Fótbolti

Fær morð­hótanir eftir and­lát spænska knatt­spyrnu­mannsins

Aron Guðmundsson skrifar
Jesús Miguel Alameda, leikmaður Tenerife, lést eftir harkalegt samstuð í leik liðsins í gær.
Jesús Miguel Alameda, leikmaður Tenerife, lést eftir harkalegt samstuð í leik liðsins í gær.

Leikmaður í sjöttu deild á Spáni hefur þurft að gefa frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum eftir að hafa fengið morðhótanir í kjölfar fráfalls spænska leikmannsins Jesús Miguel Alameda, leikmanni Tenerife. 

Greint var frá andláti Jesús í morgun en hann fór í hjartastopp eftir harkalegt samstuð í leik í næstefstu deild Spánar í gær.

Atvikið átti sér stað í uppbótartíma leiksins á mánudag. De Miguel elti boltann og sá ekki að Jesus Owono, markvörður Andorra, kom út á miklum hraða. Owono stökk upp til að hreinsa boltann frá og skall um leið af miklu afli á efri hluta líkama De Miguel.

Sorg ríkir á Spáni og þótt víðar væri leitað frestaði spænska knattspyrnusambandið öllum leikjum dagsins þar í landi.

Owono, markvörður Andorra, á nafna í sjöttu deild Spánar, Michael Owono, sem neyddist til að senda frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að hafa fengið morðhótanir. Greint var frá málinu í frétt á vef The Athletic.

Kom Michael Owono því skýrt á framfæri að hann hefði ekki tekið þátt í umræddum leik. Lögregluyfirvöld á Spáni hafa sett af stað hefðbundna rannsókn á málinu.

Jesús var 30 ára gamall og spilaði allan sinn feril í neðri deildum á Spáni. Hann átti 39 leiki í næstefstu deild Spánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×