Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 09:31 Ciara Mageean fagnar góðum árangri með írska fánann. EPA/FILIP SINGER Frjálsíþróttastjarna er látin eftir baráttu við krabbamein en fyrir aðeins tveimur árum stóð hún efst á palli á Evrópumeistaramóti.
Hin sigursæla írska millivegalengdahlaupakona Ciara Mageean er látin en hún varð 34 ára gömul. Fjölskyldan greindi frá andlátinu í færslu á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Athletics Ireland (@athleticsirelandofficial) „Klukkan 06.30 í morgun tapaði Ciara baráttunni við krabbameinið, umkringd sínum nánustu. Hún var heittelskuð dóttir, systir, eiginkona og vinkona, og hún var mörgum innblástur. Hennar verður sárt saknað,“ sagði í yfirlýsingunni. Mageean varð Evrópumeistari í 1500 metra hlaupi svo nýlega sem árið 2024. Auk þess vann hún silfur árið 2022 og brons árið 2016. Írska hlaupakonan keppti á tvennum Ólympíuleikum. Í fyrra greindist hún með ristilkrabbamein sem hafði dreift sér. Fyrir mánuði gekk Mageean að eiga Thomas Moran, að því er dagblaðið Belfast Telegraph greinir frá. „Ég hef svo margt til að hlakka til. Tommy og ég höfum trúlofað okkur. Við höfðum alltaf séð fyrir okkur að gifta okkur fyrir næstu Ólympíuleika,“ sagði Mageean við norðurírska dagblaðið í júní. View this post on Instagram A post shared by Goss.ie (@goss.ie) Krabbameinið varð til þess að brúðkaupinu var flýtt. Frjálsíþróttasamband Írlands minntist hlaupakonunnar í yfirlýsingu. „Athletics Ireland hefur borist sú sorgarfregn að Ciara Mageean sé látin. Ciara var afar ástsæl og hvetjandi manneskja sem snerti líf svo margra. Hugrekki hennar, hlýja og andi munu skilja eftir sig varanlega arfleifð. Hugur allra hjá Athletics Ireland er hjá fjölskyldu Ciöru, vinum og ástvinum á þessum ólýsanlega erfiðu tímum og við vottum þeim okkar dýpstu samúð,“ sagði í yfirlýsingunni. Ástralski hlauparinn Jess Hull, silfurverðlaunahafi í 1500 metra hlaupi á Ólympíuleikunum, minntist hennar einnig: „Það eru engin orð til. Einfaldlega fallegasta manneskja sem hugsast getur, á allan hátt. Þín verður sárt saknað, hugur okkar og ást eru hjá Tommy og fjölskyldu þinni. Ég var heppin að fá að hlaupa marga kílómetra með þér en enn dýrmætara var að fagna áföngum saman við endamarkið. Ég er svo þakklát fyrir hverja stund, hvíl í friði, Ciara.“ View this post on Instagram A post shared by World Athletics (@worldathletics)
Frjálsar íþróttir Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Sjá meira