Fótbolti

Gerir þrjár breytingar á sigur­liðinu í Svart­fjalla­landi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísak Bergmann Jóhannesson fagnar marki sínu út í Svartfjallalandi en hann kom inn á sem varamaður í þeim leik. Nú er hann kominn inn í byrjunarliðið.
Ísak Bergmann Jóhannesson fagnar marki sínu út í Svartfjallalandi en hann kom inn á sem varamaður í þeim leik. Nú er hann kominn inn í byrjunarliðið. Getty/Filip Filipovic

Åge Hareide gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn mikilvæga á móti Wales í Cardiff í kvöld. Með sigri tryggja íslensku strákarnir sér sæti í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Það var vitað að Logi Tómasson tekur út leikbann í leik kvöldsins og Aron Einar Gunnarsson er meiddur. Stefán Teitur Þórðarson missir líka sæti sitt í byrjunarliðinu.

Guðlaugur Victor Pálsson kemur inn í miðvörðinn í stað Arons Einars alveg eins og snemma í leiknum við Svartfellinga.

Alfons Sampsted kemur síðan inn í hægri bakvörðinn en í raun er það Valgeir Lunddal Friðriksson sem leysir af Loga. Valgeir færir sig úr hægri bakverði yfir í þann vinstri.

Ísak Bergmann Jóhannesson, sem skoraði seinna markið á móti Svartfellingum, kemur svo inn á miðjuna í stað Stefán Teits.

Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen eru því áfram saman í framlínunni og það er ekki hægt að sjá annað en þarna sé komið framtíðarframherjapar landsliðsins.

@footballiceland
  • Byrjunarlið Íslands á móti Wales:
  • Hákon Rafn Valdimarsson
  • Alfons Sampsted
  • Sverrir Ingi Ingason
  • Guðlaugur Victor Pálsson
  • Valgeir Lunddal Friðriksson
  • Jóhann Berg Guðmundsson
  • Arnór Ingvi Traustason
  • Ísak Bergmann Jóhannesson
  • Jón Dagur Þorsteinsson
  • Orri Steinn Óskarsson
  • Andri Lucas Guðjohnsen



Fleiri fréttir

Sjá meira


×