Enski boltinn

Hildur skoraði í sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hildur Antonsdóttir skoraði í leik dagsins.
Hildur Antonsdóttir skoraði í leik dagsins. vísir/Diego

Hildur Antonsdóttir var á skotskónum í 3-0 sigri Newcastle á Durham í grannaslag á Norður-Englandi í ensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Hildur kom Newcastle á bragðið með fyrsta marki leiksins á 34. mínútu. Jordan Nobbs og Martha Thomas skoruðu hin tvö mörkin seint í leiknum.

Newcastle er á toppi deildarinnar með 16 stig af 18 mögulegum eftir sex leiki og stefnir hraðbyri á úrvalsdeildina. Durham er án stiga á botninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×