Enski boltinn

Mamdani skaut á Man City

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mamdani ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA, á HM í sumar.
Mamdani ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA, á HM í sumar. Getty

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segir Manchester City ekki eiga heima í ensku úrvalsdeildinni. Hann skaut á félagið á viðburði vestanhafs í gær.

Mamdani tilkynnti í gær að New York-borg myndi afhenda New York-háskóla (NYU) rúmar 29 milljónir dala til að koma á fót nýrri rannsóknarstofu sem ætluð er rannsóknum í skammtafræði (e. quantum technology).

Mamdani tók við spurningum á blaðamannafundinum sem haldinn var vegna málsins og þar tók við spurningu blaðamanns sem Mamdani sjálfur tók fram að væri stuðningsmaður Liverpool á Englandi.

„Hvernig er að vera stuðningsmaður Liverpool akkúrat núna?“ spurði Mamdani blaðamanninn.

„Tjah, ég hef ekki haft tíma til að horfa á það,“ svaraði blaðamaðurinn og vísar til 3-0 taps Liverpool fyrir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Um var að ræða fyrsta leik Manchester City eftir að liðið hlaut fordæmalausan dóm fyrir víðtæk brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.

„Þið töpuðuð fyrir liði sem á ekki einu sinni að vera í deildinni,“ sagði Mamdani léttur.

Í New York er lið í eigu sömu aðila og Mamdani segir brott ræka úr ensku úrvalsdeildinni. Eigendur Manchester City settu á fót lið New York City FC árið 2013 og fengu inngöngu í stækkun MLS-deildarinnar, stærstu fótboltadeildar Bandaríkjanna, árið 2015.

New York City hefur spilað víðsvegar um New York frá stofnun liðsins til að mynda á Yankee-vellinum í Bronx, SI-vellinum í New Jersey og á Citi Field í Queens.

Síðastnefndi völlurinn er rétt hjá framtíðarheimili félagsins, Etihad Park, sem opnar á næsta ári. Sá völlur ber heiti flugfélagsins Etihad frá Abú Dabí, líkt og heimavöllur Manchester City, Etihad Stadium.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×