
Serbía

Novak Djokovic líka með kórónuveiruna
Besti tennisleikari heims er með kórónuveiruna en Novak Djokovic er nú kominn í hóp þeirra tennisspilara sem hafa smitast af veirunni.

Vučić herðir tökin
Engin raunveruleg stjórnarandstaða verður á serbneska þinginu eftir að Serbneski framfaraflokkurinn hirti stóran meirihluta þingsæta í kosningum gærdagsins. Stjórnarandstæðingar sniðgengu kosningarnar.

Íhaldsflokkur Vucic með yfirburðasigur í Serbíu
Útgönguspár benda til að Framfaraflokkur Serbíu (SNS) hafi hlotið rúmlega 62 prósent atkvæða.

Flestar deildir spila fyrir tómum áhorfendapöllum en svona var stemningin á grannaslagnum í Belgrad
Flestar deildir heims spila fyrir tómum áhorfendapöllum en það var ekki upp á teningnum í Belgrad í Serbíu í gær þegar grannarnir Partizan Belgrad og Crvena Zvezda, betur þekkt sem Rauða stjarnan, mættust í gær.

Fyrrum framherji Anderlecht svipti sig lífi
Serbneski knattspyrnumaðurinn Miljan Mrdakovic lést um helgina 38 ára gamall en hann er talinn hafa framið sjálfsmorð í íbúð sinni í Belgrad um helgina.

Telja Ungverjaland ekki lengur lýðræðisríki
Ungverjaland, Svartfjallaland og Serbía eru ekki lengur lýðræðisríki. Þetta er mat bandarísku hugveitunnar Freedom House sem birti árlega skýrslu sína um stöðu lýðræðis í dag.

Djokovic er á móti bólusetningum
Besti tennisleikari heims er á móti bólusetningum. Hann segist þó þurfa að hugsa sinn gang ef bólusetningar verða gerðar að skilyrði fyrir því að keppni geti hafist á ný.

Fyrrum stjóri Real og Barcelona látinn
Fyrrum knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn, Serbinn Radomir Antic er látinn, 71 árs að aldri. Hann lék meðal annars með Partizan, Real Zaragoza og Luton á sínum ferli.

Taka lýðræðið úr sambandi í skjóli faraldursins
Eftirlit með símanotkun almennra borgara og þungir fangelsisdómar fyrir að hunsa útgöngubann er á meðal harðra aðgerða sem popúlískir þjóðarleiðtogar í Austur-Evrópuríkjum og víðar hafa gripið til vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Sumir þeirra eru sakaðir um að notfæra sér neyðarástandið til þess að sanka að sér völdum.

Einn sá besti í sögunni spilaði tennis við krakka á götum Belgrad | Myndband
Myndband birtist af Novak Djokovic, einum besta tenniskappa sögunnar, spila tennis við börn í heimaborg sinni, Belgrad í Serbíu.

Djokovic vann opna ástralska í áttunda skipti
Serbinn Novak Djokovic vann opna ástralska meistaramótið í tennis í 8. skipti í dag eftir frábæra endurkomu gegn Dominic Thiem. Er þetta annað árið í röð sem Djokovic vinnur í Ástralíu.

Mótmæli í Suður-Evrópu vegna stækrar loftmengunar
Umferð bifreiða hefur verið takmörkuð á Ítalíu og í Bosníu og Hersegóvínu. Mótmælendur hafa krafist tafarlausra aðgerða til að draga úr menguninni.

Milos í þjálfarateymi Stankovic hjá Rauðu stjörnunni
Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings og Breiðabliks, er kominn í starf hjá stærsta liðinu í heimalandi sínu, Serbíu.

Snéri aftur á bekkinn eftir 41 dags krabbameinsmeðferð
Það var tilfinningaþrungin stund í ítalska boltanum um helgina þegar Sinisa Mihajlovic snéri aftur á hliðarlínuna hjá Bologna.

Þóttist hafa komið fyrir sprengju til að fá flugfreyju á stefnumót með sér
Maður frá Serbíu játaði að bera ábyrgð á sprengjuhótun, sem var þó bara gabb, í von um að fá flugfreyju til að fara á stefnumót með sér.

Hollensk stjórnvöld ábyrg fyrir fjöldamorðinu í Srebrenica
Hollenskir friðargæsluliðar afhentu hersveitum Bosníuserba flóttamenn sem voru svo myrtir í versta fjöldamorði Bosníustríðsins á 10. áratugnum.

Djokovic sigurvegari eftir sögulegan úrslitaleik á Wimbledon
Novak Djokovic er sigurvegari á Wimbledonmótinu eftir bráðabana í sögulegum úrslitaleik við Roger Federer.

Sinisa Mihajlovic með hvítblæði
Serbinn heldur starfi sínu sem knattspyrnustjóri Bologna áfram þrátt fyrir veikindin.

Serbar fengu brons á heimavelli
Bretand kom mest á óvart á mótinu en fékk skell í bronsleiknum.

Leikkona úr Bond-myndum fallin frá
Serbneska leikkonan Nadja Regin er látin, 87 ára að aldri.

Karadzic dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir þjóðarmorð
Við áfrýjun var fangelsisdómur fyrrum leiðtoga Bosníu-Serba lengdur í ljósi alvarleika glæpa hans.

Serbar gagnrýndir fyrir bókaútgáfu
Mannréttindasamtök gagnrýna útgáfu serbneska varnarmálaráðuneytisins á bókum stríðsglæpamanna og segja hana jafngilda opinberum stuðningi við gjörðir mannanna.

Fækkun bólusettra leiðir til metfjölda mislingasmita í Evrópu
Alls hafa rúmlega 41.000 manns greinst með mislinga í álfunni og 37 hafa látist.

Árás á blaðamann skaði umsókn Svartfellinga
Skotárásin sem gerð var á þriðjudag á Oliveru Lakic, 49 ára blaðamann sem skrifar um skipulagða glæpastarfsemi í dagblaðið Vijesti, hefur teflt umsókn Svartfjallalands um aðild að Evrópusambandinu í hættu.

Serbneskur þjóðernissinni dæmdur fyrir stríðsglæpi
Vojislav Seselj var talinn hafa hvatt til ofsókna með ræðu sem hann hélt árið 1992. Hann hefur þegar afplánað fangelsisvistina sem hann var dæmdur til.

Morðið gæti flækt samskipti ríkja
Kósóvó-serbneski stjórnmálamaðurinn Oliver Ivanovic var skotinn til bana í borginni Mitrovica í gærmorgun.

Fjöldamótmæli víða í Serbíu
Hundruð þúsunda hafa mótmælt kjöri Aleksandars Vucic, nýs forseta Serbíu, frá kosningunum sem fóru fram 2. apríl síðastliðinn.

Aðildarríki ESB samþykkja umsókn Bosníu að sambandinu
Forsætisráðherra Bosníu segir daginn vera sögulegan.

Tugir handteknir í stærsta spillingarmáli Serbíu í áraraðir
Meðal hinna handteknu er fyrrverandi landbúnaðar-, ferðamála- og viðskiptaráðherra landsins

Stjórnarandstaðan beitti táragasi á þinginu í Kósovó
Freistaði þess að koma í veg fyrir umræðu um bætt samskipti Kósovó og Serbíu.