
Skíðasvæði

Segja loforð svikin í Skálafelli
Hópurinn Opnum Skálafell kallar eftir því að stjórnvöld og hluteigandi aðilar standi við gerða samninga um uppbyggingu í Skálafelli. Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað í allan vetur, annað árið í röð. Fulltrúar hópsins óttast að stjórnvöld séu að reyna hlaupa undan gerðum samningum.

Aðeins bjartsýnustu menn geti rekið skíðasvæði á Íslandi
Rekstrarstjóri skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli segir að það þurfi að vera með bjartsýnustu mönnum til að reka skíðasvæði á Íslandi en aðeins hefur verið hægt að hafa opið í Bláfjöll einn dag af sextán í mánuðinum.

Kóngurinn ógangfær eftir að eldingum laust niður í hann
Skíðalyftan Kóngurinn í Bláfjöllum er ógangfær vegna skemmda sem urðu af völdum eldinga í óveðrinu sem gekk yfir í vikunni. Þá sprakk hluti af stýribúnaði snjóframleiðslu á skíðasvæðinu.

Sleðar bannaðir á opnunartíma: „Leið eins og maður væri ekki velkominn“
Reykjavíkurborg hefur tekið þá ákvörðun að banna umferð sleða á skíðasvæðum borgarinnar meðan á opnun skíðalyftanna stendur. Iðkandi til margra ára er forviða á reglunum og lýsir leiðinlegri upplifun á skíðasvæðinu í Ártúnsbrekku er honum var tjáð um breytinguna.

Akureyringar eins og beljur að vori
Skíðabrekkur Hlíðarfjalls á Akureyri voru í morgun opnaðar í fyrsta sinn í vetur. Snjóleysi í fjallinu hefur verið skíðafólki fyrir norðan til vandræða. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir svæðið strax vera pakkfullt.

Hlíðarfjall opnað í fyrsta sinn í vetur
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður að óbreyttu opnað í fyrsta sinn í vetur á laugardag. Forstöðumaður segir þetta mun seinna en vanalega og er spenntur fyrir deginum. Þúsundir hafa streymt í Bláfjöll síðustu daga.

Margmenni í Bláfjöllum
Fjölmargir skelltu á skíði í Bláfjöllum í dag enda bjart og heiðskírt þó kalt hafi verið í fjallinu. Tökumaður Stöðvar 2 myndaði stemninguna.

Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar
Minniháttar skemmdir urðu á skíðasvæði Bláfjalla í óveðrinu sem geysað hefur undanfarna daga. Verið er að meta skemmdir og vonast er til þess að hægt verði að opna svæðið eftir helgi.

Samið um lagningu skíðagöngubrauta á Hólmsheiði og Rauðavatni
Reykjavíkurborg hefur gert þjónustusamning við Sporið um lagningu skíðagöngubrauta á Hólmsheiðinni og á Rauðavatni í vetur.

Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn
Veturinn á Íslandi getur verið langur, kaldur og dimmur. Góðu fréttirnar eru þær að það tekur enga stund að panta ævintýraferð með Úrval Útsýn. Hvort sem um er að ræða ferð í sólina, skemmtilega skíðaferð, notalega siglingu eða eftirminnilega hópferð, Úrval Útsýn hefur allt sem þarf til að gera ferðalagið eftirminnilegt.

Leiðin að lengsta skíðastökki allra tíma
Á Youtube er nú vinsælt myndband í dreifingu sem sýnir skíðastökkið sem framkvæmt var á Akureyri í apríl og allan undirbúning þess. Japaninn Ryoyu Kobayashi stökk 291 metra á skíðum í Hlíðarfjalli á Akureyri 24. apríl síðastliðinn.

Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli
Japaninn Ryoyu Kobayashi sló í dag heimsmet í skíðastökki þegar hann stökk 291 metra í Hlíðarfjalli á Akureyri. Metið fyrir tilraun Kobayashi var 253,5 metrar og í eigu Austurríkismannsins Stefan Kraft.

Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu
Japanski skíðastökkvarinn Ryoyu Kobayashi gerði í morgun aðra atlögu að því að stökkva yfir 300 metra í Hlíðarfjalli í dag. Mikil leynd hvílir yfir viðburðinum sem er hluti af markaðssetningu Red Bull drykkjarins.

Allt klárt fyrir tilraun við heimsmet í Hlíðarfjalli
Heimssögulegur viðburður er í uppsiglingu í rjómablíðu í Hlíðarfjalli á Akureyri nú í morgunsárið. Þar ætlar japanskur skíðastökkvari að slá heimsmetið í skíðastökki. Fylgst er með gangi mála í vaktinni.

Snjóbylur setur strik í stærstu skíðahelgi ársins
Víða er ófært á Norður- og Austurlandi í dag og þurftu stjórnendur Hlíðarfjalls að loka á einni stærstu skíðahelgi ársins þegar snjóbylur skall á. Þá hafa björgunarsveitir þurft að aðstoða mikinn fjölda ferðalanga.

„Við vælum ekki þegar við fáum nýjan snjó“
Akureyri iðar af lífi og fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Hlíðarfjall á síðustu dögum. Aðstæður í fjallinu eru með góðu móti, enda segir rekstrarstjóri skíðasvæðisins ekki hægt að kvarta þegar nýr snjór fellur í brekkurnar.

„Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“
Aðsókn í Bláfjöll var minni í gær en búast hefði mátt við í heiðríkjunni vegna nokkurs hvassviðris á svæðinu að sögn framkvæmdastjóra. Hann býst hins vegar við fjölmenni í dag og skorar á fólk að draga fram skíðin og mæta.

Besta spá í Bláfjöllum í tíu ár
Fjölmargir nýta páskafríið til að skíða hvort sem það er í austurrísku Ölpunum eða Bláfjöllum. Einar Bjarnason, rekstarstjóri Bláfjalla, segir veðurspána fyrir páskana þá bestu sem hann hefur séð í áratug.

Fjórtán ára piltur féll úr stólalyftu í Bláfjöllum
Fjórtán ára piltur féll tíu metra úr stólalyftu í Bláfjöllum. Að sögn lögreglu vankaðist pilturinn við fallið en rankaði síðan við sér.

Fara yfir öryggisbúnað og uppfæra hættumat
Almannavarnanefnd Austurlands hefur ásamt sveitarfélögunum Múlaþingi og Fjarðabyggð hafið vinnu við að rýna verkferla varðandi skíðasvæðin í Stafdal og Oddsskarði. Snjóflóð féllu þar um síðustu helgi.

Tveir þrettán ára drengir lentu í snjóflóði
Tveir þrettán ára drengir urðu fyrir snjóflóði á skíðasvæðinu í Stafdal í Seyðisfirði á laugardag. Annar þeirra missti meðvitund og lá grafinn í flóðinu í tuttugu mínútur, en hinn barst niður með flóðinu.

Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur
Skíðavertíðin er í hámarki hér á landi næstu vikurnar og fjöldi skíðasvæða um land allt eru full af glöðu fólki á öllum aldri.

Vök Baths og vetrarperlur Austurlands
Vök Baths, sem eru staðsettar á bökkum Urriðavatns við Egilsstaði, eru heitar náttúrulaugar sem opnuðu sumarið 2019 og hafa notið mikilla vinsælda meðal ferðamanna og heimamanna.

Þyrluflug á sjúkrahús eftir slæmt skíðaslys
Bandaríska skíðastjarnan Mikaela Shiffrin var flutt með þyrluflugi á sjúkrahús eftir slæmt hrap í brunkeppni kvenna í Cortina d'Ampezzo á Ítalíu.

Tröllaskagi er „skíðahöfuðborg“ Íslands
Fyrrverandi ferðamálastjóri gerir það gott í ferðaþjónustu þegar skíði eru annars vegar í Fljótum á Tröllaskaga en þar er hægt að fara á gönguskíði, alpaskíði eða fjallaskíði. Vinsældir skíðaferða á svæðið hafa slegið í gegn enda talað um Tröllaskaga, sem „Skíðahöfuðborg“ Íslands.

Opna aðra lyftuna í fyrra fallinu eftir sprenginguna í gær
Örtröð myndaðist í Bláfjöllum í gær þegar fimm þúsund manns lögðu leið sína í brekkurnar. Framkvæmdastjóri segir daginn einn þann allra fjölmennasta frá því hann hóf störf. Langar raðir myndist óhjákvæmilega þegar slíkur fjöldi komi saman. Ekki hafi verið hægt að opna fleiri lyftur vegna manneklu.

Ósáttur við skipulag í Bláfjöllum: „Þetta er ekki fólki bjóðandi“
Sigurður Ásgeir Ólafsson skíðaiðkandi segir farir sínar ekki sléttar af misheppnaðri Bláfjallaferð sinni í dag. Hann segir skipulagsleysi og troðning sem myndaðist á svæðinu ekki fólki bjóðandi.

Aldrei séð annað eins í Bláfjöllum
Gríðarlegur fjöldi hefur lagt leið sína í Bláfjöll í dag. Bíll er við bíl og hafa þó nokkrir þurft að frá að hverfa vegna fjöldans.

Troðfullar brekkur í Bláfjöllum
Skíðabrekkurnar í Bláfjöllum voru troðfullar í dag, þegar svæðið var opnað í fyrsta sinn í vetur. Skíðagarpar sem fréttastofa ræddi við áttu misfarsælan dag að baki í brekkunni.

Aðstæður eins og í Austurríki
Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli verða opnuð í dag, í fyrsta sinn í vetur. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðafæri gæti vart verið betra og lofar sannkallaðri hátíðarstemningu í brekkunum í dag.