Kjaramál

Kosningar í Eflingu: Segjast ekki kannast við áróður á kjörstað
Magnús M. Norðdahl, formaður kjörstjórnar verkalýðsfélagsins Eflingar, segir að þeir starfsmenn félagsins sem rætt hafi verið við vegna meints áróðurs á kjörstað utan kjörfundar kannist ekki við atvikið.

Dæmi um að viðhalds- og umsýslugjöld séu dregin af launum erlendra starfsmanna
60 prósent þeirra mála sem komu inn á borð Eflingar á síðasta ári varðandi launakröfur og brot á réttindum launafólks tendust launafólki af erlendum uppruna.

„Það eina sem þetta B-listafólk vill er verkfall, verkfall og aftur verkfall“
B-listi hyggst kæra kosningar í Eflingu vegna áróðurs á kjörstað.

Stjórnvöld enn á „gulu ljósi“ að mati Gylfa
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir að stjórnvöld séu enn á „gulu ljósi“ þrátt fyrir niðurstöðu atkvæðagreiðslu formannsfundar aðildarfélaga ASÍ á miðvikudag.

Lögðu niður botnfiskvinnslu með drjúga launahækkun í vasanum
Á sama tíma og HB Grandi ákvað í fyrra að leggja niður botnfiskvinnslu á Akranesi í hagræðingarskyni og segja upp nærri 90 manns höfðu mánaðarlaun forstjóra fyrirtækisins hækkað um 330 þúsund krónur milli ára.

Ragnar segir niðurstöðuna skrifast á Gylfa Arnbjörnsson
Formaður VR skýtur fast á forseta ASÍ í kjölfar niðurstöðu formannafundar í gær um að fella tillögu um að segja upp kjarasamningum. Niðurstaðan sé vantraust á forsetann sem hafi viljað sjá samninga halda þrátt fyrir atkvæði hans um

SA segir brýnast að standa vörð um kaupmátt
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að nú sé mikilvægast að viðhalda þeirri kaupmáttaraukningu sem náðst hafi með núgildandi kjarasamningum.

Forysta ASÍ boðar átök á vinnumarkaði í haust
Forseti Alþýðusambandsins segir mikla óánægju krauma undir meðal félagsmanna sambandsins og búast megi við hörðum átökum við gerð næstu kjarasamninga undir lok ársins.

Markaðurinn tók vel í fréttir af kjarasamningum
Gengi hlutabréfa allra fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni hækkuðu nokkuð í verði eftir að fréttir bárust af því að formannafundur ASÍ samþykkti að segja ekki upp kjarasamningum.

Kjarasamningar halda
28 formenn felldu tillögu um riftun en 21 var með.

Forseti ASÍ segir tvísýnt um uppsögn samninga í atkvæðagreiðslu
Gylfi Arnbjörnsson segir forsendubrest samninga frá því í janúar í fyrra enn vera fyrir hendi.

Háar greiðslur ofan á launin
Starfskjör þingmanna eru mjög mismunandi. Fara eftir kjördæmum, búsetu, valdastöðum á þingi og í flokkunum. Kristján Þór fær mest utan forsætisráðherra en Logi Einarsson er hæstur stjórnarandstöðumannna.

Ögurstund runnin upp á vinnumarkaði
Kjarasamningar um 100 þúsund manns gætu orðið lausir í dag. Formannafundur ASÍ hefur lokaorðið í þeim efnum.

Þúsundir utan kjörskrárinnar
Af þeim tæplega 25 þúsund manns sem greiða eða hafa greitt iðgjöld til Eflingar á undanförnum 12 mánuðum eru aðeins rúmlega 16 þúsund á kjörskrá vegna stjórnarkjörs í stéttarfélaginu Eflingu.

VR vill segja upp kjarasamningum: „Einfaldlega verið að hafa okkur að fíflum“
Stjórnar- og trúnaðarráð VR lítur svo á að forsendur kjarasamninga séu brostnar og að öllu óbreyttu beri að segja þeim upp. Ályktun þess efnis var samþykkt á fundi ráðsins í kvöld.

Ríkisstjórnin býður hækkun atvinnuleysisbóta og samráð um breytingar á sköttum og bótum
Stjórnvöld eru reiðubúin að hækka atvinnuleysisbætur, launagreiðslur úr Ábyrgðasjóði launa og hefja vinnu með aðilum vinnumarkaðarins um skattkerfisbreytingar til að greiða fyrir að samningum á almennum markaði verði ekki sagt upp á morgun.

Útspil ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga kynnt
Ríkisstjórnin er reiðubúin til þess að hækka mánaðarlegar greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa, hækka atvinnuleysistryggingar og ætlar að hefja endurskoðun á tekjuskattskerfinu með áherslu á lækkun skattbyrði.

Frestur til uppsagna kjarasamninga þorra verkafólks að renna út
Komið er að ögurstundu varðandi uppsögn um hundrað þúsund manna á almenna launamarkaðnum en frestur til að segja samningunum upp rennur út klukkan fjögur á morgun.

Verkalýðsleiðtogi segir yfirgengilegt og blöskranlegt launaskrið í efstu lögum
Ragnar Þór Ingólfsson telur framtíð kjarasamninga ráðist í kvöld.

Laun lykilstjórnenda bankanna þriggja 1.000 milljónir í fyrra
Lykilstjórnendur stóru viðskiptabankanna þriggja fengu samanlagt rúman einn milljarð króna í laun, hlunnindi og árangurstengdar greiðslur á síðasta ári. Bankastjóri Arion banka með ríflega 5,9 milljónir á mánuði.

Eva Pandora sagði óvart ósatt: Fékk tæpar 1,2 milljónir endurgreiddar vegna aksturs
Eva Pandora Baldursdóttir fyrrum þingmaður Pírata í norðvesturkjördæmi var í 10. sæti listans yfir þá þingmenn sem óku mest árið 2017 en áður hafði hún sagt að hún væri ekki á topp tíu listanum.

Efling þverneitar að afhenda B-framboði upplýsingar um félagsmenn
Sigurður Bessason segir um trúnaðarupplýsingar sé að ræða þrátt fyrir álit Persónuverndar.

Bjarni sagði að búið væri að stórbæta kjör Íslendinga á síðustu árum
Sagði Samtök atvinnulífsins hafa nokkuð til síns máls í umræðu um kjarasamninga.

Úrslitastund eftir viku
ASÍ telur forsendur kjarasamninga brostnar, en forsetinn segir ótímabært að rekja ástæðurnar. Framkvæmdastjóri SA segir Íslendinga upplifa sögulegt skeið.

Kjarasamningar hundrað þúsund manns gætu runnið út eftir viku
Forsendur kjarasamninga um hundrað þúsund karla og kvenna eru brostnar að mati Alþýðusambandsins og að óbreyttu kann þeim að verða sagt upp eftir viku.

ASÍ segir forsendur kjarasamninga brostnar
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandi en þar segir að samkvæmt ákvæði í samningunum koma þeir til endurskoðunar fyrir lok þessa mánaðar.

SA leggst gegn fækkun dagvinnustunda og segir byrjað á öfugum enda
Í dag verður mælt fyrir frumvarpi þingmanna Pírata um að vinnuvikan verði stytt í 35 stundir eða um klukkustund á dag

Flugfreyjufélagið og Wow undirrituðu nýjan samning í nótt
Kjör fyrstu flugfreyja sögð batna umtalsvert.

Samningar flugliða hjá WOW felldir öðru sinni
Flugliðar hjá WOW hafa fellt kjarasamning við vinnuveitanda sinn öðru sinni. Atkvæðagreiðslu lauk í fyrradag.

Stjórn Eflingar leggur steina í götu Sólveigar Önnu
Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar í B-framboðinu eiga ekki uppá pallborðið hjá núverandi stjórn Eflingar.