
Reykjavík

Sorphirðufólk mætir til vinnu á laugardaginn
Reykjavíkurborg hefur boðað sorphirðufólk til vinnu á laugardaginn auk þess að lengja vinnudaginn í næstu viku til að vinna upp tafir sem orðið hafa eftir hátíðarnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Hönnunarparadís Gabríelu og Björns til sölu
Við Hvassaleiti í Reykjavík er afar glæsilegt 245 fermetra raðhús á þremur hæðum. Húsið var byggt árið 1961 og hannað af Gunnari Hanssyni arkitekt. Ásett verð er 175 milljónir.

Þórdís vann samkeppni um listaverk við nýjan Landspítala
Þórdís Erla Zoëga bar sigur úr býtum í samkeppni um listaverk við nýjan Landspítala. Samhljóma niðurstaða dómnefndar var að verk hennar, Upphaf, bæri fyrir sér næmi fyrir rýminu og starfsemi spítalans.

Ósátt með að maðurinn væri að rækta fíkniefni með annarri konu
Par, karlmaður og kona, hafa hlotið fangelsisdóma í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna fíkniefnalagabrota og peningaþvættis vegna nokkurra mála.

Útilokar ekki að bjóða sig fram til Alþingis
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lætur af störfum sem slíkur 16. janúar næstkomandi eftir tíu ár í borgarstjórastólnum. Hann segist ekki ætla að bjóða sig fram til forseta en útilokar ekki að færa sig yfir í landspólitíkina.

Álfhildur selur sjarmerandi útsýnisperlu í Vesturbænum
Álfhildur Ösp Reynisdóttir læknir ogt tveggja barna móðir hefur sett sjarmerandi íbúð sína í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu. Eignin á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með stórbrotnu útsýni til suðvesturs og norður. Ásett verð er 73,9 milljónir.

Bein útsending: Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu - hver er staðan?
Opið málþing um félagslegt landslag fer fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag. Yfirskrift málþingsins er Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu - hver er staðan? Málþingið hefst klukkan 9.00 og verður einnig hægt að fylgjast með málþinginu í streymi hér að neðan.

Veitingahúsið Ítalía flytur
Veitingahúsið Ítalía sem hefur um árabil verið staðsett á Laugavegi er nú lokað vegna flutninga. Veitingahúsið opnar aftur síðar í janúar á Frakkastíg 8b. Þar var áður rekið veitingahúsið Reykjavík Meat by Maison en því var nýlega lokað.

Salthrúgur á tólf stöðum í borginni
Hægt er að nálgast salt til hálkuvarna á tólf stöðum í Reykjavík. Frá því er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en verulega erfiðar aðstæður hafa skapast síðustu daga í borginni og er mikil hálka á bæði götum og göngustígum borgarinnar.

Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið
María Rún Hafliðadóttir, forstjóri Gleðipinna sem rekur Íslensku hamborgarafabrikkuna, segir erfitt að loka veitingastað með tíu ára sögu. Launakostnaður geri veitingahúsarekstur afar erfiðan.

Sprautaði kryddvökva úr heimagerðu vopni í andlit leigubílstjóra
Karlmaður með langan sakaferill hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að brjóta á leigubílstjóra, sem og önnur minniháttar brot.

Sala mannbrodda fjórfaldast vegna hálkunnar
Sala mannbrodda hjá verslunarkeðju Bónus er fjórföld í þessari viku og vikuna fyrir jól, miðað við síðustu tíu vikur þar á undan. Flughált hefur verið á öllu höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og fjöldi fólks leitað á bráðamóttöku vegna hálkuslysa.

Grillhúsið til sölu á 110 milljónir
Veitingastaðir Grillhússins á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík auk útibús í Borgarnesi hafa verið auglýstir til sölu. Uppsett verð er 110 milljónir króna.

Tekur undir með Ármanni: „Skynsamlegt að skoða fyrirbyggjandi aðgerðir“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur tekur undir með kollega sínum Ármanni Höskuldssyni að byggja eigi upp eldgosavarnir við Hafnarfjörð. Hann kallar eftir því að gert verði nýtt og umfangsmikið hættumat fyrir stór-höfuðborgarsvæðið.

Langþreytt á ferðamönnum sem fylla tunnurnar af óflokkuðu rusli
Dæmi eru um að sorptunnur miðborgarbúa séu ekki tæmdar vegna þess að AirBnb-gestir í nágrenninu fylla tunnurnar af óflokkuðu rusli. Samskiptastjóri Sorpu segir nýja flokkunarkerfið mögulega of flókið fyrir ferðamenn - en ábyrgðin liggi hjá leigusölunum.

Strætóbílstjóri dæmdur fyrir að verða konu að bana
Kristinn Eiðsson strætóbílstjóri hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur og verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði vegna manndráps af gáleysi. Honum var gefið að sök að hafa ekið strætisvagni sínum á konu sem hlaut bana af.

Loka Fabrikkunni í Kringlunni
Íslenska hamborgafabrikkan hefur lokað útibúi sínu í Kringlunni í Reykjavík. Útibúið við Höfðatorg stendur nú eitt eftir en veitingastaðnum á Akureyri var lokað í desember.

Gikkskjálfti að stærð 4,5 skók suðvesturhornið
Stór skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar um klukkan 10:50 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni benda fyrstu tölur til að skjálftinn hafi verið 4,5 að stærð og að upptök hans hafi verið við Trölladyngju, nærri Keili, á um fimm kílómetra dýpi. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

Handtöskunni stolið á meðan setið var að snæðingi
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust nokkrar tilkynningar um þjófnaði á vaktinni í gærkvöldi og nótt og þá var nokkuð um að einstaklingar í annarlegu ástandi væru til vandræða.

Skemmdarverk og fúkyrði á Austurvelli: „Farið heim til ykkar, Hamas-rottur“
Palestínskur maður sem haldið hefur til í tjaldi á Austurvelli segist hafa fengið tvær miður skemmtilegar heimsóknir í nótt og morgun. Myndbönd sýna tvo karlmenn, á sitthvorum tímanum, með ógnandi tilburði og fúkyrðaflaum í garð fólks á svæðinu.

Mildi að ekki fór verr þegar farmur féll á Hringbraut
„Það er mikil mildi að ekki fór verr,“ segir Guðmundur Berg, hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um farm úr járni sem féll af vörflutningabíl á Hringbraut í Reykjavík um tvöleytið í dag.

Þrír handteknir eftir að hafa rænt og gengið í skrokk á manni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá sem grunaðir um að hafa rænt annan mann og gengið í skrokk á honum til að komast yfir verðmæti hans.

Nóttin gekk vel þrátt fyrir mikla ölvun
Nýársnótt gekk vel fyrir sig, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og engin „stór mál“ rötuðu á borð lögreglu. Fjórir gistu í fangaklefum í morgun sem telst mjög lítið að morgni nýársdags.

Fyrsta barn ársins komið í heiminn
Fyrsta barn ársins 2024, eftir því sem fréttastofa kemst næst, kom í heiminn á fæðingardeild Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík klukkan 9:12 í morgun.

Grænni og enn vænni Reykjavík
Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. Og hvernig hefur nú tekist til?

Með innkaupakerru á miðri akbraut og sagðist taka styðstu leið
Tilkynnt var um mann með innkaupakerru á miðri akbraut en þegar lögregla ræddi við hann kvaðst hann vera að taka stystu leið á áfangastað og að göngustígar væru ófærir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en maðurinn sagðist jafnframt ætla að koma sér af akbrautinni.

Allir í sund?!
Við mótmælum breytingum á opnunartíma sundlauga Reykjavíkur! Nú stendur til að skerða opnunartíma sundlauga í Reykjavík, bæði yfir hátíðarnar og um helgar! Þetta eru sár vonbrigði og ósættanlegt og þvert á vilja og aðsókn sundlaugargesta!

Hafa komið upp stærðarinnar tjaldi á Austurvelli
Fólk á flótta frá Gasa, sem síðustu tvo sólarhringa hefur dvalið í tjöldum á Austurvelli í Reykjavík, hefur nú komið upp stærðarinnar tjaldi á staðnum. Fólkið hefur dvalið í tjöldunum til að mótmæla því sem lýst er sem aðgerðarleysi stjórnvalda varðandi fjölskyldusameiningu palestínsks flóttafólks.

Þjófnaðir, „flugeldastríð“ og örvæntingafullir Arsenal-aðdáendur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti mörgum og fjölbreyttum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð til vegna þjófnaða, „flugeldastríðs“ og manns sem var að afklæðast úti á götu.

Stelpur moka fyrir gott málefni
Þrjár harðduglegar ellefu ára stúlkur safna nú fyrir Barnaspítala Hringsins með því að moka innkeyrslur og tröppur hjá fólki. Þetta gera stúlkurnar af mikilli hjartagæsku og hugsjón því þær þekkja til spítalans.