Hafnarfjörður

Selma, Björk og Salka Sól setja á svið grínverk um konur
Söng og leikkonurnar Selma Björnsdóttir, Salka Sól Eyfeld og Björk Eiðsdóttir sameina krafta sína og frumsýna nýtt grínverk í janúar. Þær munu allar leika og syngja í sýningunni.

Við viljum bjóða þrjátíuþúsundasta íbúa Hafnarfjarðar velkominn…………..aftur
Undanfarin ár hafa verið mikill vaxtartími á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúum á SV horninu hefur fjölgað mikið. Íbúum Hafnarfjarðar hefur hreinlega fækkað um 0,7% á árinu 2020.

Var vakandi alla nóttina fyrir slysið við Tjarnarvelli
Ökumaður bíls sem lenti í hörðum árekstri á Reykjanesbraut í október 2018 hafði verið vakandi alla nóttina áður en slysið varð og sennilegt er að hann hafi sofnað við aksturinn.

Setti óstaðfest heimsmet í sandspyrnu
Náði tæplega 196 kílómetra hraða á klukkustund innan hundrað metra.

Actavis á Íslandi tekur upp nafn Teva
Nafni Actavis Pharmaceuticals Iceland ehf. hefur verið breytt í Teva Pharma Iceland ehf.

Tvær líkamsárásir í Hafnarfirði á innan við tíu mínútum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í tvígang í nótt á innan við tíu mínútum vegna líkamsárása í Hafnarfirði.

Fundu skýringu á brennisteinslykt af heita vatninu
Fréttastofu hafa borist ábendingar um að töluverð brennisteinslykt sé af heita vatninu í Kópavogi og Hafnarfirði.

Malbikun á Reykjanesbraut í kvöld
Stefnt er að malbikun á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í kvöld frá klukkan átta og til eitt eftir miðnætti.

Nýrri göngubrú yfir Reykjanesbraut komið á sinn stað
Ný göngubrú yfir Reykjanesbraut var hífð á stöpla sína við Ásland í Hafnarfirði í morgun.

Stór skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu fundu fyrir vænum hristingi um korter yfir fjögur. Fréttastofu hafa borist símtöl og greinilegt að mjög margir hafa orðið skjálftans varir.

Telja sig peð í tafli Rio Tinto og Landsvirkjunar
Starfsmenn álversins í Straumsvík telja Rio Tinto tefla sér fram í deilu álfyrirtækisins fyrir betri raforkusamningi við Landsvirkjun. Kjaradeilan er komin til ríkissáttasemjara.

Hressar og skemmtilegar nunnur í Stykkishólmi og Hafnarfirði
Nunnurnar í Stykkishólmi og Hafnarfirði gera mikið af því að hittast og eiga góða stund saman.

Fullur þrýstingur kominn á aftur eftir leka
Viðgerð vegna leka úr hitaveitulögn í Hafnarfirði í gær lauk skömmu fyrir þrjú í nótt. Loka þurfti fyrir heitt vatn á hluta Hafnarfjarðar, á Álftanesi og hluta Garðabæjar vegna lekans.

Jökli bjargað úr höfninni
Trébáturinn Jökull SK-16 er komin á flot. Hann sökk við Óseyrarbryggu í Hafnarfirði fyrr í vikunni.

Sækja um nýtt starfsleyfi fyrir álverið í Straumsvík
Rio Tinto á Íslandi hf. hefur sótt um nýtt starfsleyfi fyrir álver ISAL í Straumsvík. Núverandi starfsleyfi rennur út 1. nóvember næstkomandi.

Leki í dælustöð heits vatns við Vífilsstaði
Dælustöðin er nú óstarfhæf en vatni er veitt eftir öðrum leiðum til notenda sunnan Vífilstaða, þ.e. í Hafnarfirði og Urriðaholti í Garðabæ.

Framkvæmdum lokið og heitu vatni hleypt aftur á
Verið er að hleypa heitu vatni aftur á þau hverfi höfuðborgarsvæðisins sem hafa verið heitavatnslaus frá því í nótt. Framkvæmdum lauk fyrr en áætlað var.

Tjón getur hlaupið á hundrað þúsund krónum ef dælur ganga án heits vatns
Eigandi Heitra gólfa, fyrirtækis sem sér um að leggja gólfhitakerfi, segir áríðandi að fólk með slík kerfi taki hringrásardæluna úr sambandi áður en skrúfað verður fyrir heitt vatn á hluta höfuðborgarsvæðisins í nótt.

Bátur sökk í Hafnarfjarðarhöfn
Báturinn Jökull er sokkinn í Hafnarfjarðarhöfn.

Hárgreiðslustofur og matvælafyrirtæki gætu þurft að loka tímabundið þegar heita vatnið fer
Lokað verður fyrir rennsli heits vatns í Hafnarfirði og í nokkrum öðrum hverfum á höfuðborgarsvæðinu klukkan 2 í nótt þar til á miðvikudagsmorgun. Upplýsingafulltrúi segir að einhver fyrirtæki þurfi að leggja niður starfsemi á meðan. Þá þurfi önnur að gera ráðstafanir.

Sækja slasaðan hjólreiðamann að Helgafelli
Sjúkraflutningamenn hafa verið kallaðir út að Helgafelli í Hafnarfirði vegna reiðhjólaslyss á reiðhjólastíg á svæðinu.

Var ósáttur með ökulag sextán ára drengs á vespu og réðst á hann
Tilkynnt var um líkamsárás í Hafnarfirði á níunda tímanum í gær. Ökumaður bifreiðar var ósáttur við akstur sextán ára drengs á vespu.

Skrúfa fyrir heita vatnið á stóru svæði eftir helgi
Áætlað er að fyrir vikið munu um 50 þúsund manns vera heitvatnslaus í 30 klukkustundir.

Villtist í þoku á Helgafelli
Björgunarsveitir í Garðabæ og Hafnarfirði voru kallaðar úr rétt fyrir klukkan eitt í nótt vegna karlmanns sem hafði villst í þoku á Helgafelli ofan við Hafnarfjörð.

Álverið mikilvægt en orkan fari ekki á útsölu
Á sama tíma og bjóða á upp á samkeppnishæft umhverfi á að gera kröfu um að sala á orkuafurðum úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar sé arðbær. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Ráðherra vill að stóriðjan birti samninga við Landsvirkjun
Iðnaðarráðherra segir mikilvægt að allir raforkusamningar stóriðju á Íslandi verði opinberaðir. Eftir mikinn taprekstur álversins í Straumsvík undanfarin ár sakar fyrirtækið Landsvirkjun um að mismuna stóriðjufyrirtækjum landsins. Það hótar að hætta starfsemi sinni lækki Landsvirkjun ekki verð á orku.

Rio Tinto birtir samninginn geri önnur íslensk álver það líka
Forsvarsmenn Rio Tinto sem reka álverið í Straumsvík segja viðeigandi að trúnaði verði aflétt af öðrum samningum Landsvirkjunar við álver á landinu ef fyrirtækið eigi að birta sinn samning opinberlega.

Loka álverinu í Straumsvík ef Landsvirkjun breytir ekki hegðun sinni
Rio Tinto hefur lagt fram formlega kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna þess sem félagið telur vera misnotkun Landsvirkjunar „á yfirburðastöðu fyrirtækisins“ gagnvart álverinu í Straumsvík.

Borgarlínan ekki eins dýr og margir haldi fram
Verkefnastjóri Borgarlínu segir hana ekki verða eins dýra og margir hafi haldið fram. Hún muni borga sig í stóra samhenginu, þar sem margir geti ferðast með einu ökutæki á meiri hraða en áður.

Ólga innan sundhreyfingarinnar vegna meints brots Hafnfirðinga á samkomubanni
Formaður SSÍ hafnar því að sundmenn ætli að sniðganga Íslandsmeistaramótið sem haldið verður um næstu helgi.