Enski boltinn

Ó­ljós skila­boð vekja upp spurningar: „Ég er orð­laus“

Aron Guðmundsson skrifar
Martinez og Amad Diallo, leikmenn Manchester United, voru duglegir við að tjá sig eftir leik í gær.
Martinez og Amad Diallo, leikmenn Manchester United, voru duglegir við að tjá sig eftir leik í gær. Vísir/Getty

Leikmenn Manchester United hafa verið duglegir við að koma sér í fréttirnar með ummælum eftir tap liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær. 

Varnarmaðurinn Lisandro Martinez fór mikinn í viðtali eftir leik í gær þar sem að hann gagnrýndi yfirmenn hjá Manchester United, þá sér í lagi yfirmann knattspyrnumála Jason Wilcox, harðlega. 

Nú hefur færsla sem annar leikmaður Manchester United, Amad Diallo, setti inn á Snapchat í gær, vakið upp spurningar því ekki liggur ljóst fyrir hver meining hans er. 

Diallo birti mynd af sér í leiknum gegn Atletico Madrid í gær og skrifaði við hana: 

„Helvítis skömm; Ég er orðlaus.“

Færsla Amad Diallo á Snapchat í gær.

Þessi færsla Amad Diallo óljós í meira lagi því ekki er vitað hvort hann sé að tala um frammistöðu Manchester United eða eitthvað annað. 

Leikmenn Manchester United hins vegar duglegir við að koma sér í kastljósið. Tímabilið ekki byrjað vel hjá liðinu og mikil pressa á bæði leikmönnum og knattspyrnustjóranum Michael Carrick. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×