Fótbolti

Messi tryggði Inter Miami mikil­vægan sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi fagnar hér sigurmarki sínu í nótt.
Lionel Messi fagnar hér sigurmarki sínu í nótt. AP/Mark Stockwell)

Lionel Messi skoraði sigurmarkið og kom Inter Miami upp í annað sæti Austurdeildarinnar með mikilvægu marki í 2-1 útisigri á New England Revolution í MLS-deildinni í nótt.

Daniel Gazdag kom New England yfir snemma í síðari hálfleik í leiknum á sunnudagskvöld, en stundarfjórðungi síðar svaraði Miami fyrir sig. Messi fann liðsfélaga sinn Germán Berterame, sem jafnaði í 1-1.

Sjö mínútum fyrir leikslok gerði Messi sjálfur út um leikinn. Argentínska stjarnan vann boltann rúmlega 25 metra frá marki, smeygði sér fram hjá nokkrum mótherjum og setti boltann af öryggi út í hornið. Markið var 26. mark Messis á tímabilinu og er hann þar með markahæstur í MLS-deildinni.

Skömmu síðar var jöfnunarmark New England dæmt af vegna rangstöðu eftir myndbandsdómgæslu.

Með sigrinum fór Inter Miami einmitt upp fyrir New England og í annað sæti Austurdeildarinnar þegar ein umferð er eftir af deildarkeppninni.

Úrslitin hafa mikla þýðingu fyrir röðun liðsins fyrir komandi úrslitakeppni.

Messi er með 26 mörk og 13 stoðsendingar í 30 leikjum á leiktíðinni en á tímabilinu á undan var hann með 35 mörk og 33 stoðsendingar í 35 leikjum á leiktíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×