Heilbrigðismál

„Atburðarásin bendir til að eitthvað hafi mátt betur fara“
Tæplega níutíu manns hafa smitast í hópsýkingu sem tengist Landakoti. Yfirmaður sýkingavarna á spítalanum segir atburðarásina benda til að eitthvað hefði mátt betur fara í sýkingavörnum.

Áfengisneysla aldraða og úrræðaleysi
Við lifum á tímum þar sem heilbrigðisþjónustan okkar er undir miklu álagi. Við erum að kljást við heimsfaraldur.

„Er hægt að setja verðmiða á barnið manns?“
Móðir langveiks barns gagnrýnir að geta ekki fengið lyf sem gæti hægt á framgangi sjúkdómsins. Vegna hennar er komin af stað vinna að frumvarpi sem gæti hjálpað fjölskyldum í þeirri stöðu, að þurfa að taka áhættu þegar allt annað hefur verið reynt.

Ekki búið að ná utan um hópsýkinguna á Landakoti
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það vonbrigði þegar svo umfangsmikil hópsýking hafi komið upp sem hitti illa fyrir viðkvæmasta hópinn. Hópsýkingar geti þó komið upp hvar sem er.

Allir á Vogi á leið í sýnatöku
Ef niðurstöður sýnatökunnar reynast góðar hefjast innlagnir á Vog að nýju.

Stéttarfélög áhafnarinnar kæra til lögreglu og krefjast sjóprófs
Stéttarfélög áhafnarinnar á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 hafa ákveðið að kæra framgöngu Hraðfrystihússins Gunnvarar til lögreglu vegna meðferðarinnar á skipverjunum í síðasta veiðitúr togarans. Stéttarfélögin vilja að sjópróf verði haldin.

Valkvæðum skurðagerðum frestað
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða.

Netverslun vikunnar er Netapótek Lyfjavers: Lágvöruverðsapótek nú aðgengilegt um land allt
Netapótek Lyfjavers er netverslun vikunnar á Vísi. Innskráning með rafrænum skiríkjum gefur meðal annars yfirsýn á lyfseðla, nákvæmt lyfjaverð og verðsamanburð. Með Netapóteki Lyfjavers ert þú komin/n með apótekið heim til þín

Svona var 128. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag.

Þrettán íbúar og fjórir starfsmenn Sólvalla smitaðir
Ellefu íbúar og fjórir starfsmenn öldrunarheimilisins Sólvalla á Eyrarbakka hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni.

Leggur til að valkvæðum skurðaðgerðum verði frestað
Á upplýsingafundi almannavarna í dag kvaðst Alma Möller, landlæknir, ætla að leggja það til við heilbrigðisráðherra síðar í dag að valkvæðum skurðaðgerðum sem leitt gætu til spítalainnlagnar yrði frestað.

„Heilbrigðisstarfsmenn sýndu í fyrstu bylgju hvers þeir eru megnugir“
Alma Möller landlæknir biðlaði á upplýsingafundi Almannavarna og embættis Landlæknis til heilbrigðismenntaðra einstaklinga sem ekki vinna í opinbera heilbrigðiskerfinu að skrá sig í bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar.

Telja ófært að spítalinn tapi rödd læknaráðs
Læknar endurvöktu læknaráð Landspítalans úr dvala í gærmorgun þegar fundur var haldinn á vegum ráðsins í fyrsta skipti frá því að ný lög um heilbrigðisþjónustu voru samþykkt í sumar.

Fimm sjúklingar og fimm starfsmenn Reykjalundar með veiruna
Fimm sjúklingar og fimm starfsmenn á Reykjalundi hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Tveir starfsmenn Reykjalundar greindust í gær með veiruna og störfuðu þeir báðir á sólarhringsdeild Reykjalundar, Miðgarði.

Þrír sjúklingar til viðbótar hafa greinst á Landakoti
Þrír sjúklingar til viðbótar hafa greinst smitaðir af Covid-19 á Landakoti við þá tuttugu og sex sem greindust í dag. Forstjóri Landspítalans segir stöðuna alvarlega en spítalann undirbúinn fyrir hópsýkingu af þessum toga.

Sjúklingur smitaður á Vogi
Sjúklingur á Vogi greindist smitaður af kórónuveirunni í dag. Þetta staðfestir yfirlæknir á Vogi í samtali við fréttastofu.

Einn í öndunarvél og fjórir á gjörgæslu
Einn er nú í öndunarvél með Covid-19 og fjórir á gjörgæslu á Landspítalanum. Enginn þeirra tíu Covid-sjúklinga sem fluttir voru af Landakoti yfir á Landspítalann séu á gjörgæslu.

Býst við fleiri smitum á Landakoti
Tuttugu og sex starfsmenn og sjúklingar á Landskotsspítala hafa nú greinst smitaðir af kórónuveirunni og býst sóttvarnalæknir við að þeim gæti fjölgað eitthvað á næstu dögum. Hópsmitið sýni hversu lítið þarf til að veiran komist inn í viðkvæma hópa þrátt fyrir strangar reglur og takmarkanir.

„Við gerum óspart grín að veikindum okkar og fylgikvillum“
Hafdís Magnúsdóttir sjúkraliði greindist með brjóstakrabbamein í febrúar árið 2019 og var það mikið áfall. Í endurhæfingunni uppgötvaði Hafdís nýja ástríðu á meðan hún lærði að kynnast sjálfri sér upp á nýtt, í félagsskap sem hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á hennar líðan.

Hópsmit á Landakoti
Hópsmit er komið upp á Landakoti og hafa nú alls sextán sjúklingar og sex starfsmenn greinst með veiruna. Landakoti hefur nú verið lokað.

Fordómar og COVID
Í fyrstu bylgju COVID faraldursins varð um helmingur allra dauðsfalla í Evrópu inni á hjúkrunarheimilum og langlegustofnunum. Sá hópur eldri borgara sem þar býr, var skilinn eftir afskiptalaus og óvarinn af yfirvöldum.

Telur ríkisstjórnina ætla að keyra öldrunarheimilin í þrot
Forstjóri Grundarheimilanna, dvalar- og hjúkrunarheimila fyrir aldraða, segir ríkisstjórnina viljandi svelta öldrunarheimilin með það að markmiði að rekstrinum verði skilað til ríkisins. Ríkisstjórnin geri allt hvað hún geti til að keyra öldrunarheimilin í þrot.

Ekki til umræðu að loka á flug frá tilteknum löndum
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir það ekki hafa komið til umræðu að stoppa flug frá tilteknum löndum.

Bóluefni hjá heilsugæslunni nánast búið
Löng röð hefur myndast fyrir utan Smáratorg þar sem fólk bíður þess að verða bólusett fyrir inflúensu. Bóluefni virðist enn vera til hjá apótekum landsins en það er uppurið á flestum heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu.

Bóluefni gegn inflúensu nánast á þrotum
Bóluefni gegn inflúensu er að klárast. Búið er að óska eftir fleiri skömmtum og beðið er eftir svörum. Áhættuhópar eru í forgangi.

Sá ekki tilgang þess að vera til
Andrea Eyland segir að röð áfalla hafi orðið til þess að einn daginn lenti hún á vegg. Hún vildi ekki lengur vakna daginn eftir. Hún átti börn að lifa fyrir en segist ekki hafa séð það þá.

Næðum ekki hjarðónæmi án alvarlegra afleiðinga
Hjarðónæmi við kórónuveirunni næst ekki án alvarlegra afleiðinga og enginn vísindalegur rökstuðningur hefur verið settur fram fyrir hugmyndum um að aflétta sóttvarnaaðgerðum og treysta á náttúrulegt hjarðónæmi, að sögn íslenskra sérfræðinga.

Frændsystkin í einangrun sakna foreldra sinna: „Allt út af smiti á líkamsræktarstöð“
Móðir 7 ára stúlku sem smitaðist af Covid19 í gegn um líkamsræktarstöð segir ábyrgðarlaust af ráðherra að heimila opnun stöðvanna. Hún hefur ekki hitt dóttur sína í þrjár vikur.

Segist ekki hafa látið undan þrýstingi með opnun líkamsræktarstöðva
Heilbrigðisráðherra segist ekki hafa látið undan þrýstingi með opnun líkamsræktarstöðva. Hún hefur farið yfir málið með sóttvarnalækni.

Vilja opna tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða í Oddsson hótelinu
Sóltún Öldrunarþjónusta hefur boðið heilbrigðisráðuneytinu að reka Oddsson hótel sem tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða.