

Tölfræðiveitan Football Meets Data hefur reiknað út líkur þeirra liða, sem taka þátt í umspili um laust sæti á EM 2024 í fótbolta, á að tryggja sér sæti á EM í gegnum umspilið. Ísland er á meðal þátttökuþjóða í umspilinu.
Age Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta lýst vel á möguleika liðsins í umspili fyrir EM. Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspilsins og hefur Hareide trú á því að liðið geti tryggt sér sæti á EM. Hann vonast til að allir bestu og reyndustu leikmenn Íslands verði klárir í baráttuna í mars.
Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir leið liðsins að EM sæti í gegnum umspil í mars á næsta ári vera leið sem hægt sé að sætta sig við. Ísland mun mæta Ísrael í undanúrslitum umspilsins.
Íslenska karlalandsliðið þarf að brjóta blað í sögunni til þess að tryggja sér sæti í úrslitum EM-umspilsins í mars á næsta ári. Liðið leikur undanúrslitaleik við Ísrael í mars.
Það er ekki bara mikið undir hjá Tékklandi og Moldóvu í Olomouc í kvöld þegar þjóðirnar mætast í lokaleik sínum í undankeppni EM í fótbolta.
Kanada lagði Jamaíka 2-1 í fyrri leik þjóðanna í útsláttarkeppni Þjóðadeildar Norður- og Mið Ameríku. Sigurvegari einvígisins fer á Suður-Ameríkukeppnina (Copa América) næsta sumar.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er mætt til Lisabon í Portúgal þar sem að liðið á leik gegn heimamönnum á José Alvalade leikvanginum á morgun í lokaumferð undankeppni EM.
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, segir það sér óskiljanlegt hvers vegna ekkert sé búið að gerast í byggingu nýs þjóðarleikvangs og segir það miður að liðið gæti þurft að spila mikilvægan heimaleik utan landssteinanna.
Leik Jamaíka og Kanada í útsláttarkeppni Þjóðadeildar Norður- og Mið Ameríku var frestað í nótt vegna veðuraðstæðna. Sigurvegari einvígisins tryggir sér sæti á Copa America næsta sumar.
Um 20 þúsund Slóvakar munu fylla Tehelné pole, heimavöll slóvakíska landsliðsins, annað kvöld þegar að Slóvakía og Ísland munu eigast við í undankeppni EM í fótbolta. Uppselt er á leikinn.
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Orri Óskarsson, hefur átt afar góðu gengi að fagna undanfarið með félagsliði sínu FC Kaupmannahöfn sem gerði sér meðal annars lítið fyrir og lagði Manchester United að velli í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Orri er hluti af íslenska landsliðinu sem mætir Slóvakíu og Portúgal í tveimur mikilvægum leikjum á komandi dögum. Orri segir liðið þurfa að setja kassann út, leggja allt í sölurnar.
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Sigurðsson, segir að á meðan enn er möguleiki á EM sæti í gegnum undankeppnina verði liðið að stefna að því. Hann telur íslenska landsliðið klárt í að berjast um sigur í þeim tveimur leikjum sem eftir eru.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta á enn smá von um að komast beint á EM næsta sumar í gegnum riðlakeppni EM. Svo er það alltaf góða gamla Krýsuvíkurleiðin sem að þessu sinni liggur í gegnum umspil Þjóðadeildarinnar.
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason hefur verið með landsliðinu í undirbúningi liðsins í Vín fyrir síðustu tvo leiki sína í undankeppni EM, útileiki gegn Slóvakíu og Portúgal. Arnór sneri aftur á gamlar slóðir í Vín en hann spilaði á sínum tíma með liði Rapid Wien þar í borg og í upphafi landsliðsverkefnisins bárust stórar fréttir úr herbúðum félagsliðs hans, IFK Norrköping.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, segir ljóst að allt þurfi að ganga upp til að liðið tryggi sér beint sæti á EM að næstu tveimur leikjum liðsins loknum. Ísland mætir Slóvakíu á fimmtudaginn kemur í Bratislava og Aron, sem hefur ekkert spilað upp á síðkastið, hefur verið að æfa stíft og styttist í að það dragi til tíðinda og að hann færi sig um set innan Katar.
Það er á slóðum Mozart sem íslenska karlalandsliðið hefur hafið undirbúning sinn fyrir komandi verkefni sitt í undankeppni EM, tvo síðustu leiki sína í J-riðli, að fullu hér í Vínarborg í Austurríki.
Forráðamenn danska knattspyrnusambandsins hafa áhyggjur af öryggismálum sinna landsliða og stuðningsmanna þeirra vegna þess óvissuástands sem ríkir í heiminum.
Vængmaðurinn Bukayo Saka verður ekki með enska landsliðinu í komandi verkefni. Hann missti af sigri Arsenal á Manchester City í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar en fyrir það hafði hann spilað í 87 deildarleikjum í röð.
Nú er ljóst hvaða leið íslenska karlalandsliðið í fótbolta þarf að fara til að komast inn á heimsmeistaramótið sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada eftir þrjú ár.
Spánn bar sigurorð af Króatíu þegar liðin mættust í úrslitum Þjóðadeildar UEFA í fótbolta karla á De Kuip í Rotterdam í Hollandi í kvöld. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og þar af leiðandi réðust úrslitin í vítaspyurnukeppni.
Ítalir fara heim með bronsið frá Hollandi eftir 3-2 sigur á Hollendingum. Hollendingar voru meira með boltann og sóttu mikið en gekk ekki nógu vel að skapa sér afgerandi færi.
Spánverjar eru á leið í úrslitaleik Þjóðadeildar UEFA eftir 2-1 sigur á Ítalíu í kvöld. Varamaðurinn Joselu tryggði Spánverjum sigurinn með marki á 88. mínútu í aðeins sínum þriðja landsleik.
Holland og Króatía mættust í undanúrslitum Þjóðadeildar karla í knattspyrnu í kvöld. Króatar unnu 4-2 í framlengdum leik og mæta annað hvort Ítalíu eða Spáni í úrslitum.
Íslensku landsliðin í fótboltanum gætu þurft að spila heimaleiki sína yfir vetrarmánuðina utan Íslands. Þetta segir framkvæmdastjóri KSÍ en hún segir jafnframt að mögulega fari leikirnir fram á Tenerife eða annars staðar í Evrópu.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í riðli með Þýskalandi, Danmörku og Wales í haust á fyrstu leiktíðinni í Þjóðadeildinni.
Belgar hafa fundið sér nýjan landsliðsþjálfara og sá er ekki mikið eldri en elstu stjörnur belgíska landsliðsins.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, samþykkti í gær breytingar á bæði Þjóðadeildinni sem og á undankeppnum heimsmeistaramótsins og Evrópumótsins.
Enska knattspyrnusambandið, FA, staðfesti sögusagnirnar um að Gareth Southgate, þjálfari Englands í fótbolta, verður þjálfari Englands á EM 2024 sem haldið verður í Þýskalandi.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í efstu deild, A-deild, í nýrri Þjóðadeild sem UEFA hefur nú kynnt. Liðið er þar með eitt þeirra sem eiga möguleika á sæti á Ólympíuleikunum í París 2024.
Alþjóðlega knattspyrnusambandið FIFA, lét portúgalska knattspyrnusambandið vita að fyrirhuguð keppnistreyja þeirra fyrir HM 2022 væri ólögleg.