoð fær ekki þjónustu á næturnar. Systir hennar segir konuna logandi hrædda. Innlent 7.3.2021 20:01
Átti að vera í sóttkví en var að bíða eftir fari Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af karlmanni þar sem hann var staddur fyrir utan búð í Njarðvík vegna gruns um brot á sóttvarnarlögum. Innlent 5.3.2021 09:53
Áfram gert ráð fyrir að gos muni hefjast Áfram er mikil skjálftavirkni á Reykjanesskaganum þó eitthvað hafi dregið úr óróapúlsi í nótt. Þó er enn gert ráð fyrir að eldgos muni hefjast, að sögn Kristínar Jónsdóttur náttúruvársérfræðings. Stór skjálfti reið yfir í morgun en hann er sá stærsti í rúma tvo sólarhringa. Innlent 4.3.2021 11:50
Kortleggja minjar sem gætu farið undir hraun Friðaðar og friðlýstar minjar, þar á meðal bæjarstæði, hús og kirkjur, gætu farið undir hraun ef gos hæfist á Reykjanesi. Minjastofnun hefur kortlagt hvaða menningarminjar sem hún hefur á skrá séu í hættu út frá nýjasta spálíkani eldfjallafræði- og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Innlent 3.3.2021 17:31
Telur kviku á sjö kílómetra dýpi vera að þrýsta sér upp Jarðskjálfti upp á 5,1 stig með upptök við Keili varð um hálffimmleytið nú síðdegis. Hann er sá öflugasti í dag í hinni miklu hrinu sem nú skekur suðvesturhorn Íslands og ekkert lát virðist á. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir hrinuna núna skýrustu vísbendingu á síðari árum um að við séum að nálgast nýtt eldgosatímabil á Reykjanesskaga. Innlent 1.3.2021 22:06
„Þetta hlýtur að enda með einhverjum ósköpum“ Engin rýmingaráætlun er til fyrir Reykjanesbæ og Voga, fari að gjósa, en unnið er að gerð hennar. Innlent 1.3.2021 20:49
Settu upp beint streymi af Keili ef það skyldi gjósa Staðarmiðillinn Víkurfréttir í Reykjanesbæ sendir nú út beint streymi af fjallinu Keili, eftir að fregnir bárust af því að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga gætu verið að aukast. Streymið er tekið upp út um glugga á skrifstofuhúsnæði á fjórðu hæð, sem ritstjórinn segir hafa vaggað nánast stanslaust síðustu daga. Innlent 1.3.2021 18:46
Segja að ekkert bendi til að eldgos sé í vændum Prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands segir ekkert benda til þess nú að eldgos sé í vændum á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrinan sem riðið hefur yfir skagann undanfarna daga sé hins vegar ein sú öflugasta sem komið hefur á skaganum í áratugi. Innlent 27.2.2021 19:30
Ómögulegt að spá fyrir um framhaldið en „fólk getur verið rólegt heima hjá sér“ „Málið var nú fyrst og fremst að bera saman bækur, þannig að allir væru á sömu blaðsíðu,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur um fund Vísindamannaráðs almannavarna sem lauk síðdegis. Innlent 27.2.2021 18:19
Hrinan ekkert einsdæmi en von á skjálftum í einhverja daga „Þessi hrina er bara ennþá í gangi. Hún er á svipuðum slóðum og hún hefur verið, það er aðallega virkni við Fagradalsfjall,“ segir Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um stöðu mála á Reykjanesskaga. Innlent 27.2.2021 14:48
Yfirlýsing frá fjölskyldunni: „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði“ „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu konu sem lést í umsjá læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Læknirinn er grunaður um alvarleg mistök í starfi sem hafi leitt til andláts konunnar, líkt og fréttastofa hefur greint ítarlega frá. Fjölskyldan segir lækninn hafa sett móður þeirra á líknandi meðferð, án þess að forsendur væru fyrir því og án þess að upplýsa um meðferðina. Þau vilja að málið verði rannsakað sem manndráp. Innlent 24.2.2021 19:28
Læknirinn nú við störf hjá Landspítala Fyrrverandi læknir sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er nú við störf á Landspítalanum. Hann er ekki með starfsleyfi sem læknir. Kæra hefur verið lögð fram á hendur lækninum og lögreglurannsókn er hafin. Innlent 24.2.2021 18:37
Hættustigi lýst yfir Hættustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem gengur nú yfir. Hættustigið er sett á til að samhæfa aðgerðir ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Enn fremur er það sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum en ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sér að ræða. Innlent 24.2.2021 14:01
Suðvesturhornið nötrar og stærsti skjálftinn 5,7 að stærð Jörð hefur skolfið á suðvesturhorni landsins í morgun og virðist ekkert lát á skjálftavirkni. Fyrstu skjálftar fundust upp úr klukkan tíu og enn skelfur jörð þegar klukkan er að verða ellefu. Skjálftar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu, vestur í Stykkishólm og austur á Helllu. Innlent 24.2.2021 10:07
Bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á lífslokameðferðum Læknir, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á svokölluðum lífslokameðferðum sem hann hafði umsjón með hjá stofnuninni, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hefur fréttastofa einnig heimildir fyrir því að athugasemdir hafi borist á hendur fleiri læknum hjá stofnuninni. Innlent 23.2.2021 20:49
Segir lækninn hafa neitað móður hans um meðferð Sonur aldraðrar konu sem þurfti að leita læknisaðstoðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í kjölfar slyss segir að móður sinni hafi hreinlega verið neitað um meðferð af lækni hjá stofnuninni, en sá er grunaður um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum með þeim afleiðingum að minnsta kosti einn sjúklingur er látinn. Innlent 23.2.2021 18:51
Ráðherra segir NEI Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur glímt við verulegan vanda í áratugi. Þessi vandi er margþættur: mönnunarvandi, húsnæðisvandi, fjármögnunarvandi en einnig samskiptavandi sem oft hefur blossað upp og þá sett stofnunina í mjög erfiða stöðu. Skoðun 23.2.2021 10:31
Læknir grunaður um röð alvarlegra mistaka Fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætir rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Málið er á borði lögreglu. Innlent 22.2.2021 18:31
„Mesta furða hvað fólk ber sig vel“ Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur (VSFK), segir Suðurnesjamenn bjartsýna og bera sig almennt nokkuð vel þrátt fyrir að atvinnuástandið þar sé það versta á landinu. Atvinnuleysi á Suðurnesjum mældist 24,5 prósent í janúar en þar að auki eru margir sem hafa verið þvingaðir í lægra starfshlutfall. Innlent 21.2.2021 16:07