Fótbolti

Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina ís­lenska í liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diljá Ýr Zomers og liðsfélagar hennar í Brann fagna titlinum í klefanum í gær.
Diljá Ýr Zomers og liðsfélagar hennar í Brann fagna titlinum í klefanum í gær. @brannkvinner

Diljá Ýr Zomers og félagar hennar í Brann tryggðu sér norska meistaratitilinn í kvennafótboltanum í gær en þetta er annað árið í röð sem félagið vinnur deildina.

Brann tryggði sér titilinn með 4-1 útisigri á Lilleström en liðið er með fjögurra stiga forskot á Aalesund þegar aðeins ein umferð er eftir.

Diljá var í byrjunarliði Brann í leiknum en Brenna Lovera, fyrrum leikmaður ÍBV og Selfoss á Íslandi, skoraði tvö mörk í leiknum.

Diljá hefur skorað sex mörk og gefið þrjár stoðsendingar í 21 deildarleik á þessu tímabili.

Þetta þýðir að íslensk landsliðskona er meistari í Noregi fimmta árið í röð.

Diljá vann líka titilinn með Brann í fyrra en þar á undan vann Valerenga tvö ár í röð með íslenska landsliðskonu í sínum röðum.

Sædís Rún Heiðarsdóttir varð meistari með Valerenga 2024 og árið á undan varð Ingibjörg Sigurðardóttir fyrirliði Valerenga þegar liðið vann titilinn.

Árið 2022 varð Svava Rós Guðmundsdóttir tvöfaldur meistari með Brann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×