

Í ljósi þess að tvær hópsýkingar geisa nú innanlands hefur þingflokkur Samfylkingarinnar ákveðið að leggja fram, við fyrsta tækifæri, frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum sem heimilar ráðherra að skylda komufarþega til dvalar í sóttvarnarhúsi.
Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, er nú skráður í Viðreisn og er hluti af teymi sem stillir upp á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir næstu kosningar. Hann er þó sjálfur ekki í framboði og kveðst ekki hafa leitast eftir því.
Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar segir það ekki svo að Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi ýtt honum niður í annað sæti á lista flokksins í Kraganum.
Ég er stundum að heyra og lesa það í fjölmiðlum að Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi „ýtt mér“ í annað sætið á lista Samfó í Kraganum. Þannig lít ég nú ekki á það, ef einhver hefði fyrir því að spyrja mig.
Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára er megináherslan á að stöðva hlutfallslegan vöxt skuldasöfnunar en minni metnaður lagður í arðbærar fjárfestingar, opinbera þjónustu, öflugri almannatryggingar og stuðning við fólk sem misst hefur vinnuna.
„Ég fyrirlít skoðanir þínar, en ég er reiðubúinn að fórna lífi mínu fyrir rétt þinn til að tjá þær“
Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Hann segir flokkinn upphaflega hafa verið breiðfylkingu en nú pólitískt jaðarsamfélag vina. Hann eigi því ekki lengur erindi innan flokksins.
Ein verðmætasta sameiginlega eign þjóðarinnar samkvæmt lögum er sjávarauðlindin. Fyrir nýtingu á henni greiðir útgerðin veiðileyfagjald. En vissu þið þessa fimm punkta um veiðileyfagjöldin?
Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar og Viktor Stefán Pálsson, sviðsstjóri hjá Matvælastofnun munu leiða lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Framboðslistinn var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kvöld.
Undanfarið hafa Samfylkingarþingmenn farið mikinn vegna meintra flökkusagna okkar Miðflokksfólks um fjölda þeirra íbúða sem seldar voru ofan af fólki í hruninu og í kjölfar þess. Þingmennirnir hafa einnig efast um tölur yfir fjölda einstaklinga sem misstu húsnæði sitt.
Karen Kjartansdóttirhefur gengt starfi framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar undanfarin tvö og hálft ár en hefur nú sagt sig frá því. Hún segir hugmyndir sínar og formanns framkvæmdastjórnar of ólíkar til að geta starfað áfram fyrir flokkinn. Innan við sex mánuðir eru í kosningar til Alþingis.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lagt til að auðugir einstaklingar og fyrirtæki sem högnuðust á kórónakreppunni borgi eins konar „samstöðuskatta“.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í haust var samþykktur á fundi kjördæmaráðs flokksins í kvöld. Logi Einarsson, formaður flokksins, leiðir listann sem er sagður hafa verið samþykktur samhljóða.
Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Alþingi komi saman án tafar til þess að ráðast í lagasetningu sem rennir stoðum undir nauðsynlegar sóttvarnir á landamærunum. Það felur í sér að kalla þarf þingmenn heim úr páskafríi.
Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir mikilvægt að heilbrigðisráðherra komi fyrir fund nefndarinnar til þess að benda á þá lagastoð sem sé fyrir hertum aðgerðum á landamærunum.
„Við vonum að þetta verði til að bæta andrúmsloftið innan hópsins og draga úr skrifum og athugasemdum sem eru beinlínis skaðleg fyrir flokkinn,“ segir í orðum sem eiga að útskýra nýjar reglur í Facebook-hópi Samfylkingarinnar.
Meginhlutverk Alþingis er að setja landinu lög og gæta almannahagsmuna gegn sérhagsmunaöflum. Máttur sérhagsmunaafla getur verið mikill og rödd þeirra hávær eins og sjá má á forsíðu Fréttablaðsins í dag 30 mars. Þar birtist framkvæmdarstjóri SA með þann boðskap helstan að Samkeppniseftirlitið sé ekki nægilega leiðitamt við stærstu fyrirtæki landsins.
Valgarður Lyngdal Jónsson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi á Akranesi, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.
„Ég er löngu búinn að láta tattúa yfir það!“ svarar Páll Valur Björnsson, spurður að því hvort hann hyggist láta fjarlægja Samfylkingar-merkið af framhandlegg sínum eftir að hafa verið hafnað við uppstillingu á lista flokksins í Suðurkjördæmi.
Nú ólgar allt og kraumar innan Samfylkingarinnar vegna uppstillingar í Suðurkjördæmi. Oddný G. Harðardóttir skipar efsta sæti á lista þar en allir þeir sem höfðu opinberlega gefið kost á sér hafa dregið sig til baka.
Gunnar Rúnar Kristjánsson, bóndi og starfsmaður Rarik á Blönduósi, gefur kost á sér í 1. til 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina skauta framhjá atvinnuleysinu í fjármálaáætlun sem fjármálaráðherra kynnti í gær. Atvinnuleysið væri aðal úrlausnarefnið eftir kórónuveirufaraldurinn og hefði áhrif flestar þjóðhagsstærðir.
Gunnar Tryggvason, verkfræðingur sem starfar hjá Faxaflóahöfnum, hefur gefið kost á sér til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara í september.
Björn Guðmundsson, 64 ára gamall húsasmiður búsettur á Akranesi, sækist eftir einu af efstu fjórum sætunum á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.
Eitt af einkennum hægristjórna er að ráðast að eftirlitsstofnunum og veikja þá aðila sem standa vörð um almannahag með öllum ráðum. Núverandi ríkisstjórn er þar engin undantekning.
Gylfi Þór Gíslason, lögregluvarðstjóri á Ísafirði, hefur tilkynnt að hann sækist eftir einu af tveimur efstu sætunum á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis. Aðrir þingmenn flokksins styðja tillöguna.
Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar mun ekki gefa kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður nú í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guðjóni sem send var fjölmiðlum nú síðdegis.
Svandís Svavarsdóttir segir löngu tímabært að Íslendingar fái upplýsingar um afhendingaráætlun bóluefna fyrir næsta ársfjórðung. Gert er ráð fyrir að fjörutíu og þrjú þúsund manns verði bólusettir í lok mánaðarins.
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld þurfa að hreyfa sig hraðar og koma þeim sem hefðu verið atvinnulausir lengi til mun meiri aðstoðar en hingað til. Félagsmálaráðherra segir allar aðgerðir stjórnvalda miða við þetta og sú nýjasta sé sú viðamesta til sköpunar starfa.