Enski boltinn

Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eiður Smári spáir því að City fái langt félagsskiptabann vegna brota á fjármálareglum.
Eiður Smári spáir því að City fái langt félagsskiptabann vegna brota á fjármálareglum. Getty/Sýn Sport

Hvernig á að refsa Manchester City fyrir brot á fjármálareglum? Það er spurning sem margur veltir fyrir sér þessi dægrin og var til umræðu í Messunni á Sýn Sport á sunnudaginn var.

Manchester City var dæmt sekt fyrir fordæmalaus brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar fyrir skemmstu. Áfrýjunarferli stendur yfir og ekki liggur fyrir hversu hörð refsing liðsins verður.

Klippa: Hvernig á að refsa Manchester City?

Að svipta liðið titlum hefur verið nefnt til sögunnar, að fella liðið niður um deildir, að meina því aðgang að Evrópukeppnum og að draga af því stig til nokkurra ára. Þá hefur því einnig verið kastað fram að svipta eigendum liðsins réttinn að eiga það áfram – auk fjársekta.

Þáttastjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson kastaði spurningunni um mögulega refsingu City fram í Messunni á sunnudaginn var.

„Þetta er rosalega erfið spurning fyrir mig að fá af því að ég hef svo miklar skoðanir af reglunum sem er verið að dæma eftir en út af því að það er búið að setja þetta upp og þetta er það sem við búum við í dag þá þurfum við að fylgja þeim reglum sem þar eru og hérna, hún þarf að vera hörð,“ segir Bjarni Guðjónsson.

„Þetta á náttúrulega ekki að vera leyfilegt í því sem við erum að gera þannig að refsingin hlýtur að vera að fara niður um einhverjar deildir og ekki bara eina deild af því það gerir svo ofboðslega lítið,“ segir Bjarni enn fremur og bætir við:

„Það er tómt mál að tala um einhverja gamla titla og eitthvað. Það þýðir ekkert að ræða það. Tengingin niður í gegnum þetta allt saman er svo löng og skrýtin. En niðri í bara það sama og held ég og við sáum Rangers lenda í á sínum tíma, það er eitthvað svoleiðis,“ segir Bjarni en Glasgow Rangers var hent niður í neðstu deild á Skotlandi fyrr á þessari öld.

Eiður Smári Guðjohnsen kveðst óviss um hvort City verði yfirhöfuð refsað af viti vegna áhrifa og fjármagns eigenda þess.

„Ég held þeir komi með allt of mikinn pening inn í deildina til að Premier League dæmi þá niður. Það er rosalega dýrt að dæma þá niður. Það væri það réttasta, sennilega. Ég held að þetta endi í einhverjum fimm til tíu árum í félagsskiptagluggabanni,“ segir Eiður Smári og bætir við:

„Það neyðir þá til þess, á þeim tíu árum, að byggja upp það lið sem þeir eru með nú þegar úr unglingaliðunum. Það er hægt að spekúlera svo mikið. Jú, 60 stig (í mínus). En það gefur þeim samt tækifæri að halda sér uppi ef þeir ná 100 stigunum. Þannig að einhver verður refsingin, og á að vera ef hún verður. Það er ennþá verið að áfrýja.“


Tengdar fréttir

„Hann kvartar yfir öllu“

Eru stuðningsmenn Manchester United komnir með nóg af stanslausu tuði stjörnuleikmannsins Bruno Fernandes? Eiður Smári Guðjohnsen velti því upp í Messunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×